Fréttablaðið - 05.12.2017, Síða 18
Rannsóknir hafa
sýnt að efni í heil-
anum, sem er skamm-
stafað CGRP á ensku,
tengist bæði sársauk-
anum og viðkvæmninni
fyrir ljósi og hljóði sem
fylgir mígreni. Meðferðin
snýst um að láta mótefni
breyta virkni CGRP.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
Lilja æfir fitness og starfar sem einkaþjálfari í Sport-húsinu með tilheyrandi álagi
á líkamann. Hún segist alltaf hafa
verið í baráttu við appelsínuhúð.
„Ég hef farið í spm-meðferð hjá
Heilsu og útliti sem gengur út á
sogæðanudd með þrýstingsvélum
fyrir læri, maga og upphandleggi.
Þessi meðferð losar um stíflur í
líkamanum auk þess sem hún
styrkir hann og húðin verður
stinnari. Meðferðin virkar full-
komlega. Strax eftir fyrstu skiptin
sá ég mikinn mun á húðinni og er
virkilega ánægð með árangurinn.
Það er í raun ótrúlegt hvað þetta
virkar vel,“ segir Lilja sem hefur
farið tvisvar í viku í sogæðanuddið.
„Manni líður frábærlega vel eftir
meðferð og ég get mælt hundrað
prósent með henni. Ég gæti trúað
að flest allir fullorðnir hefðu gott
af þessari meðferð því hún örvar
sogæðakerfið og hreinsibúnaðinn
í líkamann. Þeir sem eru með
sogæðavandamál ættu hiklaust að
prófa. Örugglega líka gott fyrir þá
sem þjást af vefjagigt,“ segir Lilja.
Hún hefur einnig farið í vafn-
ingsmeðferð hjá Heilsu og útliti.
Losnaði við appelsínuhúð
Heilsa og útlit, Hlíðasmára 17, sérhæfir sig í meðferðum sem bæta líðan, heilsu og útlit. Lilja Ingva-
dóttir, einkaþálfari og keppandi í fitness, hefur náð góðum árangri í baráttunni við appelsínuhúð.
Lilja Ingvarsdóttir hefur miklu stinnari húð og er laus við appelsínuhúð eftir meðferð hjá Heilsu og útliti. MYND/STEFÁN
Tvær klínískar rannsóknir hafa farið fram nýlega á tveimur ólíkum mótefnum við
mígreni. Í annarri þeirra fækkaði
köstum um helming hjá um 50%
þátttakenda. Frekari rannsóknir
þarf til meta langtímaáhrifin.
Ný nálgun
Rannsóknir hafa sýnt að efni í heil-
anum, sem er skammstafað CGRP
á ensku, tengist bæði sársaukanum
og viðkvæmninni fyrir ljósi og
hljóði sem fylgir mígreni. Með-
ferðin snýst um að láta mótefni
breyta virkni CGRP.
Fjögur lyfjafyrirtæki keppast
nú við að þróa mótefni sem gera
CGRP óvirkt. Sum gera það með
því að slökkva á efninu sjálfu, á
meðan önnur slökkva á hluta af
heilafrumu sem efnið hefur áhrif
á. Klínískar rannsóknir á tveimur
af þessum mótefnum hafa nú verið
birtar í ritrýnda læknisfræðitíma-
ritinu New England Journal of
Medicine, einu elsta og virtasta
læknisfræðitímariti heims.
Mikið færri köst
Mígreni skiptist í tvær ólíkar
megingerðir, þrálátt mígreni og
mígreni sem kemur í köstum. Ef
fólk fær mígreni sjaldnar en 15
daga í mánuði er það skilgreint
sem mígreni í köstum en ef fólk
fær það oftar er það skilgreint sem
þrálátt mígreni.
Mótefnið erenumab frá lyfja-
fyrirtækinu Novartis var prófað á
955 sjúklingum sem fá mígreni í
köstum. Í byrjun rannsóknarinnar
fengu sjúklingarnir mígreni átta
daga í mánuði að meðaltali. Niður-
stöður rannsóknarinnar sýndu að
50% þeirra sem voru sprautaðir
með mótefninu fengu helmingi
færri köst í mánuði, á meðan 27%
fengu svipuð áhrif án meðferðar,
sem endurspeglar eðlilegar sveiflur
sjúkdómsins.
Annað mótefni, fremanezumab,
frá lyfjafyrirtækinu Teva, var
prófað á 1.130 sjúklingum með
þrálátt mígreni. Um 41% sjúklinga
fékk mígreni helmingi færri daga
en áður, samanborið við 18% sem
fengu ekki meðferð.
Prófessor Peter Goadsby, sem
leiddi rannsóknina á erenumab
við King‘s College í London, sagði
í viðtali við BBC: „Þetta er stór-
mál, því þetta gefur betri skilning
á mígreni og sérhannaðri meðferð
við því. Þetta minnkar tíðni og
alvarleika höfuðverkjanna. Þessir
sjúklingar fá hluta af lífi sínu aftur
og samfélagið fær þetta fólk aftur
til virkni.“
Hann sagði að gögn sem fengust
úr rannsókninni en voru ekki gefin
út gæfu til kynna að fimmtungur
sjúklinga fengi ekki mígreni aftur
eftir meðferð.
Langtímaáhrifin ekki þekkt
Mótefnin eru ekki einu lyfin sem
eiga að koma í veg fyrir mígreni.
Flogaveikilyf, hjartalyf og bótox
eru líka notuð. Simon Evans,
framkvæmdastjóri góðgerðar-
samtakanna Migraine Action, sem
eru stærstu ráðgjafar- og stuðn-
ingssamtök mígrenisjúklinga og
aðstandenda þeirra í Bretlandi,
segir að þessi lyf hafi ýmsar auka-
verkanir og virki ekki fyrir alla.
Prófessor Goadsy telur að sjúkl-
ingar sem geta ekki nýtt sér með-
ferðirnar sem eru þegar til staðar
séu líklegastir til að njóta góðs af
þessari nýju meðferð, en gallinn
við mótefni er að þau eru dýrari í
framleiðslu en aðrar meðferðir.
Vonast er til að uppgötvun á
CGRP og notkun mótefna sem
vinna gegn því skapi færri auka-
verkanir. En báðar rannsóknirnar
benda á að það þurfi frekari rann-
sóknir til að meta öryggi mót-
efnanna til lengri tíma. Enn er ekki
vitað hver langtímaáhrifin verða,
hverjum meðferðin gagnast, né
hvaða aukaverkanir gætu komið
í ljós.
Mótefni við
mígreni
lofa góðu
Prófanir á nýjum mótefnum við
mígreni lofa góðu. Þau virðast geta
fækkað köstum verulega og dregið
úr alvarleika þeirra. Frekari rannsóknir
þarf til að meta áhrifin betur.
Mígrenihöfuðverkir geta verið mjög tíðir og eyðilagt heilu dagana hjá fólki. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
„Þá er maður vafinn inn í sérút-
búið plast og hitateppi sem gerir
það að verkum að maður svitnar
mikið. Þetta er algjör slökun og
gerir manni sérstaklega gott. Til
dæmis slaknar á öllum vöðvum í
meðferðinni og gerir hún húðina
mjúka og fallega.“
Lilja tekur þátt í Arnold Classic
Fitness keppninni í mars og undir-
búningur er í fullum gangi. Með-
ferðin hjá Heilsu og útliti er liður
í því. „Ég er 46 ára og það er mikil-
vægt fyrir mig að fá húðina góða
fyrir keppnina,“ segir Lilja. „Heilsa
og útlit er líka með sérstaka með-
ferð fyrir fólk sem hefur lent í slysi
eða á við einhver meiðsl að stríða.
Sú meðferð er mjög árangursrík
fyrir þá sem eru með gigt,“ segir
Lilja og bætir við að sonur hennar
hafi fengið góðan bata í Vacu Sport
tækinu eftir skurðaðgerð.
Heilsa og útlit býður upp á
fjölbreytt úrval meðferða sem
miða allar að því að auka lífsgæði
og heilbrigði. Hægt er að skoða
meðferðir sem eru í boði hjá
Heilsu og útliti á heimasíðunni
heilsaogutlit.is eða fá upplýsingar í
síma 562-6969.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . D E S E M B E R 2 0 1 7 Þ R I ÐJ U DAG U R
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
6
7
-1
1
2
C
1
E
6
7
-0
F
F
0
1
E
6
7
-0
E
B
4
1
E
6
7
-0
D
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K