Morgunblaðið - 22.03.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
TAX FREE
af öllum snyrtivörum og töskum í mars
kynning
miðvikud., fimmtud. og föstudag
Hinn 15. mars 1942 fórst bresk her-
flugvél í flugtaki frá Reykjavíkur-
flugvelli, um borð voru sjö manns
sem allir létu lífið. Til að minnast
þess að 75 ár eru liðin frá slysinu
komu liðsmenn sömu hersveitar og
hinir látnu tilheyrðu, 612. flugher-
sveitar RAF, til Reykjavíkur til að
minnast þeirra.
Alan Cowan, flugsveitarforingi,
sem fór fyrir Íslandsförum sveitar-
innar nú, sagði við minningarathöfn
við hermannagrafreitinn í Fossvogs-
kirkjugarði: „Margir úr mínu liði
hafa þjónað í Írak og Afganistan, en
það er mikilvægt fyrir núlifandi kyn-
slóð að minnast fórna þeirra sem á
undan okkur gengu. Nú vildum við,
á 75 ára afmæli slyssins, sjá til þess
að minning fallinna félaga gleymdist
ekki.“
Cowan fór fyrir sjö manna hópi úr
Flugsveit 612 í Íslandsheimsókninni,
en á dagskrá hennar var líka heim-
sókn til flugdeildar Landhelgisgæsl-
unnar og Isavia, auk móttöku hjá
breska sendiherranum.
Flugsveit 612 (County of Aber-
deen) Sqn RAuxAF var stofnuð í
Dyce í Aberdeen-skíri 1. júní 1937.
Sveitin var send til Íslands árið 1942
og þjónaði þar til stríðsloka. Í dag
skipa sveitina sérþjálfaðir bráðaliðar
í varaliði breska flughersins.
Forvera minnst Kransar sem Íslandsfarar Flugsveitar 612 lögðu að leiðum
áhafnarinnar sem fórst fyrir 75 árum og hvílir í Fossvogskirkjugarði.
Minntust fallinna
forvera 75 árum síðar
Opinber heimsókn forsetahjónanna
Guðna Th. Jóhannessonar og Elizu
Reid til Noregs hófst formlega í gær.
Þetta er önnur heimsókn forsetans ut-
anlands frá því að hann tók við emb-
ætti. Í för með forsetanum er Guð-
laugur Þór Þórðarson utanríkisráð-
herra, sendinefnd úr fræðasamfélagi
og viðskiptalífi og embættismenn.
Dagskrá forsetans var þétt í gær og
hófst á opinberri móttöku í norsku
konungshöllinni í Ósló. Guðni lagði síð-
an blómsveig við þjóðarminnisvarða
Norðmanna. Hann heimsótti norska
Stórþingið ásamt því að vera boðinn í
hádegisverð í konungshöllinni. Þetta
mun vera fyrsta opinbera heimsókn
forseta Íslands til Noregs síðan 1997.
Guðni hélt ræðu í Háskólanum í Ósló
í gær en hann mun síðar í ferðinni
halda ræðu í Háskólanum í Bergen.
Eliza Reid hélt einnig ræðu í Háskól-
anum í Ósló og talaði um jafnréttismál.
Á myndinni má sjá Harald 5. Nor-
egskonung, Guðna Th. Jóhannesson
forseta Íslands, Sonju Haraldsen
Noregsdrottningu og Elizu Reid for-
setafrú. Í bakgrunni sést Hákon krón-
prins.
Fyrsta opinbera heimsókn forseta Íslands til Noregs í tuttugu ár
Ljósmynd/Myriam Marti
Konung-
legar mót-
tökur í Ósló
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Kynningarfundur um nýtt sam-
starfsverkefni á sviði jarðhitarann-
sókna, GEOTHERMICA, var hald-
inn í gær, en að samstarfinu standa
Evrópusambandið og 13 Evrópu-
lönd, þ.á m. Ísland. Í verkefninu
felst m.a. að íslenskir vísindamenn
haldi út og hjálpi til við að heimfæra
jarðhitalausnir á Evrópskri grundu.
Orkustofnun fer fyrir verkefninu
fyrir Íslands hönd og ein milljón
evra hefur verið
lögð í sjóð verk-
efnisins, sem tel-
ur alls um 30
milljónir. Að
sögn Guðna A.
Jóhannessonar
orkumálastjóra
munu ein til tvær
milljónir evra
skila sér til baka.
„Það má segja
að bæði séum við það land sem
lengst er komið í hitaveituvæðingu í
heiminum og á undanförnum árum
og áratugum hafa verið byggðar
nokkrar jarðhitavirkjanir hér.
Menn líta til þess að það er reynsla
hér,“ segir hann.
Möguleikar á meginlandinu
Að sögn Guðna stendur ekki til að
fram fari frumrannsóknir á jarð-
hita.
„Þetta byggist á hagnýtingu
þeirra þekkingar sem þegar er fyrir
hendi til að koma jarðhitanum til
neytenda í Evrópu,“ segir hann.
Forsvarsmenn verkefnisins telja
að um 25 prósent Evrópulanda geti
nýtt sér jarðvarma, en Evrópusam-
bandið stefnir að því að fyrir árið
2050 komi 80 prósent allrar orku til
húshitunar frá endurnýjanlegum
orkugjöfum, þ.m.t. jarðhita.
„Hvað varðar lághita, til hitunar,
þá eru flest Evrópulönd með mögu-
leika til þess í einhverjum mæli. Svo
eru svæði í Evrópu sem eru mjög
gjöful, t.d. á sléttum í Ungverja-
landi, í Suður-Þýskalandi og inn í
Sviss og Alpana.“
Hefja samstarf um jarðhita
Ísland leggur milljón evra í samstarfssjóð Íslenskir vísindamenn til Evrópu
Guðni A.
Jóhannesson
Framhald verður á átaki stjórnvalda
til að stytta biðlista eftir völdum að-
gerðum. Óttarr Proppé heilbrigðis-
ráðherra hefur falið Sjúkratrygg-
ingum Íslands að semja við Land-
spítalann, Sjúkrahúsið á Akureyri og
Heilbrigðisstofnun Vesturlands um
að framkvæma valdar aðgerðir.
Um 840 milljónir af fjárlögum
þessa árs eru til ráðstöfunar en þetta
er annað árið af þremur sem átakið
nær til. Þær aðgerðir sem um ræðir
eru liðskiptaaðgerðir, hjartaþræð-
ingar og augasteinsaðgerðir líkt og í
fyrra en í ár er bætt við völdum kven-
sjúkdómaaðgerðum. Við valið á að-
gerðum var byggt á ráðgjöf land-
læknis.
Bæta við kven-
sjúkdómaaðgerðum