Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 26
Japanski bílaframleiðandinn Nissan, sem leitt hefur þróun rafmagnsbíla á almennum
neytendamarkaði með mest selda
rafmagnsbílnum Leaf, hyggur á frek-
ari landvinninga á þessu sviði eins
og m.a. kom fram í máli Francisco
Carranza Sierra, framkvæmdastjóra
Nissan Energy business, deildar
Nissan sem ber ábyrgð á markaðs-
væðingu á vörum og þjónustu sem
tengjast samþættingu rafbíla og raf-
dreifinets. Hann ber einnig ábyrgð
á markaðssetningu á vörum fyrir
staðbundna geymslu á rafmagni þar
sem byggt er á þekkingu og reynslu
Renault og Nissan á lithiumraf-
hlöðum. Francisco var meðal gesta
á alþjóðlegu ráðstefnunni Charge
í Hörpu í október, þar sem Nissan
hlaut sérstök verðlaun fyrir bestu
framleiðsluvöruna á sviði grænna
orkugjafa og Francisco veitti við-
töku fyrir hönd framleiðandans.
Þróunin heldur áfram
Liðin eru sex ár frá því að Leaf kom
á markað í Evrópu. Hann hafði þá
verið á markaði í eitt ár í Norður-
Ameríku og Japan og hafa alls um
400 þúsund bílar selst í heiminum.
Leaf floti heimsins hefur frá upp-
hafi lagt samtals að baki um 3,6
milljarða kílómetra án þess að
alvarlegar bilanir hafi komið upp
í bílunum. Þróun, sala og þjónusta
við eigendur Leaf hafa breytt
áherslum Nissan verulega á þeim
tíma sem liðinn er frá því að bíllinn
kom á markað. Leaf er enn í mikilli
þróun og á næsta ári kemur nýr,
stærri og fullkomnari Leaf á markað
með öflugri rafmótor, langdrægari
rafhlöðu og mörgum mikilvægum
tækninýjungum.
Tækninýjungarnar
Leiðinni til fullkomlega sjálf-
keyrandi bíla er gjarnan skipt upp
í nokkur stig. Margir nýir bílar eru
nú þegar færir um að leggja sjálfir í
stæði, halda sig sjálfir á akreininni
sem ekið er eftir, stöðva fyrir aftan
næsta bíl í þungri umferðinni og
svo framvegis. Þetta er gjarnan
kallað stig númer tvö og þessum
eiginleikum verður næsta kynslóð
Leaf búin.
Akreinaskipti
Sem dæmi um nýja tækni má nefna
bremsunæma orkupedalann ePedal
sem hægir með virkum hætti á
bílnum þegar létt er á gjöfinni
þannig að ekki þarf að nota brem-
supedalann nema þegar hægja
þarf snögglega. Einnig má nefna
tæknikerfið ProPILOT sem aðstoðar
ökumann við aksturinn með því
að halda bílnum á akreininni sinni
og stjórna hraðanum í samræmi
við umferðarþungann hverju sinni.
Þannig stöðvast nýr Leaf sjálfkrafa
fyrir aftan næsta bíl þegar svo ber
undir. ProPILOT getur einnig lagt
bílnum í stæði fyrir ökumanninn.
Nýjar kynslóðir
2019 og 2020
Á næsta ári hyggst Nissan bjóða
næstu kynslóð ProPilot á heima-
markaði og árið 2019 á öðrum
helstu lykilmörkuðum heims. Sú
kynslóð mun gera Leaf kleift að
skipta um akrein á fjölakreinavegi
og taka fram úr öðrum bílum. Árið
2020 kemur svo þriðja kynslóð
ProPilot og þá mun bíllinn ráða við
sjálfvirkan akstur yfir gatnamót á
grænu ljósi eða velja rétta frárein af
hraðbraut yfir á annan veg í sam-
ræmi við valinn áfangastað. Sam-
kvæmt því munu t.d. Parísarbúar
á leið til Barcelona, sem setja sjálf-
stillinguna á við brottför heiman frá
sér, ekki þurfa að hafa mikið fyrir
akstrinum á leiðinni til Katalóníu.
Þróaðri rafhlaða
Í upphafi kom Nissan Leaf með 24
kWh rafhlöðu sem dró allt að 190
km á hleðslunni. Hún kom í smá-
vægilega uppfærðri útgáfu ári síðar
sem jók drægið um 30 km. Árið
2015 kom ný 30kWh rafhlaða sem
jók drægið í um 280 km. Nýr Leaf
2018 kemur með bæði stærri og
öflugri rafmótor og jafnframt fjórðu
kynslóð 40 kWh háorkulithíum-
rafhlöðu Nissan sem dregið getur
allt að 400 km við góðar aðstæður.
Einnig er vert að benda á að
skemmri tíma mun taka að hlaða
rafhlöðuna í nýjum Leaf sem kemur
á næsta ári.
Öflugri og langdrægari
rafhlaða 2019
Gert er ráð fyrir að 60kWH rafhlaða
komi í Leaf 2019 og stefnt er að því
að 2022 bjóði Nissan Leaf með 600
km rafhlöðu. Það verður mikið
framfaraskref og t.d. gera íslenskum
ökumönnum Leaf kleift að fara í
mun lengra ferðalag en áður án þess
að hlaða fyrr en á áfangastað.
Hleðslustöðvum fjölgar
Í Evrópu stendur nú yfir stórt
verkefni sem hefur að markmiði
að fjölga hratt hleðslustöðvum í
álfunni. Nissan hefur fjárfest í verk-
efninu fyrir um 50 milljónir evra og
hafa nú um 4.600 hleðslustöðvar
verið settar upp í álfunni, m.a. hér
á landi, fyrir tilstuðlan bæði Nissan
og BL. Á næstu mánuðum er svo
fyrirhugað að bæta við um eitt
þúsund stöðvum.
Vegghleðslutæki
Nissan mun bjóða upp á nýtt 7kW
vegghleðslutæki með Leaf sem
mun auka hleðsluhraða og stytta
fullhleðslutíma í 5,5 klst. miðað við
nær tóma rafhlöðu. Einnig verður
boðið upp á 22kW vegghleðslutæki
sem hleður bílinn á aðeins tveimur
klukkustundum, sem án efa mun
henta fyrirtækjum sérlega vel, þar
með talið bílaleigum.
Best á sviði grænna orkugjafa
Alls hafa um 400 þúsund Leaf bílar selst í heiminum og Leaf floti heimsins hefur lagt sam-
tals að baki 3,6 milljarða kílómetra án þess að alvarlegar bilanir hafi komið upp.
Fáar bílgerðir eru til í fleiri útfærslum en Volkswagen Golf. Volkswagen Golf má
kaupa með mörgum gerðum
bensín- og dísilvéla, sem rafmagns-
bíl, tengiltvinnbíl og metanbíl.
Enn mun fjölga í útfærslum Golf
því Volkswagen vinnur að tveimur
gerðum svokallaðra Mild-Hybrid
Golf bíla, en slíkir bílar eru með
minni rafhlöður og rafmótora en
tengiltvinnbílar. Þessar nýju gerðir
Golf eru með 1,5 lítra TSI bensínvél
með beltadrifinni ræsingu og 48
volta lithium ion rafhlöður á stærð
við hefðbundna rafgeyma. Bílarnir
verða með nýja 7 gíra DSG „dual-
clutch“ sjálfskiptingu. Bílarnir tveir
munu bera nafnið Golf MHEV og
Golf MHEV Plus en sá síðarnefndi
er með stærri 35 hestafla tveimur
rafmótorum sem drífa áfram fram-
hjólin, en einnig kemur til greina að
setja þann rafmótor á aftari öxulinn
og er þá bíllinn fjórhjóladrifinn. Sú
útfærsla hans er freistandi í fram-
leiðslu þar sem það myndi auka
akstursgetu bílsins, auka stöðug-
leika hans í beygjum og minnka
undirstýringu. Volkswagen er
lengra komið með útgáfuna með
minni rafhlöðunni þar sem hann er
einfaldari í framleiðslu. Golf MHEV
Plus útfærslan ætti að eyða minna
eldsneyti þar sem annar rafmótor
hans getur endurheimt hemlunar-
afl bílsins. Ekki er ljóst hvenær
þessar tvær nýju gerðir Golf verða
settir á markað.
Volkswagen vinnur að tveimur Mild-Hybrid Golf
Japanski bílaframleiðandinn Nissan, sem leitt hefur þróun rafmagnsbíla á almennum neytendamarkaði með mest
selda rafmagnsbílnum Leaf, hyggur á frekari landvinninga á þessu sviði.
Volkswagen Golf má kaupa með mörgum gerðum bensín- og dísilvéla, sem
rafmagnsbíl, tengiltvinnbíl og metanbíl.
AXARHÖFÐA 16
foliatec.is
5673322
LED Perur
Bjóðum nú felgur
á ameríska-pallbíla
jeppa- Land Cruser
og alla fólksbíla
Gæðavottaðar álfelgur
5 . d e s e M b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r8 b í l A r ∙ F r É T T A b l A Ð I Ð
Bílar
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
6
-E
9
A
C
1
E
6
6
-E
8
7
0
1
E
6
6
-E
7
3
4
1
E
6
6
-E
5
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K