Morgunblaðið - 28.02.2017, Side 16

Morgunblaðið - 28.02.2017, Side 16
Þ að sem hæst hefur borið tíðinda á íslenskum bíla- markaði það sem af er árinu 2017 er tvímælalaust löngu tímabær innreið enska bíla- framleiðandans Jaguar hingað til lands, en BL hefur hafið innflutning á bílunum hingað til lands. Þetta sögulega merki hefur á síðustu ára- tugum haft sterka sjónræna teng- ingu við landann, án þess að virkur innflutningsaðili væri hér á landi, og því er gaman að sjá Jaguar-umboð verða að veruleika. Má í þessu sam- bandi nefna hinn beinhvíta Jaguar 340 Saloon sem Nóbelsskáldið Hall- dór Kiljan Laxness keypti sér nýjan árið 1968, hinn drifhvíta Jaguar XJS sem Ian Ogilvy ók í hlutverki Simons Templar í sjónvarpsþáttunum Ret- urn of The Saint frá 1978 og loks hinn kolsvarta Jaguar XJ6 sem var bifreið hins eitilharða bjargvættar, Robert McCall, í spennuþáttunum The Equalizer sem sýndir voru í ár- daga Stöðvar 2, á árunum 1986 -87. Allt saman eftirlætisbílar á ýmsum bæjum og því talsverð tímamót hér á landi. Ekið vítt og breitt – og greitt Það var því með mikilli ánægju sem undirritaður þáði boð BL um að fá að prófa þá bíla sem BL mun flytja inn fyrsta kastið enda ekki á hverjum degi sem áhugasömum býðst að prófa flunkunýjan Jaguar – hvað þá nokkra! Farið var um höfuðborgarsvæðið, sem leið lá eftir Reykjanesbrautinni og haldið til Grindavíkur. Eftir stutta áningu og skál af humarsúpu var skipt um bíl og því næst haldið áfram meðfram Suðurnesveginum uns kom- ið var til Eyrarbakka. Þar var enn á ný skipt um bíl og Suðurlandsveg- urinn ekinn aftur til höfuðborgar- innar. Skemmst er frá því að segja að fyrstu kynni blaðamanns af þeim voru einkar ánægjuleg og ljóst að koma Jaguar á Íslandsmarkað verð- ur mörgum bílaáhugamanninum til ómældrar ánægju. Stórsýning í Hafnarhúsinu Um nýliðna helgi gafst boðs- gestum svo færi á að skoða Jaguar- línuna betur í húsnæði Listasafns Reykjavíkur við Tryggvagötu. Þar gat að líta sömu bíla og ekið var um Suðurnesin fyrr í mánuðinum – fólks- bílana Jaguar XE, Jaguar XF og sportjeppann Jaguar F-Pace. Þar að auki var sportbíllinn Jaguar F-Type Evrópufrumsýndur við sama tæki- færi og vakti hann mikla athygli, rétt eins og Jaguar E-Type frá árinu 1969 sem var hafður til sýnis í salnum af þessu tilefni. Sá bíll telst til sígildrar hönnunar í bílasögunni og er rétt að minna á orð hins eina sanna Enzo Ferrari um bílinn þann, en hann sagði einfaldlega: „The most beauti- ful car ever made“ eða að Jaguar E- Type væri fallegasti bíll sem nokkurn tímann hefði verið smíðaður. Hvað sem mönnum kann að finnast um það geta áhugasamið skoðað meðfylgj- andi myndir sem teknar voru er Jaguar-bílarnir voru prófaðir í hálfan dag hér á landi fyrr í þessum mánuði. Ítarlegri reynsluakstursgreinar munu svo birtast um bílana í næstu tölublöðum bílablaðsins og á mbl.is. jonagnar@mbl.is Loksins, loksins, loksins! Jaguar kominn til Íslands Jaguar XF Sportjeppinn Jaguar F-Pace tók sig vel út á fleygiferð um vegi Suðurlands. Jaguar F-Pace Jaguar XE 16 | MORGUNBLAÐIÐ Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur LEGUR Í BÍLA OG TÆKI Það borgar sig að nota það besta! TRAUSTAR VÖRUR ...sem þola álagið Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is Kúlu- og rúllulegur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.