Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 2

Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Niðurstöður fyrstu skipulögðu leitar- innar að skógarmítlum hér á landi verða kynntar á Hrafnaþingi Náttúru- fræðistofnunar Íslands (NÍ) í dag. Þar mun Matthías Alfreðsson, líffræð- ingur hjá NÍ, flytja erindi sem heitir „Hefur skógarmítill numið land á Ís- landi?“ Náttúrufræðistofnun barst beiðni sumarið 2015 um að taka þátt í evr- ópska verkefninu VectorNet. Það snýst um að rannsaka útbreiðslu sýklabera í Evrópu. Skógarmítillinn er í þeim hópi. Tveir sérfræðingar komu frá Bretlandi til að hefja rannsókn á skógarmítlum í samvinnu við NÍ og Tilraunastöð Há- skóla Íslands í meinafræði að Keldum. Skógarmítlar hafa fundist víða um land á hund- um, köttum og mönnum. Leitað var skipulega að skógarmítlum á 111 stöðum víða um landið með aðferð sem nefnist flöggun. Einnig var leitað á farfuglum, hagamúsum og refahræjum. Matthías sagði að skógarmítlar hefðu fundist á þremur stöðum. Leitað var í öllum helstu skógum landsins, trjálundum, útivistarsvæðum, görðum o.fl. Sýklar ekki fundist Skógarmítlar hafa verið sendir héð- an til útlanda þar sem leitað er að sýkl- um í þeim. Eftir því sem Matthías veit best hefur ekkert fundist í íslensku sýnunum. Hann stefnir að því að gera slíka rannsókn á næstunni. Engin dæmi eru um að fólk hafi smitast af Lyme-sjúkdómi eftir bit hér á landi. Þó hefur fólk greinst með sjúkdóminn hér og hefur verið hægt að tengja þau tilfelli við ferðalög erlendis. Fyrsti skógarmítillinn sem fannst hér á landi var á þúfutittlingi sem náð- ist í Surtsey í maí 1967. Öll innsend til- felli skógarmítla hafa verið skráð og varðveitt hjá NÍ og Tilraunastöð HÍ á Keldum frá árinu 1976. Fundu skógarmítla á þremur stöðum  Niðurstöður skipulagðrar leitar kynntar  Leitað var á 111 líklegum stöðum  Stefnt að rannsókn á sýklum Matthías Alfreðsson Skógarmítill er áttfætla og blóð- suga á spendýrum og fuglum. Hann heldur sig í gróðri, einkum skógarbotnum. Skógarmítlum hefur fjölgað í Evrópu. Útbreiðslusvæði þeirra hefur stækkað til norðurs og þeir finnast í meiri hæð yfir sjó en áður. Dreifingu skógarmítla fylgir ógn. Þeir geta borið með sér ýmsa sýkla, til dæmis Borreliu burgdor- ferii, sem veldur Lyme-sjúkdómi, og veiru sem getur valdið mítilborinni heilabólgu. Lundalús, eða lundamítill, og skógarmítill eru af sömu ætt. Lífsferill lundamítils er að mestu bundinn við sjófugla en hýslar skógarmítla eru bæði spendýr og fuglar. Frændi lundalúsar BLÓÐSUGA Á SPENDÝRUM OG FUGLUM Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Samþykktar voru á borgarstjórn- arfundi í gær þrjár tillögur Sjálf- stæðismanna um umferðarmál. Þá fyrstu lagði fram Marta Guðjóns- dóttir borgarfulltrúi en hún fjallaði um að hafnar yrðu viðræður við inn- anríkisráðuneytið um Sundabraut. Lendi ekki „ofan í skúffu“ Marta segir að mikilvægt sé að halda áfram með undirbúning að lagningu brautarinnar. Hún segist vona að málið lendi ekki „ofan í skúffu,“ líkt og gerst hafi þegar sambærileg tillaga var samþykkt árið 2013. „Ljúka verður að fullu því um- hverfismati sem byrjað var á, gera umferðarlíkan miðað við breyttar forsendur, arðsemismat og velja bestu staðsetningu brautarinnar með tilliti til slíkra forsendna. Þessi undirbúningsvinna tekur sinn tíma. Við megum ekki sofna á verðinum og vakna upp við þann vonda draum að hafa ekki unnið heimavinnuna þegar ekki verður lengur slegið á frest að hefjast handa við þessa samgöngubót,“ segir hún. Nýtt umferðarlíkan og mislæg gatnamót Kjartan Magnússon, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokks, lagði fram tillögu um að viðræður yrðu hafnar við Vegagerðina um gerð mislægra gatnamóta við gatnamót Reykjanes- brautar og Bústaðavegar. Tillagan var samþykkt með þeirri breytingartillögu borgarstjóra að orðin „gerð mislægra“ voru felld út og orðinu „útfærslu“ bætt inn. Kjartan segir Sjálfstæðismenn ítreka afstöðu sína um mislæg gatnamót enda hafi sérfræðingar Vegagerðarinnar komist að þeirri niðurstöðu. Lögðu Sjálfstæðismenn fram bókun um þessa skoðun sína. Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðismanna, lagði fram tillögu um að innleitt yrði nýtt umferð- armódel fyrir Reykjavík og aðliggj- andi svæði. Módelið felur í sér að mældir verði og tekið tillit til allra samgöngumáta, m.a. almennings- samgangna, hjólreiða, gangandi umferðar og fyrirhugaðrar borgar- línu. Þessi tillaga Sjálfstæðismanna var einnig samþykkt af borgar- stjórn í gær. Viðræður um Sundabraut  Tillaga Sjálfstæðismanna um Sundabraut samþykkt af borgarstjórn  Einnig tillaga um umferðarmódel  Útfærsla gatnamóta við Bústaðaveg til Vegagerðar Marta Guðjónsdóttir Kjartan Magnússon Það var rólegt yfir þessum mönnum, sem unnu í grunninum þar sem Exeter-húsið stóð einu sinni, enda nauðsynlegt að spá í spilin. Miklar fram- kvæmdir standa yfir í Tryggvaötu, Hafnarstræti og á Hörpureitnum, m.a. við hótelbyggingar. Sums staðar í miðborginni eru skilrúm á milli vinnusvæða og gangandi og akandi umferðar eins og sjá má til vinstri á myndinni. Aðstæður í vetur hafa yfirleitt verið óvenjugóðar til útivinnu. Miklar framkvæmdir í miðborginni Morgunblaðið/Eggert Spáð í spilin við Tryggvagötu Mislingar hafa verið staðfestir í níu mánaða gömlu barni hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef landlæknis. Barnið hafði dvalist með fjölskyldu sinni í Taílandi en leitað var til bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins 19. mars og sýni tekin í kjölfarið sem staðfestu mislinga. Barnið er óbólusett vegna ungs aldurs og þurfti ekki að leggjast inn á Barnaspítalann. Landspítali og heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins munu hafa samband við foreldra óbólusettra barna sem hugsanlega gætu hafa smitast af viðkomandi barni og bjóða þeim nauðsynlega þjónustu og ráðleggingar. Barnið er ekki í dagvistun. Faraldur síðast um 1977 Síðasti mislingafaraldur á Íslandi var um 1977 en skipulagðar bólu- setningar gegn sjúkdómnum hófust við tveggja ára aldur árið 1976. Síð- ast greindust mislingar hér á landi í barni árið 2014 en fullorðnum ein- staklingi í fyrra. Allt að 95% barna á Íslandi eru bólusett gegn mislingum ásamt rauðum hundum og hettusótt, sem er eitt hæsta hlutfall bólusettra barna í Evrópu. Mislingar geta reynst hættulegir einkum óbólusettum ungum börnum og ónæmisbældum einstaklingum. Veiran er mjög smitandi og berst milli manna með úða frá öndunar- færum. Níu mánaða barn með mislinga  95% barna á Íslandi bólusett Jón Gunnarsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur lagt fram frumvarp um breytingu á um- ferðarlögum. Í breytingunum felst að heimilt verði fyrir ráðherra og sveitarstjórnir að setja reglur um og innheimta gjald fyrir notkun bíla- stæða og þjónustu sem henni teng- ist, svo sem viðveru bílastæðavarða og salernisaðstöðu utan kaupstaða og kauptúna. Tilefni frumvarpsins er mikil fjölgun ferðamanna á undanförnum árum og mikilvægi þess að huga að aðstöðu við ferðamannastaði, bíla- stæðum og þjónustu sem henni tengist. Gjaldtakan á að standa straum af kostnaði við slíka upp- byggingu og þjónustu. Frumvarp um gjaldskyld bílastæði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.