Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ F rá því bílaframleiðandinn Skoda reis úr öskustónni um síðustu aldamót hefur merkinu farið jafnt og þétt fram. Bílarnir verða sífellt betri og um leið hefur útlitsþróunin verið einkar jákvæð. Nú er svo komið að Skoda Octavia og stóri bróðirinn Superb eru báðir virkilega laglegir bílar, með útlitið í takt við gæðin. Þetta er landinn fullvel meðvitaður um enda seljast bílarnir hörkuvel og Octavian er með vinsælli bílum hér á landi. Það er því ekki lítil eft- irvænting sem ríkt hefur meðal bílaáhugamanna, ekki síst hér á landi, síðan út spurðist að loks væri væntanlegur jeppi frá Skoda, sá fyrsti í sögu framleiðandans. Jepp- inn heitir Kodiaq og skemmst er frá því að segja að hann er frábær- lega vel heppnaður. Augljós ættarsvipur Þeir vita sem til þekkja að Skoda-bílarnir hafa sterkan ætt- arsvip sem hefur tekist að heim- færa með miklum ágætum á mis- munandi gerðir bíla innan fjölskyldunnar. Það getur verið snúið að taka svip og útlitseinkenni fólksbíla og færa með góðu móti yf- ir á jeppa, en Skoda hefur tekist þessi yfirfærsla með miklum ágæt- um. Framsvipurinn allur, framljós og grill, er náskyldur Octaviu og Superb, og afturljósin eru nánast eins og á hinum síðarnefnda. Hvort tveggja gengur firnavel upp í yf- irbyggingu jeppa og Kodiaq ber þess ekki merki að vera frumraun heldur skín í gegn að hér er á ferð- inni hönnun sem þegar stendur á nokkurra ára merg. Í útliti stenst Kodiaq ekki bara prófið heldur rúll- ar því upp með láði. Drekkhlaðinn búnaði Það sem kemur einna helst á óvart þegar bíllinn er skoðaður nánar er hversu vel hann er búinn. Tengimöguleikarnir eru slíkir að réttilega mætti tala um „snjallbíl“ því hægt er að para öll helstu upp- lýsinga- og afþreyingarkerfin við snjallsíma farþega í gegnum Bluetooth eða SmartLink. Öll stýr- ing á þessu fer fram gegnum þægi- legan snertiskjá. Í Kodiaq er að finna Columbus-upplýsinga- og af- þreyingarkerfi sem býður upp á 64 GB gagnapláss, DVD og LTE- einingu sem valbúnað fyrir háhraða nettengingu. Wi-Fi heitur reitur gerir svo farþegum jeppans kleift að vafra um veraldarvefinn, streyma tónlist að eigin vali eða skoða tölvupóstinn sinn. Efnisvalið er gott og bíllinn hefur talsvert „dýra“ tilfinningu innan- dyra. Plássið er gríðarlega gott, eins og lenska er orðin hjá Skoda, að því marki að farangursrými Kodiaq er það mesta í sínum flokki. Hægt er að fá bílinn í 7 sæta út- gáfu og merkilegt nokk þá fer bara alveg ágætlega um mann þar aft- ast. Þó er ekki hægt að mæla með mjög viðmikilli langkeyrslu með tvö fullvaxna og fíleflda karlmenn þar aftur í. En börnin hafa þar feikinóg pláss. Í raun er búnaðurinn allur svo vel útilátinn að helst væri hans að vænta í jeppa sem tilheyrði talsvert hærri verðflokki. Of langt mál er að telja þar allt upp en sem dæmi um hugvitsamlega nýjung eru nettar hurðarhlífar sem smeygjast á auga- bragði út þegar hurðirnar eru opn- aðar og þekja þar með hinn lóð- rétta kant hurðarflekans sem einmitt er hættast við hnjaski þeg- ar bíllinn er opnaður í þröngu stæði. Bæði getur málning kvarnast upp úr hurðarkantinum og eins get- ur bíll sem opnaður er hæglega skemmst. Það mun ekki gerast með Skoda Kodiaq og téðar hurðarhlífar smeygjast leiftursnöggt til baka þegar hurðunum er lokað. Þessi einfaldi og hugvitssamlegi snilld- arbúnaður verður að líkindum orð- inn staðalbúnaður víðast hvar áður en á mjög löngu líður enda getur Kodiaq er klár smellur Að vera í sambandi er ekki vandamál í Kodiaq enda bíllinn búinn allra handa nútíma snjalltengingum fyrir þá sem það kjósa. Frágangur er allur hinn fínasti í farþegarými og hönnunin hefur tekist með ágætum, þar sem annars staðar. Útlit og efnisval til fyrirmyndar. + aksturseiginleikar, búnaður, pláss, útlit, hljóðlátur – Engir gallar, en þéttara vélarhljóð hefði óneitanlega kitlað Skoda Kodiaq Reynsluakstur 2,0 lítra dísilvél 150–190 hestöfl/320 Nm 7 gíra sjálfskipting 0-100 km/klst: 11,5 sek Hámarkshr.: 183 km/klst Fjórhjóladrif 17“ álfelgur í Ambition, 18“ álfelgur í Style Eigin þyngd kg: 1.625 Farangursrými: 720 lítrar Mengunargildi: 129 g/km Verð frá: 5.460.000 kr. 5,4 L í blönduðum akstri Umboð: Hekla Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Skoda Kodiaq er að öllum líkindum bíll sem mun marka ákveðin þáttaskil hjá framleiðandanum því hann verður klárlega einn af smellum ársins þegar 2017 verður gert upp. Hér sést umgjörð og aðstaða ökumanns og farþega í framsæti. Hér er vart yfir nokkrum hlut að kvarta enda bíllinn feikivel útbúinn. Ekki nóg með að borðplötur séu fyrir farþega í aftursæti, heldur einnig drykkjarhaldarar. Mikil blessun fyrir fjölskyldufólk þarna á ferð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.