Fréttablaðið - 05.12.2017, Blaðsíða 40
enær
Góða
skemmtun
í bíó
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Þriðjudagur
hvar@frettabladid.is
5. desember 2017
Tónlist
Hvað? Daniel Rorke Tríó á Kexi
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Í kvöld kemur fram trió ástralska
saxófónleikarans Daniels Rorke.
Með honum leika þeir Valdimar
K. Sigurjónsson á kontrabassa og
Matthías Hemstock á trommur.
Þeir munu flytja blöndu frumsam-
innar tónlistar og eigin útsetninga
þekktra djasslaga.
Hvað? Hádegistónleikar í Hafnarborg
– Hjónajól
Hvenær? 12.00
Hvar? Hafnarborg, Hafnarfirði
Í dag er komið að desembertón-
leikum hádegistónleikanna. Yfir-
skrift tónleikanna er Hjónajól en
það eru hjónin Þórunn Marinós-
dóttir sópran og Hlöðver Sigurðs-
son, tenór og meðlimur Sæta-
brauðsdrengjanna, sem koma fram
að þessu sinni. Að venju verður
sérstakur hátíðarbragur yfir efnis-
skránni og þar mun einnig leynast
jólauppskrift úr eldhúsi hjónanna.
Hvað? Magnum Mysterium Jan
Lundgren, Barbörukórinn & Sigríður
Thorlacius
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Stórtónleikar í Norðurljósasal
Hörpu með sænska djasspíanist-
anum Jan Lundgren og kontra-
bassaleikaranum Hans Backen-
roth. Þar munu þeir flytja hið
fræga klassíska kórverk Magnum
Mysterium ásamt Barbörukórnum.
Loks mun söngkonan Sigríður
Thorlacius flytja sænsk djasslög
við undirleik Jans Lundgren.
Viðburðir
Hvað? Norræna velferð til framtíðar
Hvenær? 12.00
Hvar? Norræna húsinu
Norðurlönd í fókus boðar til opins
fundar í Norræna húsinu til að
ræða norræna velferð til framtíðar.
Hvað? Opinn fundur – Hugmyndir um
breytta notkun á Deiglunni
Hvenær? 17.00
Hvar? Deiglan í Listagili, Akureyri
Stjórn Gilfélagsins hefur sett fram
hugmyndir um að auka nýtingu
Deiglunnar, sem hafa verið kynntar
á tveimur aðalfundum Gilfélagsins,
en nú á að efna til opins fundar
þar sem öllum sem hafa áhuga á
málinu er boðið að mæta og leggja
sínar hugmyndir fram. Við hvetjum
alla áhugasama um efnið og eru
búsettir á Eyjafjarðarsvæðinu að
mæta og taka til máls. Á fundinum
verða hugmyndir Gilfélagsins um
breytingar á Deiglunni kynntar í
máli og myndum.
Hvað? Bókmenntakvöld
Hvenær? 19.30
Hvar? Bókasafn Seltjarnarness
Bókmenntakvöld með jólalegum
blæ í Bókasafni Seltjarnarness
en boðið verður upp á jólaglögg
og smákökur. Það er lífskúnstn-
erinn Jón Sigurður Eyjólfsson sem
kemur til að lesa upp úr og fjalla
um bók sína Tvíflautan. Bókasafn
Seltjarnarness er fyrsti viðkomu-
staður Jóns Sigurðar til að kynna
bók sína en hann býr í Andalúsíu á
Spáni og stoppar aðeins í eina viku
á landinu.
Hvað? Have a Merry Kexmas 2017
Hvenær? 20.30
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Nú er sá tími ársins sem blóð-
þrýstingurinn fer yfir heilbrigð
mörk og við verðum vansvefta af
streitu. Segið skilið við vanlíðan og
njótið aðdraganda jóla með okkur
í rólegheitunum á Kexi í desember.
Eggjapúns, Irish coffee, jólamat-
seðill Sæmundar í sparifötunum,
jóladjass, möndlur, tónleikahald,
barnaskemmtun, upplestur og
tólgarkertaljós.
Hvað? Ójöfnuður á Íslandi – Stefán
Ólafsson á fundi SffR
Hvenær? 20.15
Hvar? Samfylkingarfélagið í Reykjavík,
Hallveigarstíg
Frá lokum síðari heimsstyrjaldar-
innar og fram til 1995 ríkti mikill
jöfnuður á Íslandi. Eftir það og allt
fram að bankahruni jókst ójöfn-
uður hér á landi verulega. Árið
2013 tók ójöfnuður að aukast á ný.
Í síðustu viku kom út bókin Ójöfn-
uður á Íslandi – Skipting tekna
og eigna í fjölþjóðlegu samhengi.
Bókina skrifuðu Stefán Ólafsson og
Arnaldur Sölvi Kristjánsson. Stefán
kemur á fund Samfylkingarfélags-
ins í Reykjavík í kvöld og fjallar um
hvernig tekju- og eignaskipting
á Íslandi þróaðist frá millistríðs-
árunum til samtímans.
Hvað? JólaGestir* Ragga og Dassa
2017
Hvenær? 20.00
Hvar? Gunnarshús, Dyngjuvegi
Einstök kvöldstund þar sem
skemmtikraftarnir Dagur Hjartar-
son og Ragnar Helgi Ólafsson axla
ábyrgð á bókum sínum, Heila-
skurðaðgerðinni og Handbók um
minni og gleymsku. Bækurnar
verða til sölu. Hverju seldu eintaki
fylgir bolli af prestakaffi. Félagarnir
munu líka líta um öxl og fara yfir
farsælan feril, segja skemmtisögur
úr bransanum sem margar hverjar
hafa ekki heyrst áður.
Hvað? Ljóðakvöld - C is for Cookie
Hvenær? 20.00
Hvar? C is for Cookie, Týsgötu
Í kvöld mæta nokkur ljóðskáld
með ljóðabækur sínar og leyfa
okkur að njóta skáldskapar
síns. Þau skáld sem lesa upp eru
eftirfarandi: Hallgrímur Helgason,
Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Jóhann
Valur Klausen, Sigríður Helga
Sverrisdóttir, Kött Grá Pjé, Margrét
Lóa Jónsdóttir og Dóri DNA.
Hvað? Öld einmanaleikans
Hvenær? 16.30
Hvar? Háskólinn í Reykjavík
Málþing um einmanaleika í
nútímaþjóðfélagi, allir velkomnir.
Fyrirlesarar: Sigrún Daníelsdóttir,
sálfræðingur hjá Embætti land-
læknis, Halldóra Jónsdóttir, geð-
læknir og yfirlæknir bráðadeildar
og bráðamóttöku Landspítalans,
Óttar Guðbjörn Birgisson, sál-
fræðingur hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja. Fundarstjóri verður
Þorsteinn Guðmundsson, leikari
og annar verkefnisstjóra Bataskóla
Íslands.
Hvað? Tilnefningahátíð Fjöruverð-
launanna
Hvenær? 17.00
Hvar? Borgarbókasafnið
Velkomin á tilnefningahátíð Fjöru-
verðlauna – bókmenntaverðlauna
kvenna. Hátíðin verður haldin
í Borgarbókasafninu í Tryggva-
götu. Dómnefndir tilnefna bækur
í þremur flokkum: fagurbók-
menntum, barna- og unglingabók-
menntum, fræðibókum og ritum
almenns eðlis.
Sigríður Thorlacius kemur fram með sænska djasspíanistanum Jan Lundgren í
Hörpu. FréTTabLaðið/ViLHeLm
ÁLFABAKKA
DADDY’S HOME 2 KL. 5:40 - 8 - 9 - 10:20
DADDY’S HOME 2 VIP KL. 5:40 - 8
COCO ÍSL TAL KL. 5:20 - 6:20
COCO ENSKT TAL KL. 5:20 - 8 - 10:40
JUSTICE LEAGUE 3D KL. 5:20 - 8 - 10:40
JUSTICE LEAGUE 2D VIP KL. 10:20
THOR:RAGNAROK 2D KL. 8 - 10:40
DADDY’S HOME 2 KL. 5:40 - 8 - 10:20
COCO ÍSL TAL KL. 5:30
JUSTICE LEAGUE 2D KL. 5:20 - 8 - 9 - 10:30
THOR:RAGNAROK 2D KL. 5:20 - 8 - 10:30
EGILSHÖLL
DADDY’S HOME 2 KL. 5:30 - 8 - 10:20
COCO ÍSL TAL KL. 5:20
JUSTICE LEAGUE 3D KL. 5:10 - 7:45 - 10:20
THOR:RAGNAROK 2D KL. 7:45 - 10:30
KRINGLUNNI NÚMERUÐ SÆTI
DADDY’S HOME 2 KL. 5:40 - 8 - 10:20
COCO ÍSL TAL KL. 5:20
JUSTICE LEAGUE 2D KL. 8 - 10:40
AKUREYRI
DADDY’S HOME 2 KL. 8
COCO ÍSL TAL KL. 5:20
JUSTICE LEAGUE 2D KL. 10:20
KEFLAVÍK
VARIETY
CHICAGO SUN-TIMES
THE HOLLYWOOD REPORTER
THE PLAYLIST
ROGEREBERT.COM
NEW YORK POST
KAUPTU BÍÓMIÐANN
Í SAMBÍÓ APPINU
92%
TOTAL FILM
EMPIRE
CINEMABLEND
JÓLAGRÍNMYNDIN Í ÁRPEPS
IBÍÓ
- 5
0%
AF
MI
ÐAN
UM
PEP
SIB
ÍÓ -
50
% A
F M
IÐA
NU
M
PEP
SIB
ÍÓ -
50
% A
F M
IÐA
NU
M
PEP
SIB
ÍÓ -
50
% A
F M
IÐA
NU
M
BÍÓ
á þriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allar myndir nema íslenskar
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 8, 10.15
SÝND KL. 8, 10.25
SÝND KL. 6
SÝND KL. 5.30, 8, 10
HAPPY HOUR Á
BARNUM 17-19
The Party 18:00
Listy Do M3 ENG SUB 18:00
Atvikið á Nile Hilton hótelinu 18:00
The Holiday 20:00
The Killing of a Sacred Deer 20:00, 23:00
Mother! 20:00
Suburbicon 22:15
Undir Trénu ENG SUB 22:30
Strákarnir okkar og skæðustu keppinautarnir!
Ótrúleg sigurganga Íslands í undankeppninni!
Saga HM og gömlu kempurnar!
ALLT UM HM 2018 Í MÁLI OG MYNDUM
Hverjir verða markakóngar?
Verja Þjóðverjar titilinn?
Færir Neymar Brasilíu gullið?
LESTU UM ÞÁ BESTU
OG SKOÐAÐU MYNDIRNAR
BÓK SEM HITTIR BEINT Í MARK
ÓLAFUR HAUKUR SÍMONARSON
DÝRAGARÐURINN
SJÁLFSTÆTT FRAMHALD
5 . d e s e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U d A G U r20 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A Ð I Ð
0
5
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
6
6
-F
3
8
C
1
E
6
6
-F
2
5
0
1
E
6
6
-F
1
1
4
1
E
6
6
-E
F
D
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
4
_
1
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K