Morgunblaðið - 22.03.2017, Page 8

Morgunblaðið - 22.03.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Viðskiptablaðið skrifar:    Lánshæfis-matsfyrir- tækið Standard & Poor’s hefur lækkað láns- hæfiseinkunn Och-Ziff Capital Management Group niður í ruslflokk.“    Þá segir: Och-Ziff er einn af nýj-um eigendum Arion banka, en Sculptor Investments s.a.r.l., sem er félag tengt Och-Ziff Capital Man- agement Group, á 6,6% í bankanum eftir lokað útboð á bankanum.    Í frétt MarketWatch kemur framað S&P hefur fært lánshæfis- einkunn sjóðsins úr BB+ niður í BB flokk, og að framtíðarhorfur sjóðs- ins séu neikvæðar, vegna þess að rekstur sjóðsins hafi versnað á síð- ustu misserum.    Á hálfu ári hefur gengi hluta-bréfa Och-Ziff lækkað úr 4,49 dollurum niður í 2,56 dollara á hlut. Í tilkynningu frá Arion banka vegna sölunnar á bankanum kemur eftirfarandi fram um sjóðinn: „Och- Ziff Capital Management Group er eitt af stærstu fyrirtækjum heims á sviði sérhæfðrar eignastýringar og er virði eigna í stýringu þess um 34 milljarðar dollara. Aðalstöðvar Och-Ziff eru í New York en fyrir- tækið er einnig með skrifstofur í London, Hong Kong, Mumbai, Beij- ing, Shanghai og Houston. Meðal fjárfesta Och-Ziff eru lífeyrissjóðir, sjóðasjóðir, stofnanir og styrktar- sjóðir, fyrirtæki og aðrar stofnanir, einkabankar og fjársterkir einstak- lingar.“    Þarna er hvergi minnst á Lúxem-borg eða Cayman-eyjar. Af hverju ekki? Púslin tínast til STAKSTEINAR Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is „Alþingi ályktar að fela ráðherra mennta- og menningarmála að kveða á um framtíðarhúsnæði Listaháskóla Íslands og leysa þannig til frambúðar þann húsnæðisvanda sem skólinn hef- ur búið við um langa hríð.“ Þannig hljóðar þingsályktunartil- laga sem Einar Brynjólfsson, þing- maður Pírata, er fyrsti flutningsmað- ur að, en 12 aðrir stjórnarandstöðu- þingmenn eru meðflutningsmenn hans að tillögunni. Alls höfðu í gær borist 20 umsagnir um frumvarpið til nefndasviðs Al- þingis, en umsagnirnar fara til alls- herjar- og menntamálanefndar Al- þingis. Umsagnirnar eru frá 14 einstak- lingum og Íslensku óperunni, Nem- endaráði Listaháskólans, Listahá- skólanum, Hönnunar- og arkítekt- úrdeild Listaháskólans, Hollnema- félagi Listaháskólans og forseta sviðs listadeildar Listaháskólans. Einstak- lingarnir sem veita umsagnir eru flestir nemendur Listaháskólans og umsagnirnar eru mjög keimlíkar, þar sem kvartað er yfir heilsuspillandi húsnæði og ófullnægjandi aðstöðu til þess að stunda nám og lýst yfir stuðn- ingi við þingsályktunartillöguna. Á ábyrgð stjórnvalda Við sama tón kveður í umsögnum mismunandi starfsmanna og deilda Listaháskólans. Þannig segir forseti sviðslistadeildar m.a. í umsögn sinni: „Listir og hönnun eru ein af grunn- stoðum í samfélaginu og er það ábyrgð stjórnvalda að hlúa að upp- byggingu fagsviðsins með því að tryggja listmenntun á háskólastigi viðeigandi aðbúnað. Ég hvet stjórnvöld að leysa sem fyrst þann brýna húsnæðisvanda sem steðjar að Listaháskólanum með var- anlegum lausnum sem hafa reisn lista og menningar að leiðarljósi og end- urspegla þau gildi sem þjóðin hefur.“ Allar umsagnir styðja tillöguna  Vilja að húsnæðisvandi Listaháskóla Íslands verði leystur til frambúðar Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð innanríkisráðherra og úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur, um að fallast beri á framsalskröfu pólskra yfirvalda vegna Pólverja, sem grunaður er um að hafa framið rán í Póllandi fyrir 14 árum. Maðurinn, sem hefur dvalið hér á landi frá árinu 2007, er sakaður um að hafa í desember árið 2003 verið þátttakandi í skipulögðum glæpa- samtökum. Hann hafi framið vopn- að rán með því að dulbúa sig sem lögreglumann og stöðva flutninga- bifreið, beita bílstjórann ofbeldi, hóta honum, binda hann á höndum og fyrir augu hans með límbandi og aka svo á brott í hinni stolnu bifreið með þann varning sem í henni var. Verðmæti bílsins og varningsins voru á gengi dagsins í dag talin rúmlega 5,2 milljónir króna. Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa komið hingað til lands til að vinna en ekki til að leynast fyrir pólskum yfirvöldum. Skilyrði fyrir framsali voru hins vegar talin fyrir hendi. Framseldur vegna vopnaðs ráns Hæstiréttur Fallist var á framsalskröfu. RECAST SVEFNSÓFI LÆKKAĐ VERĐ 119.900 kr. sófi sem breytist í rúm á augabragði - góð springdýna svefnflötur 140x200 cm Skemill kr. 33.200 BÆJARLIND 16 I 201 KÓPAVOGUR I SÍMI 553 7100 I LINAN.IS OPIÐ MÁN TIL FÖSTUDAGA 11 - 18 I LAUGARDAGA 11 - 16 Veður víða um heim 21.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 snjókoma Bolungarvík 1 skýjað Akureyri -2 heiðskírt Nuuk -1 alskýjað Þórshöfn 1 skúrir Ósló 5 skýjað Kaupmannahöfn 6 skúrir Stokkhólmur 8 heiðskírt Helsinki 3 skýjað Lúxemborg 7 skúrir Brussel 9 léttskýjað Dublin 6 skýjað Glasgow 5 rigning London 10 rigning París 9 skýjað Amsterdam 8 léttskýjað Hamborg 8 skýjað Berlín 10 skýjað Vín 16 skýjað Moskva 4 heiðskírt Algarve 15 skýjað Madríd 15 heiðskírt Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 18 heiðskírt Róm 19 heiðskírt Aþena 16 heiðskírt Winnipeg -12 léttskýjað Montreal 2 rigning New York 6 alskýjað Chicago 11 skýjað Orlando 23 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:20 19:50 ÍSAFJÖRÐUR 7:24 19:56 SIGLUFJÖRÐUR 7:07 19:39 DJÚPIVOGUR 6:50 19:20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.