Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Opið kl. 11-18 virka daga Með einföldum aðgerðum er hægt að breyta stærð og lögun sköfunnar • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • Vinnuvistvænt Skínandi hreinir gluggar Komið í verslun okkar eða fáið upplýsingar í síma 555 1515. Einnig mögulegt að fá ráðgjafa heim. TOPPUR ehf Bifreiðaverkstæði TOPPUR er viðurkennt þjónustuverkstæði fyrir Skemmuvegi 34 • Kópavogi • Sími 557 9711 • toppur@toppur.is BAKSVIÐ Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsstofnun telur að nægilegur grundvöllur sé til að veita leyfi fyrir 1. áfanga landfyllingar við Elliðaár- vog miðað við það mat á umhverfis- áhrifum sem farið hefur fram. Á þessum landfyllingum á að rísa mikil íbúðabyggð vestan við núverandi Bryggjuhverfi, sem brátt verður fullbyggt. Skipulagsstofnun setur eftirfar- andi þrjú skilyrði fyrir leyfisveiting- unni.  Gengið verði úr skugga um hættu á mengun úr neðri lögum botnsets, í samráði við Heilbrigðis- eftirlit Reykjavíkur.  Framkvæmdasvæði verði af- markað með görðum eða öðrum að- gerðum til að takmarka eins og kost- ur er að grugg berist til búsvæða laxfiska á ósasvæði Elliðaánna. Haft verði samráð við Hafrannsókna- stofnun um útfærslu þeirra aðgerða.  Framkvæmdatími verði bund- inn við þann tíma árs þegar laxfiska er almennt ekki að vænta á ósasvæð- inu. Hinn 3. maí 2016 lagði Reykjavík- urborg fram frummatsskýrslu um landfyllingu í Elliðaárvogi til athug- unar hjá Skipulagsstofnun, sam- kvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum. Í framhaldinu leitaði Skipulagsstofnun umsagna um mál- ið hjá fjölda stofnana og fyrirtækja. Hinn 7. desember 2016 lagði Reykjavíkurborg fram matsskýrslu og óskað eftir áliti Skipulagsstofn- unar um mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Í matsskýrslu kemur fram að samkvæmt Aðalskipulagi Reykja- víkur 2010-2030 sé Elliðaárvogur eitt af þremur lykilsvæðum í fram- tíðaruppbyggingu borgarinnar. Markmið landfyllingar sé að fylgja eftir stefnumörkun aðalskipulagsins og styðja við þá stefnu með auknu framboði á byggingarlandi. Fram kemur í matsskýrslunni að heildarstærð fyllingar verði um 13 hektarar og sé efnisþörf gróflega áætluð um 1-1,2 milljónir rúmmetra. Fyllingin verði varin með sjóvarnar- görðum og sé áætluð grjótþörf í garðanna um 21.000 rúmmetrar. Gert sé ráð fyrir að gerð land- fyllingar geti tekið a.m.k. 3-4 ár eftir að framkvæmdaleyfi hafi verið gefið út. Fyllingarefni verður komið fyrir á svæðinu og það látið setjast til í ákveðinn tíma áður en framkvæmdir geti hafist. Í matsskýrslu kemur einnig fram að við gerð 1. áfanga, sem er áætl- aður 2,5 hektarar, verði nær ein- göngu notast við efni sem safnast hafi upp á athafnasvæði Björgunar. Það sem vantar upp á sé gert ráð fyrir að fáist með sjódælingu á efni. Samið hefur verið við Björgun um að fyrirtækið geri landfyllinguna en Björgun mun hætta starfsemi við Elliðaárvog í maí 2019. Þegar 1. áfanga sé lokið verði framhaldið metið með tilliti til niðurstaðna vökt- unar á laxfiskum. Viðkvæm staðsetning Eðli málsins samkvæmt er þessi staðsetning landfyllingarinnar við- kvæm vegna nálægðarinnar við ósa Elliðaánna. Rannsóknir hafi sýnt mikilvægi ósasvæðisins fyrir göngu- seiði sem og fullorðna laxa við lífeðl- isfræðilega aðlögun að breyttu selt- umagni. Í Elliðaám og Elliðavatni sé að finna allar tegundir ferskvatns- fiska hérlendis, þ.e. lax, bleikju, urr- iða, hornsíli og ál. Allar þessar teg- undir geti farið á milli ferskvatns og sjávar á einhverju tímaskeiði á lífs- ferlinu. Samkvæmt matsskýrslu sýna efnagreiningar jafnan styrk þung- málma í botnseti á svæðinu. Flest gildin flokkist sem lág eða mjög lág að undanskildum kopar og nikkel. Af þessum sökum verði lögð áhersla á að hreyfa botnset sem minnst við framkvæmdir. Niðurstaða rann- sókna á yfirborðslagi botnsets styðji það vinnulag að byggja garða til þess að loka af fyllingarsvæði að hluta sem komi í veg fyrir að grugg og mengað set berist frá svæðinu . Grænt ljós gefið á landfyllingu  Leyfi verður veitt fyrir 1. áfanga landfyllingar í Elliðaárvogi  Gerð landfyllingar geti tekið 3-4 ár  Takmarka verður eins og kostur er að grugg berist til búsvæða laxfiska á ósasvæði Elliðaánna Elliðaárvogur Hugmynd að útliti. 1. áfangi landfyllingar lengst til vinstri. Í mats- skýrslu kemur fram að rann- sóknir sýni að laxaseiði dvelji að meðaltali 54 klst. á ósa- svæðinu. Virðist það vera aðlögunartími að breyttu umhverfi, þ.e. salt- vatni. Eftir að seiðin hafi farið af stað frá ósasvæðinu gangi þau nokkuð rakleitt til hafs og taki ferðin út fyrir Viðey 21 klst. að meðaltali. Fullorðnir laxar sem sleppt var við Gróttu og Kjalarnes voru 9 sólarhringa að koma til baka inn á ósasvæðið og dvöldu þar um 8 sólarhringa áður en þeir gengu upp í Elliðaár. Af því megi ráða að fiskar staldri við á ósasvæðinu bæði þegar þeir eru að ganga frá ferskvatni til sjávar og öf- ugt. Þeir séu viðkvæmir á þessu stigi vegna mikilla breytinga á líkama þeirra. Halda til á ósasvæðinu RANNSÓNIR Á LAXFISKUM Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þau Vilhjálmur Árnason (fyrsti flutn- ingsmaður), Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir og Hildur Sverrisdóttir, flytja þingmannafrumvarp um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga, með þeirri breytingar- tillögu að lágmarksútsvar verði af- numið. Sambærileg frumvörp hafa verið lögð fram á Alþingi fjórum sinnum á undanförnum árum en hlutu ekki afgreiðslu. Þrjú sveitarfélög hafa þegar skil- að umsögnum sínum og eru þau öll neikvæð í garð frumvarpsins. Sveit- arfélögin eru Hveragerði, Norður- þing og Seyðisfjörður. Hveragerði og Norðurþing eru sýnu neikvæðari en Seyðisfjörður. Ákveðinn hópur launamanna Bæjarráð Hveragerðisbæjar fundaði um málið nýverið og gerði samþykkt, þar sem segir m.a.: „Bæj- arráð telur að afnám lágmarksútsv- ars brjóti gegn anda þess jafnræðis sem við sem þjóð viljum að ríki í okkar samfélagi og því leggst bæjar- ráð eindregið gegn samþykkt frum- varpsins.“ Í samþykkt bæjarráðsins segir að frumvarpið virðist ekki snúast um að efla tekjustofna sveitarfélaga eða innbyrðis skiptingu þeirra heldur snúist það um að ákveðinn hópur launamanna á Íslandi skuli hafa möguleika á að sleppa að miklu eða öllu leyti við að greiða útsvar af launatekjum sínum þegar tekin sé ákvörðun um búsetu. „Á Íslandi sem og á öðrum löndum á Norðurlöndum hefur verið sátt um þá afstöðu að all- ir launþegar skuli greiða ákveðinn hluta af launum til samfélagslegra verkefna, skiptir þá fjárhagsleg staða viðkomandi sveitarfélags ekki máli. Bæjarráð bendir á að ef frumvarp sem þetta ætti að verða að lögum yrði samhliða að gera gagngerar breytingar á öðrum greinum laga um tekjustofna sveitarfélaga til að komið verði í veg fyrir að sveitar- félög sem í dag hýsa til dæmis stöðv- arhús vatnsaflsvirkjana eða stórar ríkisstofnanir gætu hyglað íbúum sínum fjárhagslega á grundvelli tekna sem þessi mannvirki veita,“ segir þar ennfremur. Byggðaráð Norðurþings fundaði um málið hinn 20. mars og gerði eft- irfarandi samþykkt: „Byggðarráð leggst alfarið gegn markmiðum frumvarps til laga um tekjustofna sveitarfélaga um afnám lágmarks- útsvars og felur sveitarstjóra að koma þeim skilaboðum til Alþingis og þingmanna kjördæmisins.“ Bæjarráð Seyðisfjarðar fundaði um frumvarpið hinn 15. mars sl. Í bókun fundarins segir m.a.: „Bæjar- ráð veitti umsögn um frumvarp sama efnis 26.11.14. Bæjarráð árétt- ar fyrri umsögn sem er eftirfarandi. „ Bæjarráð telur að huga þurfi að tekjuöflun og tekjustofnum sveitar- félaga með heildrænum hætti, áður en farið er í þá breytingu sem lögð er til í frumvarpinu.“ Frumvarpið brjóti gegn anda jafnræðis  Umsagnir um afnám lágmarksútsvars eru neikvæðar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Alþingi Óli Björn Kárason (lengst til hægri) er formaður efnahags- og við- skiptanefndar Alþingis sem nú er að fjalla um afnám lágmarksútsvars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.