Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11 Tveggja pósta lyftur með 3 til B ÍLALYFTUR Höfum á boðstólum mikið úrval af lyftum og fylgihlutu 4, 6 og 8 pósta lyftur með 4 til 40 tonna lyftigetu. Fjöldi auka og hjálpartækja svo sem millitjakkar, hristarar og hjólaskoðunarplattar. Niðurgrafnar lyftur. Margir möguleikar á lyftiörmum og útfærslum á lyftum. 3 til 7 tonna skæralyftur einfaldar eða tvöfaldar, einnig fáanlegar galvaníseraðar. Fjölbreytt úrval af lyfti örmum, t.d. extra lágir armar fyrir sportbíla og upphækkaðir armar fyrir grindarbíla. Áratuga reynsla starfsmanna Vélasölunnar og fjölbreytt vöruúrval, gerir Vélasöluna að einu öflugasta þjónustufyrirtæki við iðnað og sjávarútveg á Íslandi. 5 tonna lyftigetu. m fyrir allar gerðir bíla Dugguvogi 4 · 104 Reykjavík Sími, 520 0000 · www.velasalan.is E kki alls fyrir löngu sagði Bílablað Morgunblaðsins frá „Minknum“ sem er nokkurs konar lúxus- gistivagn sem kemur á markaðinn nú í sumar. Mink Camper, eins og vagninn heitir, er íslensk hönnun og er hann sérhannaður fyrir aðstæður hér- lendis, eins og segir í fréttatilkynn- ingu frá Mink Campers. Gistivagn- inn vegur aðeins 500 kg og er með rúmgott gistipláss fyrir tvo full- orðna auk barns, Minkurinn er ein- faldur í notkun og hentar mjög vel fyrir útleigu til ferðamanna í útileg- una. Þrátt fyrir að vera lítill og með- færilegur þá er hann sérlega vel útbúinn, meðal annars með Häs- tens-lúxusrúm og rúmföt, Bose-hátalarakerfi, 3G-4G netteng- ingu, panorama útsýnisglerþaki, sem er frábært til að virða fyrir sér stjörnurnar og/eða norðurljósin, Webasto-hitakerfi og góðri eldunar- aðstöðu. Vaxandi þörf á markaðnum Í tilkynningunni segir að 80% þeirra ferðamanna sem sækja landið heim komi í þeim tilgangi að upplifa náttúru Íslands og vilja margir ferðast á eigin vegum til að sjá hina fjölmörgu áfangastaði um allt land. Gistirými á landsbyggðinni er aftur á móti af mjög skornum skammti og til að uppfylla vaxandi þörf mark- hópsins hafa Bílaleigan Avis og Mink Campers hafið samstarf. „Með samstarfinu skapast tæki- færi til að víkka enn frekar þjón- ustustig til ferðamanna sem vilja einfaldleika en jafnframt lúxus í ferðalaginu sínu um Ísland,“ segir Hjálmar Pétursson, forstjóri Avis/ Budget á Íslandi. „Með því að leigja bíl og Mink samhliða getur ferða- maðurinn auðveldlega sérsniðið sitt ferðalag með því að leggja bílnum og gist á þeim fjölmörgu tjald- stæðum um landið sem henta hverju sinni án þess að vera búinn að skipu- leggja sig mikið fram í tímann. Þetta gefur þeim tækifæri til að staldra við lengur á þeim stöðum sem þeir vilja skoða nánar eða ferðast í takt við veðurspána sem er oftar en ekki óútreiknanleg hér á landi.“ Hjálmar segir ennfremur að hann sé mjög spenntur fyrir samstarfinu við Mink Campers sem er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki með framúr- stefnulega lausn fyrir fólk sem vill njóta náttúrunnar í miklu návígi. „Markmið okkar hefur alltaf verið að vera fremstir í framþróun með áherslu á þjónustu og að uppfylla þarfir ólíkra hópa, til dæmis með fjölbreyttu úrvali af bílum en þetta samstarf gefur okkur tækifæri til að víkka þjónustustigið frekar þar sem hægt er að leigja út bíl og lúxusgist- ingu á hjólum á sama stað og tíma.“ Öryggi, gæði og ánægja viðskiptavina í öndvegi „Það er frábært að fá Avis/Budget í samstarf við okkur,“ segir Kol- beinn Björnsson, forstjóri Mink Campers ehf., „enda er hér um að ræða eina öflugustu bílaleigu á Ís- landi með yfir 3.000 bíla í útleigu, þjónustustöðvar um allt land og mjög hátt þjónustustig. Bæði fyr- irtækin vilja byggja upp öfluga starfsemi og þjónustu í kringum út- leiguna þar sem öryggi, gæði og ánægja ferðamenna er í ávallt í fyr- irrúmi. Samstarfið mun einnig stuðla að dreifingu ferðamanna um landið og stefnt er að því að verða leiðandi í gistingu ferðamanna á landsbyggðinni og í svokölluðum „self drive tours“ sem er stækkandi markaður. En einnig munum við kynna fyrir viðskiptavinum okkar fjölbreytta gististaði og afþreyingu í samvinnu við ferðaþjónustubændur og tjaldstæði um allt land.“ Útleiga á bílaleigubíl og Minknum mun hefjast í sumar og verður þjón- ustuframboðið kynnt samstarfs- aðilum og viðskiptavinum á næstu vikum, segir loks í tilkynningunni. jonagnar@mbl.is Minkurinn í samstarf við Avis Minkurinn er lítill og léttur gistivagn en þó búinn bestu þægindum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.