Fréttablaðið - 05.12.2017, Síða 26

Fréttablaðið - 05.12.2017, Síða 26
Japanski bílaframleiðandinn Nissan, sem leitt hefur þróun rafmagnsbíla á almennum neytendamarkaði með mest selda rafmagnsbílnum Leaf, hyggur á frek- ari landvinninga á þessu sviði eins og m.a. kom fram í máli Francisco Carranza Sierra, framkvæmdastjóra Nissan Energy business, deildar Nissan sem ber ábyrgð á markaðs- væðingu á vörum og þjónustu sem tengjast samþættingu rafbíla og raf- dreifinets. Hann ber einnig ábyrgð á markaðssetningu á vörum fyrir staðbundna geymslu á rafmagni þar sem byggt er á þekkingu og reynslu Renault og Nissan á lithiumraf- hlöðum. Francisco var meðal gesta á alþjóðlegu ráðstefnunni Charge í Hörpu í október, þar sem Nissan hlaut sérstök verðlaun fyrir bestu framleiðsluvöruna á sviði grænna orkugjafa og Francisco veitti við- töku fyrir hönd framleiðandans. Þróunin heldur áfram Liðin eru sex ár frá því að Leaf kom á markað í Evrópu. Hann hafði þá verið á markaði í eitt ár í Norður- Ameríku og Japan og hafa alls um 400 þúsund bílar selst í heiminum. Leaf floti heimsins hefur frá upp- hafi lagt samtals að baki um 3,6 milljarða kílómetra án þess að alvarlegar bilanir hafi komið upp í bílunum. Þróun, sala og þjónusta við eigendur Leaf hafa breytt áherslum Nissan verulega á þeim tíma sem liðinn er frá því að bíllinn kom á markað. Leaf er enn í mikilli þróun og á næsta ári kemur nýr, stærri og fullkomnari Leaf á markað með öflugri rafmótor, langdrægari rafhlöðu og mörgum mikilvægum tækninýjungum. Tækninýjungarnar Leiðinni til fullkomlega sjálf- keyrandi bíla er gjarnan skipt upp í nokkur stig. Margir nýir bílar eru nú þegar færir um að leggja sjálfir í stæði, halda sig sjálfir á akreininni sem ekið er eftir, stöðva fyrir aftan næsta bíl í þungri umferðinni og svo framvegis. Þetta er gjarnan kallað stig númer tvö og þessum eiginleikum verður næsta kynslóð Leaf búin. Akreinaskipti Sem dæmi um nýja tækni má nefna bremsunæma orkupedalann ePedal sem hægir með virkum hætti á bílnum þegar létt er á gjöfinni þannig að ekki þarf að nota brem- supedalann nema þegar hægja þarf snögglega. Einnig má nefna tæknikerfið ProPILOT sem aðstoðar ökumann við aksturinn með því að halda bílnum á akreininni sinni og stjórna hraðanum í samræmi við umferðarþungann hverju sinni. Þannig stöðvast nýr Leaf sjálfkrafa fyrir aftan næsta bíl þegar svo ber undir. ProPILOT getur einnig lagt bílnum í stæði fyrir ökumanninn. Nýjar kynslóðir 2019 og 2020 Á næsta ári hyggst Nissan bjóða næstu kynslóð ProPilot á heima- markaði og árið 2019 á öðrum helstu lykilmörkuðum heims. Sú kynslóð mun gera Leaf kleift að skipta um akrein á fjölakreinavegi og taka fram úr öðrum bílum. Árið 2020 kemur svo þriðja kynslóð ProPilot og þá mun bíllinn ráða við sjálfvirkan akstur yfir gatnamót á grænu ljósi eða velja rétta frárein af hraðbraut yfir á annan veg í sam- ræmi við valinn áfangastað. Sam- kvæmt því munu t.d. Parísarbúar á leið til Barcelona, sem setja sjálf- stillinguna á við brottför heiman frá sér, ekki þurfa að hafa mikið fyrir akstrinum á leiðinni til Katalóníu. Þróaðri rafhlaða Í upphafi kom Nissan Leaf með 24 kWh rafhlöðu sem dró allt að 190 km á hleðslunni. Hún kom í smá- vægilega uppfærðri útgáfu ári síðar sem jók drægið um 30 km. Árið 2015 kom ný 30kWh rafhlaða sem jók drægið í um 280 km. Nýr Leaf 2018 kemur með bæði stærri og öflugri rafmótor og jafnframt fjórðu kynslóð 40 kWh háorkulithíum- rafhlöðu Nissan sem dregið getur allt að 400 km við góðar aðstæður. Einnig er vert að benda á að skemmri tíma mun taka að hlaða rafhlöðuna í nýjum Leaf sem kemur á næsta ári. Öflugri og langdrægari rafhlaða 2019 Gert er ráð fyrir að 60kWH rafhlaða komi í Leaf 2019 og stefnt er að því að 2022 bjóði Nissan Leaf með 600 km rafhlöðu. Það verður mikið framfaraskref og t.d. gera íslenskum ökumönnum Leaf kleift að fara í mun lengra ferðalag en áður án þess að hlaða fyrr en á áfangastað. Hleðslustöðvum fjölgar Í Evrópu stendur nú yfir stórt verkefni sem hefur að markmiði að fjölga hratt hleðslustöðvum í álfunni. Nissan hefur fjárfest í verk- efninu fyrir um 50 milljónir evra og hafa nú um 4.600 hleðslustöðvar verið settar upp í álfunni, m.a. hér á landi, fyrir tilstuðlan bæði Nissan og BL. Á næstu mánuðum er svo fyrirhugað að bæta við um eitt þúsund stöðvum. Vegghleðslutæki Nissan mun bjóða upp á nýtt 7kW vegghleðslutæki með Leaf sem mun auka hleðsluhraða og stytta fullhleðslutíma í 5,5 klst. miðað við nær tóma rafhlöðu. Einnig verður boðið upp á 22kW vegghleðslutæki sem hleður bílinn á aðeins tveimur klukkustundum, sem án efa mun henta fyrirtækjum sérlega vel, þar með talið bílaleigum. Best á sviði grænna orkugjafa Alls hafa um 400 þúsund Leaf bílar selst í heiminum og Leaf floti heimsins hefur lagt sam- tals að baki 3,6 milljarða kílómetra án þess að alvarlegar bilanir hafi komið upp. Fáar bílgerðir eru til í fleiri útfærslum en Volkswagen Golf. Volkswagen Golf má kaupa með mörgum gerðum bensín- og dísilvéla, sem rafmagns- bíl, tengiltvinnbíl og metanbíl. Enn mun fjölga í útfærslum Golf því Volkswagen vinnur að tveimur gerðum svokallaðra Mild-Hybrid Golf bíla, en slíkir bílar eru með minni rafhlöður og rafmótora en tengiltvinnbílar. Þessar nýju gerðir Golf eru með 1,5 lítra TSI bensínvél með beltadrifinni ræsingu og 48 volta lithium ion rafhlöður á stærð við hefðbundna rafgeyma. Bílarnir verða með nýja 7 gíra DSG „dual- clutch“ sjálfskiptingu. Bílarnir tveir munu bera nafnið Golf MHEV og Golf MHEV Plus en sá síðarnefndi er með stærri 35 hestafla tveimur rafmótorum sem drífa áfram fram- hjólin, en einnig kemur til greina að setja þann rafmótor á aftari öxulinn og er þá bíllinn fjórhjóladrifinn. Sú útfærsla hans er freistandi í fram- leiðslu þar sem það myndi auka akstursgetu bílsins, auka stöðug- leika hans í beygjum og minnka undirstýringu. Volkswagen er lengra komið með útgáfuna með minni rafhlöðunni þar sem hann er einfaldari í framleiðslu. Golf MHEV Plus útfærslan ætti að eyða minna eldsneyti þar sem annar rafmótor hans getur endurheimt hemlunar- afl bílsins. Ekki er ljóst hvenær þessar tvær nýju gerðir Golf verða settir á markað. Volkswagen vinnur að tveimur Mild-Hybrid Golf Japanski bílaframleiðandinn Nissan, sem leitt hefur þróun rafmagnsbíla á almennum neytendamarkaði með mest selda rafmagnsbílnum Leaf, hyggur á frekari landvinninga á þessu sviði. Volkswagen Golf má kaupa með mörgum gerðum bensín- og dísilvéla, sem rafmagnsbíl, tengiltvinnbíl og metanbíl. AXARHÖFÐA 16 foliatec.is 5673322 LED Perur Bjóðum nú felgur á ameríska-pallbíla jeppa- Land Cruser og alla fólksbíla Gæðavottaðar álfelgur 5 . d e s e M b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r8 b í l A r ∙ F r É T T A b l A Ð I Ð Bílar 0 5 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 6 -E 9 A C 1 E 6 6 -E 8 7 0 1 E 6 6 -E 7 3 4 1 E 6 6 -E 5 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.