Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 22
Nýr Nissan Micra sem kom á markað fyrr á árinu fær 8,8 stig af 10 mögulegum í einkunnagjöf eigenda þar sem þriðjungur svarenda í nýlegri ánægjukönnun gaf bílnum fullt hús stiga. Ánægjukannanir sem þessar eru bílaframleiðendum mjög mikilvægar og hjá Nissan nýta hönnuðir fyrirtækisins niðurstöðurnar í áframhaldandi þróunarvinnu til að bæta gæðin enn meira. Það var könnunarfyrir- tækið Reevoo sem framkvæmdi könnunina fyrir Nissan og eru sér- fræðingar í hönnunarteymi bílsins afar ánægðir með niðurstöðurnar eins og gefur að skilja. Þrátt fyrir það lýkur hönnun bíla aldrei því stöðugt er unnið að framförum og má gera ráð fyrir að þegar á næsta ári líti ýmsar nýjungar ljós sem byggja á ábendingum viðskipta- vina. Þjóðverjar ánægðastir Á fimm helstu markaðssvæðum Evrópu var einkunnagjöf eigenda Micra á bilinu frá 8,7 til 9,3. Í Bretlandi var hún 9,2, 8,7 í Frakk- landi, 8,9 á Ítalíu, 8,7 á Spáni og ánægðastir voru Þjóðverjar sem gáfu Micra 9,3 í einkunn. Skemmtilegur í akstri Meðal umsagna var þessi frá ánægðum eiganda: „Hönnun far- þegarýmisins er æðisleg … hann er yndislegur í akstri … þetta er frábær bíll fyrir mínar þarfir … það hafa orðið miklar framfarir í hönnun og virkni bílsins … hann er þægi- legur og hagkvæmur og krafturinn í þessari 900 cc vél kom á óvart.“ Í heildina litið var umsögnin „skemmtilegur í akstri“ algengasta einstaka svar þátttakenda um nýjan Micra, nefnd í 20% tilfella. Gæði, þægindi og mikill stöðug- leiki í akstri voru einnig algeng svör. Þá var enn fremur algengt að þátttakendur gæfu hljómtækj- unum frá Bose hæstu mögulega einkunn. Nýjungar á næsta ári Helen Perry, framkvæmdastjóri smábíla hjá Nissan Europe, sagði þegar Reevoo birti niðurstöður könnunar að „að sjálfsögðu væru ákveðin atriði sem hægt væri að bæta og ábendingar viðskipta- vina okkar gegna lykilhlutverki í þróunarvinnu okkar. Sérfræðingar í verkfræðiteymi okkar ígrunda gaumgæfilega umsagnir sem við fáum og meðal þess sem við munum gera strax á næsta ári er að bjóða fleiri vélar við Xtronic-sjálf- skiptingu auk 120 hestafla vél og sex gíra beinskiptingu“. Mikil ánægja meðal eigenda Nissan Micra Á fimm helstu markaðssvæðum Evrópu var ein- kunnagjöf eigenda Micra á bilinu frá 8,7 til 9,3. Nissan Micra er greinilega vinsæll á meðal þeirra sem eiga eintak af honum. Margir Íslendingar muna eftir Hyundai Accent bílnum enda seldist hann í skipsförmum hérlendis á árum áður. Talsvert er þó síðan Accent var til sölu hér og er hann orðinn æ óalgengari sjón á götum landsins. Það á þó ekki við í Bandaríkjunum þar sem Hyundai býður Accent til sölu á afar hagstæðu verði. Þar fæst Accent á 14.995 dollara, eða 1.585.000 krónur, og það sem meira er, þar fer bara býsna laglegur bíll. Ef hann væri í boði hérlendis á þessu verði væri um að ræða ódýrasta nýja bíl sem hægt væri að kaupa. Hafa verður þó í huga að bílar eru mun ódýrari í Bandaríkjunum en hér og há vörugjöld og virðisauka- skattur hafa ekki viðlíka áhrif á endanlegt verð bíla þar. Ódýrasta gerð Accent er beinskipt, en bíllinn er samt furðanlega vel búinn, með 5" lita snertiskjá, bakkmyndavél, útvarpsstýringu og skriðstilli í stýri, Blue tooth tengingu, rafmagns- rúðum allan hringinn og fjölstillan- legu framsæti. Dýrustu útfærslu fylgir margs konar aðstoðar- og lúxusbúnaður og fæst hún á undir tveimur milljónum króna. Accent býðst aðeins með einni vélargerð í Bandaríkjunum, 1,6 lítra bensívél, 130 hestöfl með 161 Nm togi. Hyundai Accent kostar 1,6 milljónir króna í Bandaríkjunum  Hyundai Accent af árgerð 2018 er bara býsna laglegur bíll. Að mati fjölskipaðrar dóm-nefndar breska bílablaðsins What Car? eru kaup á fjögurra til sex ára gömlum Nissan Qashqai mjög skynsamleg vegna meginkosta hans sem eru rekstrarhagkvæmni, þægindi og fjölhæfni við mismun- andi aðstæður. Hann er að mati blaðsins „Besti notaði sportjeppinn 2018 í flokki minni jepplinga“. Alex Robbins, ritstjóri notaðra bíla hjá tímaritinu, sagði, þegar úrslitin voru kynnt, að fyrsta kynslóð Qashqai sé enn mjög eftirsóttur bíll á mark- aðnum og það komi ekki á óvart. „Það eru fáir bílar í þessum flokki og af fyrstu kynslóð sem sameina svo átakalaust aksturseiginleika í ætt við jeppa og kosti hefðbundna fólks- bílsins. Síðan hefur bíllinn fengið smávægilegar andlitslyftingar sem bera vitni um enn meiri þægindi, gæði og hagkvæmni. Mest seldi bíllinn í sínum flokki Vinsældir hans á markaðnum eru til marks um alhliða gæði, hagstætt verð, sem gerir Qashqai að mjög ákjósanlegum bíl fyrir þá sem huga að kaupum á notuðum bíl. Nissan kynnti Qashqai 2006 og var hann sá fyrsti af nýrri og endurhannaðri kynslóð fjórhjóladrifinna jepplinga á markaðnum sem skaut honum þegar í stað upp á stjörnuhimininn. Eftirspurn eftir Qashqai hefur allar götur síðan haldið honum í fyrsta sæti sem mest selda bílnum í sínum flokki þrátt fyrir síharðandi sam- keppni á markaðnum. Qashqai er í stöðugri þróun hjá Nissan og sífellt koma fram tækninýjungar sem bæta kosti hans ár frá ári og halda honum enn þann dag í dag efst á vinsældar- listanum. Qashqai besti sportjeppinn í sínum flokki að mati What Car? Hefur frá upphafi verið mest seldi sportjeppi heims. Nissan Qashqai mest seldi bíllinn í sínum flokki. Smiðjuvegur 30, 200 Kópavogur TILBOÐ 285/70R17 - 4 stk. kr. 179.000 með kr. 40.200 afslætti 315/70R17 - 4 stk. kr. 189.000 með kr. 42.200 afslætti Icetrack ehf. Sími 773 4334 · mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is ATZp3 5 . d e s e M B e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r4 B í l A r ∙ F r É T T A B l A Ð I Ð Bílar 0 5 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 6 6 -F 8 7 C 1 E 6 6 -F 7 4 0 1 E 6 6 -F 6 0 4 1 E 6 6 -F 4 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.