Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 27

Morgunblaðið - 22.03.2017, Síða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 verndarsamtökin Bláa herinn 1995 og hann kom einnig að stofnun Íþróttafélagsins NES árið 1991. Störf Bláa hersins hafa vakið verð- skulduaða athygli undanfarna tvo áratugi og hafa samtökin og stofn- andi fengið fjöldann allan af viður- kenningum, m.a. náttúruverndar- viðurkenningu Sigríðar í Brattholti árið 2014, umhverfisviðurkenningu Pokasjóðs og UMFÍ, umhverfisvið- urkenningu Reykjanesbæjar og verið þrisvar tilnefndur til um- hverfisverðlauna Norðurlandaráðs. „Í dag rek ég Bláa herinn og tek þátt í þeirri baráttu sem hann stendur fyrir hverju sinni, stend fyrir fjöruhreinsunarverkefnum, held fyrirlestra, heimsæki skóla og fyrirtæki og skrifa ráðamönnum þjóðarinnar og sveitarstjórnar- mönnum hvatningarbréf um að hafa umhverfi sitt eins hreint og hægt er. Blái herinn hefur hreinsað 1.300 tonn af rusli úr náttúrunni og notað samvinnufúsar hendur yfir 2.500 sjálfboðaliða sem hafa eytt sem næst 54 þúsund vinnustundum í okkar verkefni. Umhverfismál og fjölskyldan á allan minn hug og hjarta í dag.“ Fjölskylda Maki Tómasar er Magga Hrönn Kjartansdóttir, f. 15 7. 1962, hús- móðir. Foreldrar hennar: hjónin Kjartan Jóhannsson sjómaður, f. 1921, d. 1977 og Nína Sveinsdóttir fiskverkakona, f. 1933, d. 1990. Fyrri maki Tómasar er Sólveig Guðmundsdóttir, f. 22.4. 1959, hjúkrunarfræðingur. Börn Tómasar og Sólveigar: 1) Eygló Anna, f. 1977, hjúkrunar- fræðingur og flugfreyja, maki: Sig- urður Stefánsson, f. 1977, flugvirki. Börn: Guðmundur Freyr, f. 2000, Stefán Júlían, f. 2003, Tómas Aron, f. 2010 og Samúel Friðjón, f. 2016. Bús. í Reykjanesbæ; 2) Karen Lind, f. 1984, flugfreyja, maki: Davíð Þór Sveinsson, f. 1988, flug- virki. Barn þeirra er Snædís Lind, f. 2016. Bús. í Reykjanesbæ. Stjúp- börn: 3) Nína Ósk Kristinsdóttir, f. 1985, grunnskólakennari, maki: Guðmundur Gunnarsson, f. 1983, afgreiðslumaður. Börn: Emelía Ósk, f. 2008 og Aníta Ósk, f. 2015. Bús. í Sandgerði; 4) Auður Björg Kristinsdóttir, f. 1987, umönnunar- starfsmaður. Börn: Benóný, f. 2009 og Freyja, f. 2011. Bús. í Noregi; 5) Sabína Siv Sævarsdóttir, f. 1994, umönnunarstarfsmaður, unnusti Ásbjörn Sólberg Pálsson, f. 1990. Barn: Baltasar Sólberg, f. 2016. Bús. í Reykjanesbæ. Systkini: María Knútsdóttir Bengtsson, f. 1954, bús. í Svíþjóð, Björn Ingi Knútsson, f. 1961, verk- efnastjóri, bús. í Kjósinni. Hálf- systkini sammæðra: Ólafur Reynir Sigurjónsson, f. 1944, tollvörður, bús. á Selfossi. Hálfsystkini sam- feðra: Atli Rafn Kristinsson, f. 1947, íslenskufræðingur, bús. í Reykjavík; Margrét Elísabet Knútsdóttir, f. 1973, ljósmóðir, bús. í Reykjanesbæ. Uppeldissystkini: Guðmann Héðinsson, f. 1953, smið- ur, bús. í Reykjanesbæ; Ólafía Héð- insdóttir, f. 1956, ræstitæknir, bús. í Noregi; Sigurjón Héðinsson, f. 1958, bakari, bús. í Reykjanesbæ. Foreldrar Tómasar: Knútur Höiriis, f. 22.5. 1922, d. 20.4. 1993, stöðvarstjóri Esso á Keflavíkur- flugvelli, og k.h. Anna Nikulásdótt- ir, f. 5.9. 1924, d. 12.4. 2007, hús- móðir í Keflavík, síðar í Svíþjóð. Þau skildu. Stjúpmóðir Tómasar og seinni kona Knúts er Elín Ólöf Guðmannsdóttir, f. 28.7. 1934, fv. skrifstofumær, bús. í Reykjanesbæ. Úr frændgarði Tómasar Knútssonar Tómas Júlían Höiriis Knútsson Helga Bjarnadóttir húsfreyja á Hreimsstöðum Helgi Árnason bóndi á Hreimstöðum í Norðurárdal, Borgarfirði Jónína Guðbjörg Helgadóttir húsfreyja í Reykjavík Nikulás Árni Halldórsson trésmiður í Reykjavík Anna Nikulásdóttir húsfreyja í Keflavík, síðar í Svíþjóð Þórdís Nikulásdóttir húsfreyja í Reykjavík Halldór Þorsteinn Halldórsson bóndi í Reykjavík Kristín Nikulásdóttir húsmóðir í Reykjavík Halldór Nikulásson bílamálari í Reykjavík Árni Helgason íþróttafrömuður í Borgarnesi og á Langárfossi Guðbjarni Helgason bóndi í Straumfirði á Mýrum Rannveig Helgadóttir húsfr. á Grímarsstöðum í Andakíl, Borg. Sigrún Guðbjarnadóttir húsfr. í Borgarnesi Teitur Daníelsson bóndi á Grímarsstöðum Þórhallur Teitsson kvikmyndatökum. á Hvanneyri Örn Árnason leikari Nikulás Halldórsson skipstjóri hjá Eimskip Halldór Helgi Halldórsson bílamálari í Reykjavík Guðrún Tómasdóttir húsfreyja á Ytra-Vatni Skúli Jónsson bóndi á Ytra-Vatni, Lýtingsstaðahr., Skag. Björn Skúlason vann hjá Heildverslun Ásgeirs Sigurðarsonar í Reykjavík Margrét Elísabet Höiriis stofnaði og rak Sápuhúsið í Rvík Knútur Höiriis stöðvarstjóri Esso á Keflavíkurflugvelli Juliane Höiriis húsfreyja í Danmörku Thomas Höiriis bóndi í Danmörku 90 ára Kjartan Friðriksson Þórunn Theódórsdóttir 85 ára Eygerður Bjarnadóttir Jóhanna Andrésdóttir Sigríður Bjarnadóttir 80 ára Ásgerður Svandís Skúlad. Birgir Olsen Edvarð Júlíus Sólnes Gréta Sína Jónsdóttir Hörður Sigurðsson Jóhann Árnason Oddný Vilhjálmsdóttir 75 ára Ásgeir Jónsson Ásgerður Snorradóttir Eggert Thorberg Gíslason Guðbjörn Jósepsson Móses Geirmundsson Sigríður Matthíasdóttir Þórunn Árnadóttir 70 ára Anna Elísabet Ásgeirsdóttir Erla Ólafsdóttir Halldór Rúnar Guðmundss. Haraldur Gunnar Haraldss. Sæmundur Jóhannsson 60 ára Atli Már Sigurðsson Ásta María Björnsdóttir Guðmundur Geirsson Hafberg Magnússon Jósef Rúnar Magnússon Kristín Guðjónsdóttir Krystyna Barbara Bubrzyk Magnús I. Guðjónsson Margrét Helena Másdóttir Pálmi Stefánsson Ragnheiður B. Guðjónsd. Sigurður Tryggvi Sigurðss. Stefán Vestmann Tómas J. Höiriis Knútsson Tryggvi Björn Tryggvason Þorsteinn Bjarnason Þóra Ársælsdóttir Þórhildur Hjaltadóttir 50 ára Birna Metúsalemsdóttir Jan Stanislaw Baziak Lilja Björk Brown Sigríður Guðjónsdóttir Sigrún Guðbj. Guðmundsd. Sigurveig Halldórsdóttir Þórdís Anna Baldursdóttir 40 ára Baldur Rafn Gylfason Björn Traustason Brynhildur S. Hafsteinsd. Davíð Steinar Þorvaldsson Dominik Sebastian Bielecki Eiður Már Guðbergsson Freyja Kjartansdóttir Gunnar Örn Gunnarsson Katarína Hannelová Katarzyna B. Slusarek Lárey Valbjörnsdóttir Nhi Thy Tran Pham Nína Ýr Nielsen Sigríður María Atladóttir Stefán Örn Gunnlaugsson 30 ára Bryndís Hjálmarsdóttir Eva Björnsdóttir Eydís Flosadóttir Helga Guðmundsdóttir Jóhanna Guðrún Magnúsd. Jón Páll Hilmarsson Linda Björg Halldórsdóttir Magnea Kristín Snorrad. Mateusz Jan Kiwitt Pasong Srisutrum Ragnhildur B. Theodórsd. Rósant Rósantsson Snjólaug Ásta Hauksdóttir Til hamingju með daginn 30 ára Linda er Hafnfirð- ingur og er þjónustu- ráðgjafi í Arion banka. Maki: Ragnar Breiðfjörð Guðmundsson, f. 1987, sendibílstjóri. Börn: Tómas Ingi, f. 2012. Foreldrar: Halldór Jón Einarsson, f. 1960, járn- smiður hjá Héðni, og Lena Sædís Kristinsdóttir, f. 1962, aðstoðarmaður sjúkraþjálfara á Hrafnistu, Þau eru búsett í Hafnar- firði. Linda Björg Halldórsdóttir 40 ára Baldur er úr Graf- arvogi og býr í Kópavogi. Hann er hárgreiðslu- meistari og á heildversl- unina bpro. Maki: Sigrún Bender, f. 1985, flugmaður hjá Ice- landair. Börn: Tristan Gylfi, f. 2001, Baltasar Guð- mundur, f. 2008, og Alex- ander Hugo, f. 2015. Foreldrar: Gylfi Skúlason, f. 1956, og Aðalbjörg Baldursdóttir, f. 1956. Baldur Rafn Gylfason 40 ára Freyja er úr Hafn- arfirði en býr í Reykjaborg í Mosfellsbæ. Hún er lista- maður. Maki: Sigurjón Örn Ólafs- son, f. 1973, sjómaður á Ásbirni hjá Granda. Börn: Kristín Sæunn, f. 2007. Foreldrar: Kjartan Þórð- arson, f. 1953, öryggis- fulltrúi hjá Samgöngu- stofu, og Kristín Sæunn Guðbrandsdóttir, f. 1953, d. 1998, húsmóðir. Freyja Kjartansdóttir María Ágústsdóttir hefur varið dokt- orsritgerð sína í samkirkjulegri guð- fræði við Guðfræði- og trúarbragða- fræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Að taka við „hinum“. Lifuð reynsla af Oikou- mene sem veruleika er lýsir hag- nýtum, félagslegum og andlegum tengslum (Receiving the Other. The Lived Experience of Oikoumene as a Practical, Relational, and Spiritual Reality). Aðalleiðbeinandi Maríu var Einar Sigurbjörnsson, nú prófessor emeritus við Háskóla Íslands. Meginrannsóknarefni ritgerðar- innar snýr að því að greina lifaða reynslu fólks af samskiptum og samstarfi kristinna trúfélaga, fyrir- bæri sem táknað er hér með gríska hugtakinu Oikoumene. Gerð er til- raun til að lýsa og túlka fyrirbærið með það fyrir augum að bæta gæði þess út frá eftirfarandi rannsóknar- spurningu: Hver er lifuð reynsla leiðtoga innan kristinna trúfélaga á Íslandi, sem hafa tekið virkan þátt í samkirkjulegu starfi, af slíku sam- starfi, með áherslu á hvað sameinar og hvað sundrar? Gögnum var safn- að með eigindlegum viðtölum við fjórtán aðila, kon- ur og karla. Í ljós kom að reynsla þeirra af fyrir- bærinu sneri að þremur þáttum: Í fyrsta lagi því sem varðar hag- nýtt samstarf og kristniboð, í öðru lagi því sem snertir tengsl og við- horf og í þriðja lagi því sem greina má sem andlega eða guðfræðilega iðkun. Þessir þrír þættir móta persónu- lega og trúarlega sjálfsmynd, þar með talið þá sjálfsmynd sem teng- ist trúfélagsaðild, og hafa haft djúp áhrif á líf þátttakendanna í rann- sókninni. Einkum virðist þátttaka í samkirkjulegu starfi leiða til opnara og móttækilegra hugarfars gagnvart öðrum trúfélögum og öðru fólki, „hinum“. Þannig lýtur megininntak rannsóknarinnar að persónulegum tengslum frekar en kerfum og stofnunum. Engu að síður eru settar fram nokkrar tillögur um á hvaða hátt megi bæta gæði kirkjulegra tengsla almennt. María Ágústsdóttir María Ágústsdóttir er fædd á Egilsstöðum árið 1968. Hún lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og prófi í uppeldis- og kennslufræði frá sama skóla árið 1994. María hefur sinnt prestsþjónustu í vesturhluta Reykjavíkur frá árinu 1993 og verið formaður Samstarfsnefndar kristinna trúfélaga á Íslandi frá árinu 2002. Eiginmaður Maríu er Bjarni Þór Bjarnason og börn hennar eru fimm, Kolbeinn, Ragnhildur, Guðný Lára, Guðrún María og Nína Björg. Doktor EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.