Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Verkfærasalan - Síðumúla 11 - Dalshrauni 13 - 560-8888 - www.vfs.is
Í byrjun mánaðarins var nýr Kia Rio
kynntur blaðamönnum í Portúgal,
nánar tiltekið í Lissabon og ná-
grenni. Þessi vinsæli bíll hefur um
margt verið uppfærður frá síðustu
kynslóð og var almennt gerður góð-
ur rómur að bílnum við prófanirnar.
Rio er tromp Kia í B-flokki fólks-
bíla og er meðal söluhæstu bíla
þeirra á heimsvísu. Í hinum nýja Rio
hefur hvers kyns snjalltækjateng-
ingum verið bætt við svo nú geta
bæði notendur Apple og Android-
stýrikerfa tengst bílnum með auð-
veldum hætti.
Meira pláss, meira öryggi
Öryggisbúnaður hefur verið bætt-
ur umtalsvert og er nýr Kia Rio sá
fyrsti í sínum flokki sem býður upp á
AEB bremsukerfi (Autonomous
Emergency Braking) sem ber kennsl
á gangandi vegfarendur, geri öku-
maður það ekki nógu skjótt. Að
sama skapi leiðir Rio-inn sinn stærð-
arflokk hvað varðar pláss fyrir far-
þega sem og farangursrými en
skottið rúmar 325 lítra. Þá er bíllinn
meðal annars með hinni spræku 1.0
lítra T-GDI sem reyndist afar
áhugaverð í akstri. Bíllinn kemur í
sölu á fyrsta fjórðungi ársins í Evr-
ópu og ítarleg reynsluakstursgrein
verður birt í næsta Bílablaði Morg-
unblaðsins.
jonagnar@mbl.is
Kynntur blaðamönnum í Portúgal
Nýr Kia Rio senn á markaðinn
Hinn nýi Kia Rio ber skyldleikann með sér en er þó nýstárlegur að sjá.
Renault Group hefur keypt
franska fyrirtækið PVI sem hefur
langa reynslu af nýhönnun og
breytingum á sendibílum þannig
að þeir geti gengið á rafmagni eða
jarðgasi í stað bensíns eða dísilolíu
eingöngu.
Markmið Renault er að flýta
þróun og innleiðingu nýrra orku-
gjafa í þeirri deild fyrirtækisins
sem annast framleiðslu og
markaðssetningu atvinnubíla, sér-
staklega minni sendibíla á borð við
Kangoo, Trafic og Master.
Fyrir Renault felast helstu verð-
mæti PVI í mikilli sérþekkingu
starfsmanna fyrirtækisins á því
hvernig hagkvæmast sé að breyta
atvinnubílum í ofangreindu skyni á
meðan PVI öðlast greiðari aðgang
að fjármagni og þróuðum inn-
viðum Renault til innkaupa á
margvíslegum íhlutum vegna sam-
setningar á rafknúnum atvinnubíl-
um. Renault er nú þegar helsti
framleiðandi rafknúinna léttra
sendibíla í Evrópu og hyggst fyr-
irtækið þróa stefnu sína í þeim
málaflokki áfram með PVI og
auka úrval slíkra atvinnubíla.
Rafknúinn Master
Sérfræðingar Renault og PVI
þróuðu saman nýjustu kynslóð
stóra sendibílsins Renault Master
sem frumsýndur var á atvinnubíla-
sýningunni í Brussel þann 13. jan-
úar síðastliðinn. Í honum hafði dís-
ilvélinni verið skipt út fyrir
öflugan rafmótor. Bíllinn kemur á
markað í Evrópu í árslok. Renault
býður nú þegar fjórar gerðir
rafknúinna atvinnubíla, þar á með-
al Kangoo sem allnokkur reynsla
er komin á hér á landi.
agas@mbl.is
Renault horfir til nýrra orkugjafa
Aukið úrval raf-
knúinna sendibíla
Renault Master sést hér til sýnis sem raf-sendibíllinn á bílasýningunni í
Brussel. Hann er væntanlegur á götuna síðar í ár.
Franska bílaritið Auto Plus rekur
eigin rannsóknarstofu sem meðal
annars sinnir reynsluakstri bíla og
hvers konar úttekt á þeim.
Einnig sinnir hún flestu því sem
akstri og rekstri bíla viðkemur og
útskýrir í ritinu eitt og annað um
tæknilega starfsemi bílanna og ein-
stakra kerfa þeirra.
Í nýjasta hefti sínu gerir stofan
úttekt á stærð farangursgeymslna í
þeim stærðarflokki bíla sem hún
kallar borgarbíla. Kemur plássið
sér vel, ekki síst þegar helgarinn-
kaupin eru gerð.
Aðeins þrír bílar í þessum stærð-
arflokki reyndust með 360 lítra eða
stærri farangursgeymslu. Í efsta
sæti varð Dacia Sandero frá dótt-
urfyrirtæki Renault með 366 lítra
skott.
Skammt á eftir í öðru sæti er Su-
zuki Baleno með 362 lítra farang-
ursgeymslu og í því þriðja Seat
Ibiza með 360 lítra.
Rafbíllinn Renault Zoe varð í
fjórða sæti í úttektinni með 350
lítra geymslu, eða einum lítra
meira en Hyundai i20. Skoda Fabia
varð í sjötta sæti með 336 lítra
skott, Peugeot 208 í því sjöunda
með 332 lítra, Renault Clio og VW
Polo urðu jafnir í áttunda með 330
lítra og tíundu stærstu farang-
ursgeymslu borgarbíla er að finna í
Fiat Punto eða 320 lítra.
Aðrir bílar með yfir 300 lítra
skott reyndust vera Ford Fiesta
(315), DS 3 (312), Opel Corsa fimm
dyra (312), Kia Rio (310) og Opel
Corsa þriggja dyra (307).
agas@mbl.is
Þegar stærðin skiptir máli …
Farangursgeymsla Dacia Sandero reyndist stærst meðal 30 borgarbíla
sem teknir voru til skoðunar. Það reyndist rúma heila 366 lítra, takk.
Dacia Sandero með
stærsta skottið
Sænski bílsmiðurinn Volvo seldi
fleiri bíla á nýliðnu ári en nokkru
sinni áður. Er það þriðja árið í röð
sem Volvo setur sölumet.
Alls seldi Volvo 534.332 bíla árið
2016 sem er 5,2% aukning frá
árinu áður. Þykir þetta undir-
strika breidd og dýpt umbreytinga
í rekstri Volvo á heimsvísu. Á öll-
um mörkuðum bætti fyrirtækið
stöðu sína, þar af jókst salan um
11,5% í Kína og 18,1% í Bandaríkj-
unum. Þá jók Volvo við sig um
4,1% í vesturhluta Evrópu.
Það sem drífur vöxtinn er góð
sala á nýrri 90-línu Volvo en kon-
ungur hennar er stóri XC90 lúx-
usjeppinn. Jókst sala hans um
125% milli ára. Þá seldust einnig
fleiri meðalstórir XC60 jeppar en
áður eða 161.092 eintök. Var 2016
níunda árið sem hann er á mark-
aði en hann hefur bætt við sig
hvert einasta ár frá því hann kom
til skjalanna 2008.
Stærsti markaður fyrir Volvo-
bíla er í Kína en þar seldust 90.930
eintök í fyrra, langmest af mód-
elunum XC60 og S60L sem smíðuð
eru þar í landi. Í Bandaríkjunum
seldi Volvo 82.726 bíla, langmest
XC90 og XC60. Í V-Evrópu komu
206.144 bílar á götuna frá sænska
bílsmiðnum sem er 4,1% aukning
frá árinu 2015. Munaði mest um
vöxt á lykilmörkuðum á borð við
Þýskaland, Bretland, Frakkland
og Ítalíu.
agas@mbl.is
Rífandi gangur hjá frændum vorum Svíum
V90 Estate er meðal velheppnaðra bílnýjunga frá Volvo.
Þriðja metárið hjá Volvo