Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Qupperneq 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017 Enda þótt fáum sé nafnið Krystyna Skarbek tamt er talið að Ian Fleming, faðir James Bond, hafi byggt tvær kvenpersónur á henni, Ves- per Lynd í Casino Royal, og Tatiönu Romanovu í From Russia, with Love. Clare Mulley útilokar þetta ekki en segir Flem- ing þá hafa byggt á orð- rómi enda hafi þau aldrei hist í lifanda lífi. Mulley þykir saga Skarbek upplagt kvikmyndafóður og þegar er búið að selja réttinn. Engin önnur en Angelina Jolie hefur verið orðuð við verkefnið. Hún skíðaði út úr Póllandi meðmyndefni á örfilmum, semhún hafði komist yfir, falið í leðurhönskunum sínum en það gaf fyrstu vísbendinguna um Barbar- ossa-aðgerðina; áform nasista um að ráðast á þáverandi bandamenn sína, Sovétmenn, í seinni heimsstyrjöld- inni. Myndefnið skilaði sér alla leið inn á skrifborð Winstons Churchills, sem síðar kallaði hana „uppáhalds njósnarann sinn“, að sögn dóttur hans, Söruh. Nasistar í Póllandi handtóku hana árið 1941, ásamt ástmanni sínum, en hún fékk þau laus úr haldi á þeim for- sendum að hún væri með berkla. Hóstaði blóði máli sínu til stuðnings. Það sem nasistarnir vissu ekki var að blóðið kom ekki upp úr henni, heldur úr tungunni sem hún hafði bitið í í þessum tilgangi. Þá stökk hún úr fallhlíf yfir Frakk- landi árið 1944 til að greiða götu inn- rásarhers bandamanna og lét heil- mikið að sér kveða, meðal annars með því að koma á sambandi milli frönsku og ítölsku andspyrnuhreyfinganna. Þá tryggði hún flótta þýsks herliðs á mikilvægum stað í Ölpunum og hjól- aði langa leið til að bjarga breskum félaga sínum og tveimur frönskum andspyrnumönnum, þegar nasistar ætluðu að skjóta þá, með stórfelldum ýkjum þess efnis að her bandamanna væri á næstu grösum. Já, pólska greifynjan Krystyna Skarbek var ekkert blávatn. Hún var einn helsti kvenkyns njósnari Breta í seinna stríði en samt hafa afrek henn- ar ekki farið hátt og örlög hennar urðu hörmuleg að stríði loknu. „Hún var ótrúleg kona og það er gjör- samlega galið að hún sé ekki þekkt- ari,“ segir Clare Mulley, sem ritaði ævisögu Skarbek árið 2013, í samtali við breska blaðið The Guardian í vik- unni. „Ég vil alls ekki gera lítið úr öðrum, körlum og konum, sem gegndu sama hlutverki, sögur þeirra eru allar magnaðar, en saga hennar er á hinn bóginn lygileg og hún hefur ekki hlotið þá viðurkenningu sem henni ber.“ Sjálf lagði Mulley sitt lóð á vog- arskálarnar í vikunni, þegar afhjúpuð var brjóstmynd úr bronsi af Skarbek í Pólska arinklúbbnum í Lundúnum. Skarbek fæddist í Varsjá árið 1908, dóttir auðugs greifa af gyðinga- ættum. Faðir hennar lést þegar hún var rúmlega tvítug og eftir það harðnaði á dalnum hjá fjölskyldunni. Skarbek fékk vinnu hjá Fiat- umboðinu í Varsjá en þoldi illa út- blástursreyk og varð frá að hverfa. Að læknisráði fór hún að stunda úti- vist af kappi, meðal annars skíði, sem kom að góðum notum í stríðinu. Hún flúði til Lundúna þegar Þjóð- verjar hernámu Pólland 1939 ásamt eiginmanni sínum, Jerzy Gizycki, þeim öðrum í röðinni. Hann var tröll að burðum og þau kynntust þegar hann skíðaði í veg fyrir Skarbek og bjargaði henni þannig frá fjörtjóni þegar hún hafði misst alla stjórn í brekkum Zakopane. Dó í útrýmingarbúðum Skarbek reyndi mikið að fá móður sína til að sigla í kjöl- farið, smyglaði sér meira að segja heim til Varsjár, en sú gamla harðneitaði og bar síðar beinin í útrým- ingarbúðum Þriðja ríkisins. Skarbek og Gizycki gengu bæði til liðs við bresku leyniþjónustuna en hún fór skömmu síðar að halda við samnjósnara sinn, Andrzej Kowerski, meðan þau unnu að verkefni í Ung- verjalandi. Þar með lauk stormasömu hjónabandi Skarbek og Gizynski. „Hann var minn Svengali svo lengi að hann trúði því ekki að ég myndi fara frá honum,“ á hún að hafa sagt. Skarbek mætti miklu tómlæti í Bretlandi eftir stríð og Mulley gróf upp skjal á þjóðskjalasafninu, þar sem einfaldlega er sagt: „Við þurfum ekki lengur á henni að halda.“ Skar- bek var því leyst frá störfum hjá leyniþjónustunni, með eins mánaðar laun upp á vasann. Til að bíta höfuðið af skömminni neituðu Bretar Skarbek fyrst um rík- isborgararétt enda þótt hún ætti ekki afturkvæmt til Póllands, sem nú var undir handarjaðri Sovétmannna. Þeir sáu þó síðar að sér. Síðustu árin vann Skarbek sem klósettvörður á skemmtiferðaskipi, þar sem hún kynntist manni sem bar til hennar losta. Skarbek hafnaði manninum með þeim afleiðingum að hann elti hana uppi og stakk hana til bana í lobbíinu á hóteli í Earls Court í Lundúnum árið 1952. Hún var 44 ára. Stungin í hjartað af ást- sjúkum manni Pólska greifynjan Krystyna Skarbek átti stutta en viðburðaríka ævi, njósnaði meðal annars fyrir Breta í heimsstyrjöldinni síðari og féll fyrir hendi ástsjúks manns. Enn er barist fyrir því að hún hljóti þá viðurkenningu sem hún þykir eiga skilið. Ursula Andress sem Vesper Lynd. Fyrirmynd Bond-dama Krystyna Skarbek tók sér nafnið Christine Granville þegar hún flutti til Lundúna. Ævi hennar var allt annað en venjuleg. ’ Ég krosslegg fingurna og vonast eftir verðugri og frábærri kvikmynd. Hún á skilið að verða heiðruð almennilega. Clare Mulley, höfundur ævisögu Skarbek. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is ÞÝSKALAND STUTTGART Tvær tegundir af eðlum í útrýmingarhættu, sand- og veggeðlur, tefja nú umfangsmiklar járnbrautarframkvæmdir í Suður- Þýskalandi, á leið sem kallast Stuttgart 21. Þúsundir þeirra hafa fundist á leiðinni og þar sem tegundirnar eru báðar í útrýmingarhættu þarf að flytja þær annað. Deutsche Bahn, sem stendur að framkvæmdunum, metur kostnaðinn á 1,7 milljarða króna. INDÓNESÍA ACEH Saksóknari hefur farið fram á það að tveir menn, 20 og 23 ára, sem gengist hafa við því að eiga í kynferðislegu sambandi, verði hýddir 80 sinnum verði þeir fundnir sekir um samkynhneigð. Mannréttindasamtök hafa mótmælt hástöfum og ímynd Indónesíu sem hófsams múslímaríkis hefur laskast nokkuð vegna málsins og fangelsis- dóms yfir kristilegum leiðtoga vegna guðlasts í vikunni. TAÍVAN TAIPEI May Chen, sem er 28 ára, er ólofuð og með ólæknandi brjósta- krabbamein. Hún lét það þó ekki stöðva sig í því að láta gamlan draum rætast; að láta taka af sér brúðarmyndir. „Úr því draumaprinsinn hefur ekki látið sjá sig ennþá lét ég bara verða af þessu ein míns liðs,“ sagði Chen við breska ríkissjónvarpið, BBC. BANDARÍKIN HOLLYWOOD Leikkonan Jessica Chastain hvetur fleiri konur til að taka að sér kvikmynda- gagnrýni, en 90% gagnrýnenda vestra í dag eru karlar, að hennar sögn. „Gagnrýnendur hafa áhrif á það hvaða kvikmyndir fólk vill sjá og þess vegna er mikilvægt að kynjahlutfallið sé jafnara. Þetta er ekki síður mikilvægt en að fjölga kvenkyns leikstjórum en er eigi að síður mun sjaldnar í umræðunni,“ segir Chastain.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.