Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 28
Nú á örskömmum tíma fjölgar um þrjá litla jepp-linga sem velja má um umfram þá sem fyrir voru á mark- aði, svo sem Nissan Juke, Mazda CX-3 og Renault Captur. Þetta eru bílarnir Kia Stonic, Hyundai Kona og Volkswagen T-Roc. Þeir falla allir í þann flokk bíla sem seljast stöðugt betur í heiminum í dag, sem virðist nánast öskra á litla og sæta jepplinga. Þessir bílar falla í B-stærðarflokk jepplinga sem seljast í 1,1 milljón eintaka bara í Evrópu í ár og spáð er að verði stærsti einstaki flokkur bíla árið 2020. Kia Stonic var kynntur fyrr á Íslandi en Hyundai Kona, en bílablaðamönnum var boðið að kynna sér Kia Stonic í Berlín fyrir skömmu. Kia Stonic og Hyundai Kona eru í raun systurbílar, enda á Hyundai stóran hlut í Kia fyrirtæk- inu. En það sem meira máli skiptir er að Kia Stonic er enn fremur systurbíll Kia Rio, er á sama undir- vagni og hann, með sömu vélar og margt annað sameiginlegt. Það eru reyndar fremur góðar fréttir hvað varðar Stonic því Rio er einfaldlega mjög góður bíll. Það sem þeir eiga þó ekki sameiginlegt er veghæðin, en Kia Stonic er óvenjuhár frá vegi og með lægsta punkt 18,3 cm frá götu. Það hentar mjög vel hér á landi snjóa og ófærðar. Það má þó ekki skilja það sem svo að hér sé komið torfærutröll, en Stonic kemur aðeins framhjóladrifinn. Ekki klikkar Schreyer Enn eina ferðina kemur úr smiðju Kia, eða öllu heldur aðalhönn- uðarins Peters Schreyer, fallegur bíll með öll hlutföll í lagi. Stonic er skemmtilega teiknaður og fyrir ýmsu er hugsað með hönnun hans. Hann er með óvenju langt húdd fyrir lítinn jeppling að vera og það gerir hann kraftalegri og sport- legri. Hann er með annars konar lit á þaki og það villir auganu sýn á þann hátt að bíllinn virðist lægri og meira í ætt við sportbíla. Hann er með breiðan og tilkomumikinn framenda og afturendinn er flottur með fremur stóra hlífðarplötu neðst sem bendir til getu hans í vegleysum. Hliðarsvipurinn er með sterkum afgerandi línum og sportlegheitin skína af honum þrátt fyrir hve hátt hann stendur á vegi. Að innan er Stonic ansi laglegur þó eitthvað beri á fremur ódýru plasti, eins og er í öllum bílunum í þessum flokki og skýrir kannski best út hve ódýrir þeir eru. Innréttingin er eiginlega sú sama og í Rio, sem er að mörgu leyti sniðugt þar sem ekki þarf fyrir vikið að leggja í þann kostnað að endurhanna þennan bíl frá upphafi og gerir hann ódýrari fyrir vikið. Ekki ókunn formúla þar. Sætin eru þægileg og veita mikinn stuðning og falleg eru þau að auki. Rými í aftursætum er nægt til að duga fullorðnum en skottrými er ekki ýkja stórt, eða 352 lítrar. Hafa verður þó í huga að vart er hægt að gera betur í B-stærðarflokki jepplinga. Sem fyrr virðist allt vel smíðað og á réttum stað fyrir ökumann, en smíðagæði Kia eru á þeim stalli að fyrirtækið veitir sjö ára ábyrgð á bílnum, það mesta meðal bílasmiðja. Kaupendur Kia bíla hafa það eðlilega mikið í huga. Þrælmögnuð 1,0 lítra og 120 hestafla vél Almennt eru jepplingar í B-stærð- arflokki ekki þekktastir fyrir ómót- stæðilega akstursgetu, þar fara litlir bílar á stultum og sú formúla bendir hreint ekki til þess að eðlis- fræðin vinni með þeim. Kia Stonic er þó einn þeirra bíla í flokknum sem skemmtilegast er að aka og hann er einstaklega lipur í borg- arumferð og vel hæfur á vegum þar sem hraðar má aka. Þar sem bíllinn er fremur harður í fjöðrun er engin sérstök ástæða til að velja á hann sem stærstar álfelgur því slíkt kemur niður á mýktinni með minni barða til aðstoðar. Líklega er hann bara bestur á minnstu felg- unum sem bjóðast, þ.e. 15 tommu. Vélarkostirnir í Stonic eru fjórir, þrjár bensínvélar frá 84 til 120 hestafla og 1,6 lítra og 110 hestafla dísilvél. Það skrítnasta við bensín- vélarnar er að sú aflmesta þeirra er með minnsta sprengirýmið, eða aðeins 1,0 lítra. Þar fer þrusu- skemmtileg vél sem hendir bílnum vel áfram. Líklega er helst hægt að mæla með henni, en margir munu samt örugglega kjósa líka dísil- vélina, sem togar mjög vel. Hinar bensínvélarnar eru 1,2 lítra og 84 hestöfl og 1,4 lítra og 100 hestöfl. Í fyrstu er Stonic aðeins í boði beinskiptur með 6 gírum, nema með 1,2 lítra bensínvélinni en þá er hann 5 gíra. Kia mun svo kynna sjálfskiptingu í bílinn á næsta ári. Engin sérstök ástæða er til að bíða eftir henni þar sem bílar í þessum stærðarflokki eru hvað skemmti- legastir beinskiptir. Merkilega vel búinn Kia Stonic er merkilega vel búinn bíll fyrir lítinn pening og sem dæmi er 7 tommu aðgerðaskjár með Apple CarPlay og Android Auto, hitastýrð miðstöð, bíla- stæðastýring og Bluetooth staðal- búnaður og þá er upptalningin rétt hafin. Fullkomið stöðugleikakerfi og brekkuaðstoð er það einnig og svo má kaupa aukalega sjálfvirka hemlun, blindpunktsaðvörun og syfjuvara, sem og fleiri öryggis- og aðstoðarkerfi. Með Kia Stonic er kominn fagur bíll með fullt af kostum á flottu verði, en hann þarf að glíma við síharðnandi sam- keppni, því allir vildu Lilju kveðið hafa í þessum sístækkandi flokki bíla. Hann mun þó standast þá samkeppni. Flott útspil Kia í smájeppaflokki Kia Stonic er enn einn gæðabíllinn sem Kia teflir fram, en hér í þeim flokki bíla sem vex hraðast. Stonic er búinn miklum kostum, hann stendur hátt frá vegi og býðst með stórskemmtilegri 1,0 lítra vél. KoStir og gallar Kia Stonic l 1,0 lítra beNsíNvél l 120 hestöfl l framhjóladrif eyðsla frá: 5,0 l/100 km í bl. akstri mengun: 115 g/km CO2 hröðun: 10,3 sek. hámarkshraði: 184 km/klst. verð frá: 3.140.777kr. Umboð: Askja l Útlit l 1,0 l bensínvélin l Búnaður l Verð l Skottrými l Efnisnotkun í innanrými l Framhjóladrif reynsluakstur Finnur Thorlacius finnurth@365.is innréttingin er eiginlega sú sama og í rio, sem er að mörgu leyti sniðugt. Kia Stonic er fögur hönnun enda ekki von á öðru úr smiðju Peters Schreyer, yfirhönnuðar Kia, sem klikkar ekki. Kia Stonic er óvenjuhár frá vegi og með lægsta punkt 18,3 cm frá götu. 5 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r i Ð j U d a G U r10 b í l a r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð Bílar 0 5 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 6 -F D 6 C 1 E 6 6 -F C 3 0 1 E 6 6 -F A F 4 1 E 6 6 -F 9 B 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.