Morgunblaðið - 28.02.2017, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Tveggja pósta lyftur með 3 til
B ÍLALYFTUR
Höfum á boðstólum mikið úrval af lyftum
og fylgihlutu
4, 6 og 8 pósta lyftur með 4 til 40 tonna
lyftigetu. Fjöldi auka og hjálpartækja svo sem
millitjakkar, hristarar og hjólaskoðunarplattar.
Niðurgrafnar lyftur. Margir möguleikar
á lyftiörmum og útfærslum á lyftum.
3 til 7 tonna skæralyftur einfaldar eða
tvöfaldar, einnig fáanlegar galvaníseraðar.
Fjölbreytt úrval af lyfti örmum, t.d. extra lágir armar
fyrir sportbíla og upphækkaðir armar
fyrir grindarbíla.
Áratuga reynsla starfsmanna Vélasölunnar og fjölbreytt vöruúrval, gerir Vélasöluna
að einu öflugasta þjónustufyrirtæki við iðnað og sjávarútveg á Íslandi.
5 tonna lyftigetu.
m fyrir allar gerðir bíla
Dugguvogi 4 · 104 Reykjavík
Sími, 520 0000 · www.velasalan.is
E
kki alls fyrir löngu sagði
Bílablað Morgunblaðsins
frá „Minknum“ sem er
nokkurs konar lúxus-
gistivagn sem kemur á markaðinn
nú í sumar.
Mink Camper, eins og vagninn
heitir, er íslensk hönnun og er hann
sérhannaður fyrir aðstæður hér-
lendis, eins og segir í fréttatilkynn-
ingu frá Mink Campers. Gistivagn-
inn vegur aðeins 500 kg og er með
rúmgott gistipláss fyrir tvo full-
orðna auk barns, Minkurinn er ein-
faldur í notkun og hentar mjög vel
fyrir útleigu til ferðamanna í útileg-
una. Þrátt fyrir að vera lítill og með-
færilegur þá er hann sérlega vel
útbúinn, meðal annars með Häs-
tens-lúxusrúm og rúmföt,
Bose-hátalarakerfi, 3G-4G netteng-
ingu, panorama útsýnisglerþaki,
sem er frábært til að virða fyrir sér
stjörnurnar og/eða norðurljósin,
Webasto-hitakerfi og góðri eldunar-
aðstöðu.
Vaxandi þörf á markaðnum
Í tilkynningunni segir að 80%
þeirra ferðamanna sem sækja landið
heim komi í þeim tilgangi að upplifa
náttúru Íslands og vilja margir
ferðast á eigin vegum til að sjá hina
fjölmörgu áfangastaði um allt land.
Gistirými á landsbyggðinni er aftur
á móti af mjög skornum skammti og
til að uppfylla vaxandi þörf mark-
hópsins hafa Bílaleigan Avis og
Mink Campers hafið samstarf.
„Með samstarfinu skapast tæki-
færi til að víkka enn frekar þjón-
ustustig til ferðamanna sem vilja
einfaldleika en jafnframt lúxus í
ferðalaginu sínu um Ísland,“ segir
Hjálmar Pétursson, forstjóri Avis/
Budget á Íslandi. „Með því að leigja
bíl og Mink samhliða getur ferða-
maðurinn auðveldlega sérsniðið sitt
ferðalag með því að leggja bílnum
og gist á þeim fjölmörgu tjald-
stæðum um landið sem henta hverju
sinni án þess að vera búinn að skipu-
leggja sig mikið fram í tímann. Þetta
gefur þeim tækifæri til að staldra
við lengur á þeim stöðum sem þeir
vilja skoða nánar eða ferðast í takt
við veðurspána sem er oftar en ekki
óútreiknanleg hér á landi.“
Hjálmar segir ennfremur að hann
sé mjög spenntur fyrir samstarfinu
við Mink Campers sem er íslenskt
nýsköpunarfyrirtæki með framúr-
stefnulega lausn fyrir fólk sem vill
njóta náttúrunnar í miklu návígi.
„Markmið okkar hefur alltaf verið
að vera fremstir í framþróun með
áherslu á þjónustu og að uppfylla
þarfir ólíkra hópa, til dæmis með
fjölbreyttu úrvali af bílum en þetta
samstarf gefur okkur tækifæri til að
víkka þjónustustigið frekar þar sem
hægt er að leigja út bíl og lúxusgist-
ingu á hjólum á sama stað og tíma.“
Öryggi, gæði og ánægja
viðskiptavina í öndvegi
„Það er frábært að fá Avis/Budget
í samstarf við okkur,“ segir Kol-
beinn Björnsson, forstjóri Mink
Campers ehf., „enda er hér um að
ræða eina öflugustu bílaleigu á Ís-
landi með yfir 3.000 bíla í útleigu,
þjónustustöðvar um allt land og
mjög hátt þjónustustig. Bæði fyr-
irtækin vilja byggja upp öfluga
starfsemi og þjónustu í kringum út-
leiguna þar sem öryggi, gæði og
ánægja ferðamenna er í ávallt í fyr-
irrúmi. Samstarfið mun einnig
stuðla að dreifingu ferðamanna um
landið og stefnt er að því að verða
leiðandi í gistingu ferðamanna á
landsbyggðinni og í svokölluðum
„self drive tours“ sem er stækkandi
markaður. En einnig munum við
kynna fyrir viðskiptavinum okkar
fjölbreytta gististaði og afþreyingu í
samvinnu við ferðaþjónustubændur
og tjaldstæði um allt land.“
Útleiga á bílaleigubíl og Minknum
mun hefjast í sumar og verður þjón-
ustuframboðið kynnt samstarfs-
aðilum og viðskiptavinum á næstu
vikum, segir loks í tilkynningunni.
jonagnar@mbl.is
Minkurinn í samstarf við Avis
Minkurinn er
lítill og léttur
gistivagn en
þó búinn bestu
þægindum.