Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 12
golf Tiger Woods átti enn eina end- urkomuna í golfheiminn í síðustu viku. Sú níunda í heildina en heilsu- far þessa frábæra kylfings hefur ekki verið gott síðustu ár og hann hefur þurft að fara í fjórar bakaðgerðir. Þetta var hans fyrsta mót síðan í febrúar en hann hefur lítið getað spilað síðustu þrjú ár vegna þrálátra bakmeiðsla. Svo slæm voru meiðslin að Tiger átti um tíma erfitt með að komast fram úr rúminu og fór í lengri tíma ekki út úr húsi. Tiger spilaði tvo hringi upp á 68 högg, einn hringinn fór hann á 69 og vondi hringurinn var upp á 75 högg. Hann endaði í níunda sæti á móti þar sem átján toppkylfingar tóku þátt. Um tíma efstur á mótinu Hann hélt sínu gegn þeim bestu og rúmlega það. Tiger var um tíma efstur á mótinu. Það sem mestu máli skiptir er að hann virðist hafa komist í gegnum mótið án þess að finna til eymsla. Ef hann segir satt frá gæti þetta verið upphafið að ein- hverju góðu hjá Tiger. „Ég er mjög spenntur því svona hef ég verið að slá upp á síðkastið. Heimurinn er allt öðruvísi núna en hann var hjá mér fyrir fimm dögum,“ sagði brosmildur Tiger eftir mótið en skorið var ekki bara gott heldur sýndi hann oft geggjuð tilþrif og upphafshöggin voru löng. „Ég vissi að það yrði ekkert mál að spila hringi. Það sem ég hafði áhyggjur af var skorið og hvernig mér myndi líða á vellinum. Hvern- ig venst ég því að vera með adrena- línið á fullu aftur? Það tók smá tíma að venjast því.“ Fyrsta risamót næsta árs er Mast- ers í byrjun apríl og Tiger hefur ekki ákveðið hvernig hann hagar undir- búningi fyrir mótið. „Ég þarf að spila nóg en ekki of mikið. Ég veit ekki alveg hver besta leiðin er núna en ég mun átta mig á því.“ Það sem sérfræðingar hafa helst gagnrýnt hjá Tiger á Hetjumótinu er að stutta spilið var á stundum alls ekki nógu gott. Hann gerði flest mistök í vippunum sínum og ef hann nær ekki ryðinu af stutta spilinu mun hann ekki vinna nein mót næstu mánuðina. „Ég er svolítið svekktur með járnin hjá mér og ég er líka svolítið hissa á hversu löng upphafshöggin voru. Ég veit núna hverju ég þarf að vinna betur í og mun gera það,“ sagði Tiger. Allir fylgdust með Þessi endurkoma var miklu betri en allir áttu von á og hún gladdi marga golfáhugamenn. Það er einfald- lega þannig að það er enginn sem vekur eins mikinn áhuga á íþrótt- inni og Tiger. Þeir voru ansi margir sem horfðu aftur á golf um helgina. Tennisstjarnan Rafael Nadal var meira að segja mætt á mótið og labbaði með Tiger. Það segir sína sögu. Aðdáendur Tigers dreymir enn um að hann nái fyrri styrk og fari að vinna mót reglulega á nýjan leik. Þessi endurkoma kveikir þá von þó svo þetta hefðu verið aðeins fjórir hringir en þetta var svo sannarlega skref í rétta átt. Tiger hefur ekki unnið golfmót síðan árið 2013 og hann þarf að taka fleiri framfara- skref á nýju ári ef titlunum á að fjölga. Áður en fór að halla undan fæti hjá Tiger hafði hann unnið fjórtán risamót og margir héldu að það yrði formsatriði að jafna met Jacks Nick- laus sem vann átján risamót. Á næsta ári verða liðin tíu ár frá því þessi magnaði kylfingur vann síðast risamót og ef heilsan verður í lagi gætu ævintýri Tígursins haldið áfram á næsta ári. Hann er farinn að bíta aftur frá sér. henry@frettabladid.is Tígurinn getur enn bitið Endurkoma Tigers Woods var miklu betri en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Hann spilaði þrjá frábæra hringi á Bahamaeyjum og minnti golfheiminn á að hann er ekki búinn að vera. Því fagna golfáhugamenn. Tiger fagnaði öllu sem gekk upp um helgina innilega og þeir voru ansi margir sem fögnuðu með honum. nordicphoTos/geTTy Heimurinn er allt öðruvísi núna en hann var hjá mér fyrir fimm dögum. Tiger Woods Í dag 19.00 Man. Utd - csKA Sport 2 19.15 Meistaramessan Sport 19.40 Barcelona-sporting Sport 3 19.40 chelsea-Atletico Sport 4 19.40 Bayern - psg Sport 5 21.45 Meistaramörkin Sport olís-deild kvenna 20.00 haukar - grótta domino’s-deild karla Kr - Tindastóll 97-69 stigahæstir: Kr: Brynjar Þór Björnsson 33, Björn Kristjánsson 18/6 stoðsendingar, Jalen Jenkins 12/9 fráköst, Pavel Ermolins- kij 8/7 stoðsendingar, Kristófer Acox 8/12 fráköst - Tindastóll: Sigtryggur Arnar Björnsson 22, Brandon Garrett 11, Helgi Rafn Viggósson 10 , Björgvin Hafþór Rík- harðsson 9/11 fráköst, Viðar Ágústsson 7. Nýjast efri ÍR 14 Tindastóll 14 Haukar 12 KR 12 Keflavík 12 Njarðvík 10 neðri Valur 8 Stjarnan 8 Grindavík 8 Þór Þ. 6 Þór Ak. 4 Höttur 0 Jólatertur Gríptu eina! eða allar 4 Strax í dag Smakkaðu NÝJA með rabbarbara - sultu MYLLU cw170109_ISAM_Myllan_Jólaterta_blá_dagbl_5x10_20171113_END.indd 1 24.11.2017 10:04:08 Miðasala á leiki Íslands á HM í Rússlandi hefst í dag en svo gæti farið að færri íslenskir fótbolta- áhugamenn geti fengið miða en vilja. Að þessu sinni er miðasalan opin frá því í dag og út janúar- mánuð. Nú er ekki um að ræða „fyrstur kemur, fyrstur fær“ heldur er þetta í raun happdrætti. Ef miða umsóknir verða fleiri en fjöldi miða verður dregið af handa- hófi. Knattspyrnusamband Íslands á rétt á átta prósentum miða í boði á leikina þrjá í riðlakeppninni sem eru á móti Argentínu (16. júní), Nígeríu (22. júní) og Króatíu (26. júní). Það eru í kringum 3.600 miðar. KSÍ segir frá því á heimasíðu að íslenska samband- ið, ásamt öðrum þjóðum, hafi verið í sambandi við FIFA og beðið um að þetta hlutfall verði hækkað. KSÍ vIll MEIRA EN ÁTTA pRó- SENT MIðA Á lEIKI ÍSlANdS 5 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A g U r12 s p o r t ∙ f r É t t A b l A Ð I Ð sport 0 5 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 6 -D A D C 1 E 6 6 -D 9 A 0 1 E 6 6 -D 8 6 4 1 E 6 6 -D 7 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.