Morgunblaðið - 28.02.2017, Blaðsíða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ
Í
ársbyrjun var alþjóðlegum hópi
blaðamanna boðið til Norður-
Finnlands, nánar tiltekið til
bæjarins Rovaniemi, til að
prófa ýmsar gerðir Subaru við ýms-
ar aðstæður sem þó áttu það sameig-
inlegt að vera ýmist snævi þaktar
eða ísi lagðar. Bílarnir áttu það aftur
á móti sammerkt að standa sig með
sóma við kaldar og krefjandi að-
stæður.
Inni í skógi, eða á braut í „drifti“
Bílarnir voru teknir til kostanna
við mismunandi aðstæður, allt eftir
gerð bílsins. Subaru Forrester og
Outback fengu að kynnast ójöfnum
skógarstígum í bland við aksturs-
brautir en sportbílarnir Subaru
WRX og BRZ fengu að spretta úr
spori á akstursbraut sem og á
hringlaga driftbraut, þar sem
undirritaður kynntist því af eigin
raun að það er snúnara en maður
kann að halda að keyra bílinn áfram
í jöfnu skriði. Talsvert mikið
snúnara, meira að segja.
Annars segja myndirnar meira
en mörg orð og því rétt að taka ekki
meira pláss undir texta en nú þegar
er orðið.
jonagnar@mbl.is
Ekið með
Subaru á
hjara veraldar
Subaru Forester ber nafn með rentu enda á heimavelli í skóginum.Subaru BRZ naut sín rækilega á ísilagðri braut, og fór mikinn.
Subaru Levorg hélt velli á svelli og rúmlega það.
Einn svalasti reynsluakstur seinni tíma – bókstaflega
Subaru WRX var í spriklandi stuði. Subaru XV skoraði skógarstíginn á hólm – og hafði sigur.
Skammdegisbirtan í Rovaniemi
fór Subaru-bílunum vel, eins
og landinn mátti vita enda
vinsælir bílar á Íslandi í áratugi.