Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 28
Nú á örskömmum tíma fjölgar um þrjá litla jepp-linga sem velja má um
umfram þá sem fyrir voru á mark-
aði, svo sem Nissan Juke, Mazda
CX-3 og Renault Captur. Þetta eru
bílarnir Kia Stonic, Hyundai Kona
og Volkswagen T-Roc. Þeir falla
allir í þann flokk bíla sem seljast
stöðugt betur í heiminum í dag,
sem virðist nánast öskra á litla og
sæta jepplinga. Þessir bílar falla
í B-stærðarflokk jepplinga sem
seljast í 1,1 milljón eintaka bara
í Evrópu í ár og spáð er að verði
stærsti einstaki flokkur bíla árið
2020. Kia Stonic var kynntur fyrr
á Íslandi en Hyundai Kona, en
bílablaðamönnum var boðið að
kynna sér Kia Stonic í Berlín fyrir
skömmu. Kia Stonic og Hyundai
Kona eru í raun systurbílar, enda á
Hyundai stóran hlut í Kia fyrirtæk-
inu. En það sem meira máli skiptir
er að Kia Stonic er enn fremur
systurbíll Kia Rio, er á sama undir-
vagni og hann, með sömu vélar og
margt annað sameiginlegt. Það eru
reyndar fremur góðar fréttir hvað
varðar Stonic því Rio er einfaldlega
mjög góður bíll. Það sem þeir eiga
þó ekki sameiginlegt er veghæðin,
en Kia Stonic er óvenjuhár frá vegi
og með lægsta punkt 18,3 cm frá
götu. Það hentar mjög vel hér á
landi snjóa og ófærðar. Það má
þó ekki skilja það sem svo að hér
sé komið torfærutröll, en Stonic
kemur aðeins framhjóladrifinn.
Ekki klikkar Schreyer
Enn eina ferðina kemur úr smiðju
Kia, eða öllu heldur aðalhönn-
uðarins Peters Schreyer, fallegur
bíll með öll hlutföll í lagi. Stonic
er skemmtilega teiknaður og fyrir
ýmsu er hugsað með hönnun hans.
Hann er með óvenju langt húdd
fyrir lítinn jeppling að vera og það
gerir hann kraftalegri og sport-
legri. Hann er með annars konar
lit á þaki og það villir auganu sýn
á þann hátt að bíllinn virðist lægri
og meira í ætt við sportbíla. Hann
er með breiðan og tilkomumikinn
framenda og afturendinn er flottur
með fremur stóra hlífðarplötu
neðst sem bendir til getu hans í
vegleysum. Hliðarsvipurinn er
með sterkum afgerandi línum og
sportlegheitin skína af honum
þrátt fyrir hve hátt hann stendur
á vegi. Að innan er Stonic ansi
laglegur þó eitthvað beri á fremur
ódýru plasti, eins og er í öllum
bílunum í þessum flokki og skýrir
kannski best út hve ódýrir þeir
eru. Innréttingin er eiginlega sú
sama og í Rio, sem er að mörgu
leyti sniðugt þar sem ekki þarf
fyrir vikið að leggja í þann kostnað
að endurhanna þennan bíl frá
upphafi og gerir hann ódýrari fyrir
vikið. Ekki ókunn formúla þar.
Sætin eru þægileg og veita mikinn
stuðning og falleg eru þau að auki.
Rými í aftursætum er nægt til að
duga fullorðnum en skottrými er
ekki ýkja stórt, eða 352 lítrar. Hafa
verður þó í huga að vart er hægt
að gera betur í B-stærðarflokki
jepplinga. Sem fyrr virðist allt
vel smíðað og á réttum stað fyrir
ökumann, en smíðagæði Kia eru á
þeim stalli að fyrirtækið veitir sjö
ára ábyrgð á bílnum, það mesta
meðal bílasmiðja. Kaupendur Kia
bíla hafa það eðlilega mikið í huga.
Þrælmögnuð 1,0 lítra
og 120 hestafla vél
Almennt eru jepplingar í B-stærð-
arflokki ekki þekktastir fyrir ómót-
stæðilega akstursgetu, þar fara
litlir bílar á stultum og sú formúla
bendir hreint ekki til þess að eðlis-
fræðin vinni með þeim. Kia Stonic
er þó einn þeirra bíla í flokknum
sem skemmtilegast er að aka og
hann er einstaklega lipur í borg-
arumferð og vel hæfur á vegum
þar sem hraðar má aka. Þar sem
bíllinn er fremur harður í fjöðrun
er engin sérstök ástæða til að velja
á hann sem stærstar álfelgur því
slíkt kemur niður á mýktinni með
minni barða til aðstoðar. Líklega
er hann bara bestur á minnstu felg-
unum sem bjóðast, þ.e. 15 tommu.
Vélarkostirnir í Stonic eru fjórir,
þrjár bensínvélar frá 84 til 120
hestafla og 1,6 lítra og 110 hestafla
dísilvél. Það skrítnasta við bensín-
vélarnar er að sú aflmesta þeirra
er með minnsta sprengirýmið,
eða aðeins 1,0 lítra. Þar fer þrusu-
skemmtileg vél sem hendir bílnum
vel áfram. Líklega er helst hægt að
mæla með henni, en margir munu
samt örugglega kjósa líka dísil-
vélina, sem togar mjög vel. Hinar
bensínvélarnar eru 1,2 lítra og 84
hestöfl og 1,4 lítra og 100 hestöfl.
Í fyrstu er Stonic aðeins í boði
beinskiptur með 6 gírum, nema
með 1,2 lítra bensínvélinni en þá
er hann 5 gíra. Kia mun svo kynna
sjálfskiptingu í bílinn á næsta ári.
Engin sérstök ástæða er til að bíða
eftir henni þar sem bílar í þessum
stærðarflokki eru hvað skemmti-
legastir beinskiptir.
Merkilega vel búinn
Kia Stonic er merkilega vel búinn
bíll fyrir lítinn pening og sem
dæmi er 7 tommu aðgerðaskjár
með Apple CarPlay og Android
Auto, hitastýrð miðstöð, bíla-
stæðastýring og Bluetooth staðal-
búnaður og þá er upptalningin rétt
hafin. Fullkomið stöðugleikakerfi
og brekkuaðstoð er það einnig og
svo má kaupa aukalega sjálfvirka
hemlun, blindpunktsaðvörun og
syfjuvara, sem og fleiri öryggis- og
aðstoðarkerfi. Með Kia Stonic
er kominn fagur bíll með fullt af
kostum á flottu verði, en hann þarf
að glíma við síharðnandi sam-
keppni, því allir vildu Lilju kveðið
hafa í þessum sístækkandi flokki
bíla. Hann mun þó standast þá
samkeppni.
Flott útspil Kia í smájeppaflokki
Kia Stonic er enn einn gæðabíllinn sem Kia teflir fram, en hér í þeim flokki bíla sem vex hraðast. Stonic
er búinn miklum kostum, hann stendur hátt frá vegi og býðst með stórskemmtilegri 1,0 lítra vél.
KoStir og gallar
Kia Stonic
l 1,0 lítra beNsíNvél
l 120 hestöfl
l framhjóladrif
eyðsla frá: 5,0 l/100 km í bl. akstri
mengun: 115 g/km CO2
hröðun: 10,3 sek.
hámarkshraði: 184 km/klst.
verð frá: 3.140.777kr.
Umboð: Askja
l Útlit
l 1,0 l bensínvélin
l Búnaður
l Verð
l Skottrými
l Efnisnotkun í innanrými
l Framhjóladrif
reynsluakstur
Finnur
Thorlacius
finnurth@365.is
innréttingin er eiginlega sú sama og í rio, sem er að mörgu leyti sniðugt.
Kia Stonic er fögur hönnun enda ekki von á öðru úr smiðju Peters Schreyer, yfirhönnuðar Kia, sem klikkar ekki.
Kia Stonic er óvenjuhár frá vegi og með lægsta punkt 18,3 cm frá götu.
5 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r i Ð j U d a G U r10 b í l a r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð
Bílar
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
6
-F
D
6
C
1
E
6
6
-F
C
3
0
1
E
6
6
-F
A
F
4
1
E
6
6
-F
9
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K