Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 22.03.2017, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 2017 Sportgleraugu Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 www.eyesland.is Red Bull Bullseye kr. 23.490,- 2024 SLT L iðLé t t ingur Verð kr 2.790.000 Verð með vsk. 3.459.600 Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is 15 ár á Íslandi nefnist ný heimildar- mynd eftir Jón Karl Helgason sem verður frumsýnd á morgun í Bíó Paradís. Í henni fjallar Jón um líf taílenskrar fjölskyldu sem fluttist til Íslands í upphafi aldarinnar í leit að betra lífi en elsta dóttirin varð eftir í Taílandi. Jón myndaði daglegt líf fjölskyldumeðlima og beinir m.a. sjónum að baráttu þeirra við að að- lagast íslensku samfélagi og ná þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér. Jón hóf um aldamótin að leita að innflytjendafjölskyldu til að fylgjast með. „Ég beið í tvö ár og á meðan kemur fjölskyldufaðirinn og farand- verkamaðurinn Praneet Khongch- umchuen til landsins. Þegar fjöl- skyldan sameinast, árið 2003, byrja ég að mynda hana en myndin heitir 15 ár á Íslandi af því hann er búinn að vera 15 ár á Íslandi. Ég er ekki búinn að mynda þau í 15 ár en ég byrjaði fyrir 15 árum að leita að fjöl- skyldu,“ segir Jón. Hann hafi mynd- að fjölskylduna reglulega allt til árs- loka 2016. Spurður að því hvers vegna hann hafi ákveðið að gera heimildarmynd um þetta efni segir Jón að á þessum árum, upp úr aldamótum, hafi verið mikill straumur innflytjenda til Ís- lands, fólks sem tók að sér störf sem Íslendingar höfðu ekki áhuga á. Jón segir Praneet sögumanninn í mynd- inni og að hann tali ensku. „Honum hefur því miður aldrei tekist að læra íslensku,“ segir Jón. Hvað varðar umfjöllun um inn- flytjendamál í fjölmiðlum segir Jón að hún sé alltaf mikil fyrir kosningar og þær hafi verið nokkrar á þessum 15 árum. „Það sem ég geri í mynd- inni er að nýta mér fréttamiðlunina. Ég safnaði öllum gögnum um inn- flytjendamál og í myndinni flytja þulir þessar fréttir. Við sjáum aldrei fréttamanninn en við heyrum í hon- um á sama tíma og þessi fjölskylda er að kaupa sér íbúð, halda árshátíð Taílendingafélagsins eða minning- arathöfn,“ útskýrir Jón. „Það er ís- lenski vinkillinn á myndina.“ Einhliða umfjöllun Jón segir umfjöllun um innflytj- endamál á Íslandi frekar einhliða. „Það er yfirleitt fjallað um innflytj- endur þegar vel gengur í þjóðfélag- inu og líka þegar illa gengur, þá eykst prósentuhlutfall þeirra sem eru á móti innflytjendum. Það er aldrei fjallað um innflytjendamál á svipaðan hátt og um íslensku þjóð- ina; hvernig gengur henni, hvernig er staðan í launamálum, atvinnu- ástandið, hvað erum við að aðhafast og þess háttar. Hvernig líður inn- flytjendum, t.d.?“ spyr Jón og bend- ir um leið á að innflytjendur séu líka með tilfinningar. „Þannig varð mað- ur var við þetta á þessum 15 árum, auðvitað komu fram sérfræðingar sem ég vitna í í myndinni, dr. Hall- fríður [Þórarinsdóttir, mannfræð- ingur] o.fl., sérfræðingar sem benda t.d. á að brottfall þessa fólks úr framhaldsskólum er mikið,“ segir Jón. Þar komi til íslenskukunnátta innflytjenda, hún sé aðalmálið. „Við höfum ekki lagt nógu mikla áherslu á að kenna þessu fólki íslensku og í skólum þurfa að vera úrræði til að hjálpa því,“ segir hann. Jón vonast til að myndin hvetji til aukinnar umræðu um innflytjenda- mál, opni huga Íslendinga fyrir lífs- baráttu innflytjenda og opni áhorf- endum sýn inn í framandi menning- arheim Taílendinga hér á landi og auki þannig þekkingu og virðingu á milli ólíkra menningarheima. „Við þurfum á þessu fólki að halda. Þetta er fólkið sem viðheldur mannfjöld- anum á Íslandi og fyllir störf sem hefur ekki tekist að manna með inn- lendu vinnuafli.“ „Við þurfum á þessu fólki að halda“  Ný heimildarmynd Jóns Karls Helgasonar frumsýnd Búddamessa Úr heimildarmynd Jóns Karls Helgasonar, 15 ár á Íslandi. Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Víkingur Heiðar Ólafsson heldur sína fyrstu einleikstónleika í Eld- borgarsal Hörpu á föstudagskvöldið kemur. Tónleikana heldur hann í til- efni af útgáfu fyrstu plötu sinnar hjá hinni virtu útgáfu Deutsche Grammophon en á henni leikur Vík- ingur úrval etýða eftir tónskáldið Philip Glass. Með útgáfu plötunnar í janúar síðastliðnum hylltu einleik- arinn og útgáfan tónskáldið á átt- ræðisafmælinu. Á tónleikunum flytur Víkingur verkin á diskinum og fær einnig til liðs við sig Strokkvartett- inn Sigga við flutning á tveimur nýj- um umritunum á verkum Glass. Undanfarið hefur Víkingur Heiðar komið fram á mörgum tónleikum víða í Evrópu og leikið etýður Glass við mjög góðar viðtökur. Þá hefur verið fjallað um útgáfu disksins í fjöl- miðlum víða um lönd og hafa dómar verið afar lofsamlegir. Á vef þýska blaðsins Die Welt segir til að mynda að Víkingur Heiðar sé aflgjafi klass- ískrar tónlistar á Íslandi um þessar mundir og hann sé boðberi „íslenskr- ar, norrænnar tónlistar“. Í fyrirsögn umsagnarinnar segir að þegar þessi píanóleikari eigi í hlut verði „tómið aldrei leiðinlegt“. Þá segir að Glass krefjist þess að flytjandinn gefi meira af sér en flest önnur tónskáld og Víkingur Heiðar skilji etýður hans fyrir það sem þær eru og gefi þeim lausan tauminn: „Þær eru list tímans þar sem gert er að leik að við – túlkendur og áheyrendur – breyt- umst við endurtekningu mynstra. Að þess vegna séu alls engar endurtekn- ingar.“ Og rýnir franska dagblaðsins Le Monde líkir tilfinningunum í túlkun píanóleikarans við eldfjallahrær- ingar, hrósar tækni hans í hástert og segir túlkunina afar persónulega. Áhorfendum sé boðið í ferðalag fullt af óvæntum uppákomum, lífskrafti og ljóðrænu. Ævintýralegur tími Víkingur staðfestir að tónleikahald undangenginna vikna hafi gengið vel. „Ég hélt eina „hreina“ tónleika með verkum Glass í Konzerthaus í Berlín og það var uppselt og mikil stemn- ing. Annars hef ég undanfarið leikið verk eftir Glass og Bach saman, sem fer ótrúlega vel,“ segir hann og bæt- ir við að hann hafi gætt þess að end- urtaka sig ekki frá einum tónleikum til þeirra næstu. „Það hefur gengið vel og þetta hefur verið ævintýralegur tími. Fólk virðist vera spennt fyrir því núna að hlusta á verk eftir Glass. Það er stemning fyrir þessari músík og margir hafa orð á því að þeir séu að koma aftur að henni eftir að hafa sett hana í dvala um tíma. En þetta er fyrsta heila platan með tónlist eftir Glass sem Deutsche Grammophon gefur út í ein 20 ár. Margir harðkjarna klassískir áheyr- endur undrast greinilega hvað það er mikið í þessari tónlist en margir hafa haft allt of einfalda mynd af honum sem listamanni.“ Um margar leiðir að velja Í skrifum um diskinn tala margir rýnar um að Víkingur taki píanó- tónlist Glass afar persónulegum tök- um, túlki hana og leiki til að mynda á allt annan hátt en Glass sjálfur. „Tíminn vinnur alltaf með góðri tónlist,“ segir hann. „Og þegar tón- list býður upp á jafn marga mögu- leika og þessi, þá græðir tónlistin á tímanum sem líður og því að sífellt fleiri flytjendur komi að henni. Jú, ég leik verkin á talsvert annan hátt en má heyra í fyrri upptökum. Það sýnir vel hvað það er um marg- ar leiðir að velja. Upptakan er ein leið og svo legg ég mig eftir því að leika verkin öðruvísi í hvert sinn. Þegar maður leikur jafn mikið af ákveðnu efni þetta oft, þá finnst mér það mikilvæg áskorun að vera sífellt að endurhugsa verkin, að endurtaka mig ekki og ekki taka neinu sem gefnu. Það má til dæmis breyta tempói og þá öðlast verkin annað líf, þótt þetta sé áfram mjög konkret tónlist.“ Víkingur segist mjög ánægður með margt á nýja diskinum en hann njóti þess samt að þróa verkin áfram. „Ætli diskurinn sé ekki ein- hverskonar miðja í þessu ferli. Ég tók verkin öll upp á tveimur dögum í Hörpu í október en á föstudag renn- ur upp nýr dagur, þá er hálft ár liðið frá upptökunum og ég hef síðan leik- ið á mjög mörgum tónleikum!“ Þakklátt að segja frá Glass Hann segist vissulega vera ánægð- ur með þær góðu viðtökur sem disk- urinn hefur fengið, þótt fólk eigi ekki að taka of mikið mark á dómum, góðum eða slæmum. „Mér finnst að fólk eigi bara að hlusta sjálft á tón- listina og vera með henni eða á móti! Ég átti annars von á því að einhverji yrði neikvæðari, því í klassíska heim- inum hafa menn nokkuð skipst í fylkingar í afstöðu sinni til Glass og til þessa nýja einfaldleika sem þeir Arvo Pärt innleiða á áttunda ára- tugnum. En blaðaumfjöllun hefur verið mjög jákvæð, kannski breytist afstaðan til tónskálda þegar þau verða áttræð! Og mér þykir vænt um hve margir kveikja á því sem ég reyni að gera í túlkuninni, það er ekki sjálfgefið.“ Á tónleikunum á föstudagskvöldið hyggst Víkingur leika öll verkin sem eru á diskinum. „Og á milli verka mun ég segja frá sambandi mínu við Philip Glass og glímu minni við þessa tónlist. Það er svo þakklátt að segja fólki frá Glass því hugmyndafræði hans er svo áhugaverð.“ Tíminn vinnur með góðri tónlist Morgunblaðið/Árni Sæberg Einleikarinn Gagnrýnendur hafa hrósað túlkun Víkings Heiðars á etýðum Glass á nýja diskinum, segja hana persónulega, ljóðræna og kraftmikla.  Víkingur Heiðar leikur etýður Glass í Eldborgarsal Hörpu á föstudagskvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.