Fréttablaðið - 05.12.2017, Síða 30

Fréttablaðið - 05.12.2017, Síða 30
Þrettán síðustu ársfjórðunga hefur verið tap af sölu bíla Ford í S-Ameríku. Þessu finnst ráðamönnum Ford í Detroit erfitt að kyngja og íhuga að fara af markaði í þeim löndum þar sem verst gengur. Ekki er víst að Ford muni draga sig af þessum svæðum nema tímabundið, eða uns efnahagsástandið lagast. Það gæti verið ansi stór biti fyrir Ford að draga sig alfarið af markaði í álfunni, en slæmt stjórnmálalegt og efnahagslegt ástand víða í löndum S- Ameríku gerir starfsemi Ford þar lítt áhugaverða og engu fyrirtæki finnst eðlilegt að horfa upp á svo við- varandi taprekstur. Fyrstu 9 mánuði ársins hefur Ford tapað 61 milljarði króna á starfseminni í S-Ameríku og tapið var enn meira í fyrra á sama tíma. General Motors hætti allri sölu bíla sinna í Venesúela á þessu ári. Ford íhugar að hætta sölu bíla víða í S-Ameríku vegna efnahagsástands Ekki er víst að Ford muni draga sig af þessum svæðum nema tímabundið. Það fer vafalaust ekki fram hjá neinum að mikill vöxtur er í sölu rafmagns- og tvinnbíla í heiminum og í fyrsta skipti mun sú sala ná yfir eina milljón bíla. Á þriðja ársfjórð- ungi ársins voru seldir 287.000 rafmagns- og tvinnbílar og nam vöxturinn 23% frá öðrum ársfjórð- ungi og 63% frá þriðja ársfjórðungi í fyrra. Mestur er vöxturinn í Kína og þar í landi var helmingur allra rafmagns- og tvinnbíla seldur á þessum þriðja ársfjórðungi ársins. Þessar tölur koma líklega ekki á óvart í ljósi þess hve bílafram- leiðendur keppast nú við að fjölga rafmagns- og tvinnbílum í bíla- flóru sinni, ekki síst þeir kínversku. Margir bílaframleiðendur hafa lýst því yfir að allar þeirra bíl- gerðir verði brátt boðnar annað- hvort sem tengiltvinnbílar eða hreinræktaðir rafmagnsbílar. Enn fremur hafa margir þeirra líka lýst því yfir að brunavélar sem brenni jarðefnaeldsneyti verði innan fárra áratuga vart í boði í þeirra bílum. Sala rafmagns- og tvinnbíla yfir 1 milljón á árinu Nissan Leaf er mest seldi rafmagns- bíll heims. Kraftbíladeild Volvo, sem fengið hefur heitið Polestar mun einn- ig fá eigin verksmiðju og er smíði hennar hafin í Chengdu í Kína. Þar fjárfestir Volvo, eða öllu heldur eigandi Volvo, Geely, fyrir 78 milljarða króna. Verksmiðjan á að verða tilbúin um miðbik næsta árs, en ekki er þó stefnt að útkomu fyrsta bílsins sem þar verður smíðaður, Polestar 1, fyrr en árið 2019. Þessi nýja verksmiðja verður að sögn Volvomanna umhverfis- vænsta bílaverksmiðja í Kína, en í leiðinni sú skilvirkasta. Volvo ætlar að kynna næsta bíl Polestar, þ.e. Polestar 2 einnig á árinu 2019 og verður hann á stærð við Tesla Model 3 bílinn. Heyrst hefur síðan af þróunarvinnu Polestar 3, sem verður jeppi á stærð við Tesla Model X. Polestar 1 á að verða 600 hestafla orkubolti í formi tengil tvinnbíls. Hann verður með ógnarlegt tog upp á 1.000 Nm og fjórhjóladrif þar sem rafmót- orar drífa afturhjólin og 2,0 lítra bensínvél framhjólin. Polestar 1 á að geta farið fyrstu 150 kíló- metrana á rafmagni eingöngu, en á EV-stillingu er hann eingöngu afturhjóladrifinn. Polestar 1 mun þó kosta skildinginn því heyrst hefur að verðmiðinn á honum verði 177.000 dollarar, eða um 18 milljónir króna. Volvo reisir Polestar verksmiðju í Kína Polestar 1 REYNSLUAKTU CORSA FYRIR JÓL! Opel Corsa Vinnur þú iPhoneX í reynsluakstursleik Corsa? Komdu í Opel salinn og reynsluaktu Corsa. Þú getur unnið iPhone X. iPhone X í verðlaun Kynntu þér Corsa á benni.is THE FUTURE IS EVERYONE’S Reykjavík Tangarhöfða 8 590 2000 Reykjanesbæ Njarðarbraut 9 420 3330 Opið virka daga frá 9 til 18 Laugardaga frá 10 til 14 Verið velkomin í reynsluakstur Komdu fyrir Þorláksmessu í Opel salinn að Tangarhöfða eða Njarðarbraut 9 í Reykjanesbæ og reynsluaktu Corsa. Þú kemst í vinningspott og getur unnið iPhone X. Vinningshafi verður dreginn út 29. desember. Opel Corsa Enjoy, beinskiptur. Verð: 2.290.000 kr. Opel Corsa Enjoy, sjálfskiptur. Verð: 2.490.000 kr. 5 . d e S e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r12 b í l A r ∙ F r É T T A b l A Ð I Ð Bílar 0 5 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 6 7 -1 1 2 C 1 E 6 7 -0 F F 0 1 E 6 7 -0 E B 4 1 E 6 7 -0 D 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 4 _ 1 2 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.