Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Siglfirðingurinn Lárey Valbjörnsdóttir fagnar 40 ára afmæli sínuí dag, en hún býr í Úlfarsárdal í Reykjavík og kennir þar í Dal-skóla. Dalskóli er hvort tveggja leikskóli og grunnskóli, en Lárey er einmitt bæði leikskólakennari og grunnskólakennari. Hún hóf störf í Dalskóla í janúar 2011 í leikskólanum, sem deildar- stjóri og síðar sem sérkennslustjóri þar til í vetur þegar hún fór að vinna sem sérkennari í grunnskólahlutanum. „Ég er að kenna á yngsta stigi, aðallega í 1. til 3. bekk, og er að styðja við börn sem eru með ýmiss konar sérþarfir eins og einhverfu og ADHD og bara þar sem mín er þörf.“ Áhugamál Láreyjar eru að vera með fjölskyldunni, útivist, ferðalög og svo stundar hún jóga. „Ég gaf mér í afmælisgjöf að fara í jógaferð til Taílands í janúar. Ég fór með jógastöð sem heitir Sólir og það var 25 manna hópur sem fór í þessa ferð. Þetta var alveg geggjuð upp- lifun og ég mæli með svona ferð hvort sem maður er nýbyrjaður að stunda jóga eða kominn með bakgrunn. Það skiptir ekki máli hvar maður er staddur.“ Í tilefni afmælisins ætlar Lárey að bjóða fjölskyldunni í mat í kvöld. Eiginmaður Láreyjar er Baldur Þórir Baldursson bifvélavirki en hann á verkstæði sem heitir Technik. Börn þeirra eru Birgitta Ósk 18 ára, Viktor Máni 12 ára og Ingdís Una 8 ára. Gaf sjálfri sér jóga- ferð í afmælisgjöf Lárey Valbjörnsdóttir er fertug í dag Í Taílandi Lárey við Emerald-vatn á eyjunni Ko Mae Ko. T ómas Júlían Höiriis fæddist 22. mars 1957 í Keflavík og ólst þar upp. Hann dvaldi eitt sumar í sveit hjá dönsk- um ættmennum sínum í föðurætt. Tómas gekk í Gagnfræðaskóla Keflavíkur og var einnig tvo vetur að Núpi í Dýrafirði. Hann fór í Iðn- skólann í Reykjavík og Keflavík og útskrifaðist sem vélvirki. Tómas vann hjá Skipadeild SIS sem unglingur og sigldi til Evrópu- landa á skipunum Arnarfelli og Hvassafelli. „Ég lærði vélvirkjun í Vélsmiðjunni Óðni í Keflavík og eft- ir útskrift úr því námi fór ég til Noregs og vann þar á borpöllum í tæp tvö ár. Vann síðan hjá Kefla- víkurverktökum á flugvellinum áð- ur en ég gerðist slökkviliðsmaður hjá Varnarliðinu og vann þar í tutt- ugu ár. Ég lærði sportköfun sem unglingur og stundaði sportköfun og seinna meir sportköfunar- kennslu í hartnær 35 ár. Ég starf- aði lengi vel í Björgunarsveitinni Stakk úr Keflavík-Njarðvík.“ Tómas stofnaði Sportköfunar- skóla Íslands 1997 og Umhverfis- Tómas Knútsson umhverfisverndarmaður – 60 ára Á Kúbu „Við Magga höfum mjög gaman af því að ferðast til framandi staða og var Kúba alveg sérstaklega skemmti- legt land að heimsækja. Ég gerði lista yfir tíu atriði sem ég þarf að gera og að heimsækja Kúbu var eitt þeirra.“ Berst fyrir hreinsun sjávar og fjöru Tommi og dætur Karen Lind, Tommi og Eygló Anna. Magga og dætur Sabína Siv, Auður Björg, Nína Ósk og Magga. Reykjavík Alma Ein- arsdóttir fæddist 1. apríl 2016 kl. 16.41 á Landspítalanum í Reykjavík. Hún vó 2.965 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Einar Njálsson og Sif Ragnarsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.