Morgunblaðið - 02.02.2017, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2017
Manneskja gengur þvertyfir tóma rýmið meðanönnur horfir á og þettaer allt og sumt sem við
þurfum til að leiklist eigi sér stað.“
Þessi upphafsorð bókarinnar Tóma
rýmið eftir breska leikstjórann Peter
Brook komu upp í hugann á frumsýn-
ingu Leikfélagsins fljúgandi fiskar á
Andaðu eftir breska leikskáldið
Duncan Macmillan í leikstjórn Þór-
eyjar Sigþórsdóttur í Iðnó sl. sunnu-
dagskvöld. Þar tók á móti áhorfend-
um tómt rými, áhorfendum var boðið
að sitja hringinn í kringum leikrýmið
sem staðsett var á miðju salargólfinu.
Engin leikmynd var til staðar, engir
leikmunir, engin hljóðmynd, engin
tónlist, lítið fór fyrir einfaldri lýsingu
Kjartans Darra Kristjánssonar og
búningar leikaranna tveggja voru svo
hversdagslegir að þeir skáru sig í
engu frá fötum áhorfenda. Hann í
svörtum gallabuxum og köflóttri
skyrtu, hún í gráum kjól og marglit-
um gammósíum. Hér var list leikar-
ans í forgrunni og ljóst að uppfærslan
myndi standa og falla með frammi-
stöðu Heru Hilmarsdóttur og Þor-
valdar Davíðs Kristjánssonar.
Um leið og ljósin komu upp byrjaði
leikurinn líkt og í miðju samtali. Parið
unga er statt í biðröðinni í Ikea þegar
maðurinn stingur upp á því að þau
eignist barn. Ólíkt því sem hann hafði
ímyndað sér „fríkar hún út“ við þessa
uppástungu og segist líða eins og
hann hafi „buffað“ hana í framan og
svo beðið hana um að reikna eitthvert
stærðfræðidæmi. Í framhaldinu tekur
við tæplega tveggja klukkustunda
orrahríð án hlés eða ætti kannski
frekar að segja „orðahríð“, því slíkur
er hraðinn í samtalinu. Í hvirfil-
bylnum sem skapast veltir parið fyrir
sér hvað það þýði að eignast barn og
hvort þau séu réttu manneskjurnar til
þess, hvort það sé siðferðislega rétt að
fjölga mannkyni þegar kolefnisspor
hvers nýs barns nemi 10.000 tonnum
af CO2, hvort þau tilheyri góða fólk-
inu, hvernig genamengið færist milli
kynslóða og hvernig sambandinu
muni reiða af með tilkomu nýs ein-
staklings. Inn í umræðurnar blandast
líka tal um traust, kynlíf og áhrif
klámvæðingarinnar, áhyggjur af frjó-
semi, fósturláti og framtíðarhorfum á
atvinnumarkaði. Ekki er laust við að
áhorfendur langi á stundum til að
hvetja parið til að ofhugsa ekki alla
skapaða hluti!
Leikrit Macmillan, sem var frum-
sýnt í Bretlandi árið 2011, er hugvit-
samlega skrifað, á köflum ískrandi
fyndið og heilt yfir vel uppbyggt.
Samtalið á sér stað á löngu tímabili og
stokkið er fram í tímann algjörlega
áreynslulaust án þess að flaumurinn
hökti. Líkt og í raunveruleikanum líð-
ur tíminn í leikritinu sífellt hraðar eft-
ir því sem á seinni hlutann dregur.
Verkið fangar tíðarandann vel á sama
tíma og það dregur upp áhugaverða
mynd af flóknu sambandi karls og
konu, þó myndin jaðri á stundum við
að vera ögn klisjukennd. Hún fær
mun meira talrými í sambandinu og
birtist sem taugaveikluð menntakona,
meðan hann er þessi sterka þögla
týpa sem þolir samt ekki að vera einn.
Þýðing Heru og staðfærsla er af-
skaplega vel unnin, því parið unga
gæti einmitt hæglega búið í hvaða
landi hins vestræna heims sem er.
Nálgun Þóreyjar er djörf. Það þarf
hugrekki til að sleppa öllum umbún-
aði og treysta alfarið á leiktextann og
leikarana. Sú ákvörðun ber hins veg-
ar ríkulegan ávöxt. Í samvinnu við
Alicju Ziolko, sem hannar sviðshreyf-
ingar, skapar Þórey snarpan dúett
sem minnir um margt á dans með á
köflum ýktum og stílfærðum hreyf-
ingum. Umrótið í huga persónanna
tveggja líkamnast með snjöllum hætti
í stöðugri hreyfingu á sviðinu, sem
tryggir líka að áhorfendur missa
sjaldan augnsamband við leikarana
nema í örstutta stund í einu. Hlustu-
nin er afbragðsgóð hjá Heru og Þor-
valdi og öll viðbrögð bæði rétt og
hárnákvæm, hvort sem þau brjótast
fram sem reiði, sársauki, gleði,
vonbrigði eða frygð – og leikararnir fá
plús fyrir vel útfærðar samlífssenur.
Hera og Þorvaldur hafa á umliðn-
um misserum fremur látið til sín taka
á hvíta tjaldinu en á leiksviði. Þeim
mun meiri fengur er að sjá þau fara á
kostum í Andaðu þar sem þau stand-
ast með glans þá þrekraun sem mara-
þonleiktexti Macmillan er. Andaðu er
hrá, spennandi og djörf uppfærsla úr
smiðju Leikfélagsins fljúgandi fiskar,
sem enginn leikhúsunnandi ætti að
láta framhjá sér fara.
Morgunblaðið/Golli
Þrekraun „Þeim mun meiri fengur er að sjá [Þorvald og Heru] fara á kostum í Andaðu þar sem þau standast með
glans þá þrekraun sem maraþonleiktexti Macmillan er,“ segir í rýni um leiksýninguna Andaðu sem sýnd er í Iðnó.
Andað í tómu rými
Iðnó
Andaðu bbbbm
Eftir Duncan Macmillan. Íslensk þýðing:
Hera Hilmarsdóttir. Leikstjórn: Þórey
Sigþórsdóttir. Hreyfingar: Alicja Ziolko.
Lýsing: Kjartan Darri Kristjánsson. Leik-
arar: Hera Hilmarsdóttir og Þorvaldur
Davíð Kristjánsson. Leikfélagið fljúg-
andi fiskar frumsýndi í Iðnó sunnudag-
inn 29. janúar 2017.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Viviane Hagner leikur einleik í fiðlu-
konserti Benjamins Britten á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í
Eldborg Hörpu í kvöld kl. 19.30 und-
ir stjórn Matthews Halls. Efnisskrá
kvöldsins samanstendur af verkum
eftir Britten og Ígor Stravinskíj,
samin í Bandaríkjunum, en þangað
héldu þeir þegar heimsstyrjöldin síð-
ari braust út. „Fiðlukonsert Britten
þykir eitt hans allra besta verk, með
tjáningarfullri lýrík í bland við
dramatísk tilþrif. Fáeinum árum síð-
ar samdi Stravinskíj fyrsta stóra
verk sitt eftir flutninginn til Banda-
ríkjanna, verk sem hann sjálfur kall-
aði „stríðssinfóníuna“ og er dekkri
og kraftmeiri tónsmíð en hann hafði
þá samið um nokkra hríð. Kamm-
erkonsertinn Dumbarton Oaks er
létt og áheyrilegt verk í nýklass-
ískum stíl sem tekur mið af Brand-
enborgarkonsertum Bachs,“ segir í
tilkynningu skipuleggjenda.
Britten og Stravinskíj óma
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fiðluleikarinn Viviane Hagner á æfingu með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
http://www.borgarleikhus.is/syningar/uti-ad-aka/
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 4/2 kl. 20:00 148. s Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s
Sun 5/2 kl. 20:00 149. s Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s
Fös 10/2 kl. 20:00 150. s Sun 19/2 kl. 20:00 154. s
Lau 11/2 kl. 20:00 151. s Fim 23/2 kl. 20:00 155. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Lau 4/2 kl. 13:00 31. s Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s
Lau 11/2 kl. 13:00 32. s Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Ræman (Nýja sviðið)
Fös 3/2 kl. 20:00 10.sýn Lau 4/2 kl. 20:00 11.sýn Fim 9/2 kl. 20:00 12.sýn
Nýtt verk sem hlaut Pulitzer-verðlaunin 2014!
Hún Pabbi (Litla svið )
Fim 2/2 kl. 20:00 9. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 11.sýn
Sun 5/2 kl. 20:00 10.sýn Fös 10/2 kl. 20:00 12.sýn
Í samstarfi við leikhópinn Trigger Warning
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Fim 2/2 kl. 14:00 Fors. Sun 5/2 kl. 13:00 2. sýn Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn
Fös 3/2 kl. 14:00 Fors. Lau 11/2 kl. 13:00 3. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn
Lau 4/2 kl. 13:00 Frums. Sun 12/2 kl. 13:00 4. sýn
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Fim 2/2 kl. 20:00 12. sýn Fim 9/2 kl. 20:00 15 sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Fös 3/2 kl. 20:00 13. sýn Sun 12/2 kl. 20:00 16.sýn
Mið 8/2 kl. 20:00 14. sýn Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 4/2 kl. 19:30 37.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 39.sýn
Kraftmikill söngleikur um skrautlegt mannlíf í braggahverfum Reykjavíkur!
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 4/2 kl. 19:30 36.sýn Lau 11/2 kl. 19:30 39.sýn Sun 19/2 kl. 19:30 42.sýn
Sun 5/2 kl. 19:30 37.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 aukasýn
Fös 10/2 kl. 19:30 38.sýn Lau 18/2 kl. 19:30 41.sýn
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fim 2/2 kl. 19:30 8.sýn Fös 10/2 kl. 19:30 aukasýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Fös 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 aukasýn
Fim 9/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 17/2 kl. 19:30 11.sýn
Vesturport tekst á nýjan leik á við Shakespeare!
Gott fólk (Kassinn)
Fim 2/2 kl. 19:30 9.sýn Fim 16/2 kl. 19:30 11.sýn
Sun 12/2 kl. 19:30 10.sýn Lau 25/2 kl. 19:30 12.sýn
Nýtt og ágengt íslenskt verk um ungt fólk, ástarsambönd, ofbeldi og refsingu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 5/2 kl. 13:00 3.sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6.sýn Sun 26/2 kl. 16:00 7.sýn
Sun 12/2 kl. 13:00 4.sýn Sun 19/2 kl. 16:00 aukasýn
Sun 12/2 kl. 16:00 aukasýn Sun 26/2 kl. 13:00 5.sýn
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Sun 5/2 kl. 14:00 Mið 8/2 kl. 19:30 Fim 9/2 kl. 19:30
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 2/2 kl. 20:00 16.sýn Fös 10/2 kl. 20:30 22.sýn Fös 17/2 kl. 22:30 28.sýn
Fös 3/2 kl. 20:00 17.sýn Fös 10/2 kl. 23:00 23.sýn Lau 18/2 kl. 20:00 29.sýn
Fös 3/2 kl. 22:30 18.sýn Lau 11/2 kl. 20:00 24.sýn Lau 18/2 kl. 22:30 30.sýn
Lau 4/2 kl. 20:00 19.sýn Lau 11/2 kl. 22:30 25.sýn Sun 19/2 kl. 21:00 aukasýn
Lau 4/2 kl. 22:30 20.sýn Fim 16/2 kl. 20:00 26.sýn
Fim 9/2 kl. 20:00 21.sýn Fös 17/2 kl. 20:00 27.sýn
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Húsið (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 Frums Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 8/2 kl. 20:00 Mið 1/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 15/2 kl. 20:00 Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Mið 22/2 kl. 20:00 Mið 15/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Íslenski fíllinn (Brúðuloftið)
Lau 4/2 kl. 13:00 Lau 11/2 kl. 13:00 Lau 18/2 kl. 13:00
Lau 4/2 kl. 15:00 Lau 11/2 kl. 15:00 Lau 18/2 kl. 15:00
Aukasýningar - aðeins þessar sýningar