Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Blaðsíða 12
VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017 O ft ríkir sérstakt samband hjá systrum, ekki síst þegar stutt er á milli í aldri. Systir getur verið vinkona fyrir lífstíð; ein- hver sem skilur þig betur en nokkur annar. Barnæskan saman einkennist af leik og gleði, kannski líka rifrildum og pústrum, en þegar allt kemur til alls þekkja þig fáir jafn vel og systir þín. Þannig er staðan hjá þeim systrum, Hönsu og Buddu, sem margir kannast við. Hönsu þekkja flestir af fjölunum en hún hefur leikið fjöldann allan af hlutverkum og sungið eftirminnilega á ýmsum vettvangi. Hún er enn að leika og syngja í Mamma Mia og leikur þar aðalhlutverk. Budda hefur átt sitt svið í dómsölum þar sem hún hefur rekið mörg sakamálin. En einnig hún á lítinn leiklistarferil að baki. Hún lék í Eiðinum eftir Baltasar Kormák og þótti standa sig prýðilega í hlutverki rannsóknar- lögreglukonu. Blaðamanni leikur forvitni á að vita meira um þær, hvernig systur eru þær? Hvað eru þær að bardúsa? Eru þær góðar vinkonur? Við mælum okkur mót í hádeginu á drunga- legum mánudegi og setjumst inn á veitinga- stað í miðbænum. Tónlistin er aðeins of hátt stillt fyrir viðtal og við byrjum á að biðja þjón- inn vinsamlegast að lækka. Hansa: Við erum að breytast í pabba okkar. Budda: Pabbi var svona, hann kom inn og sagði bara, viljiði gjöra svo vel að slökkva á þessum helvítis hávaða. Þær systur hlæja. Budda vinnur nú hjá Ríkislögmanni en þar hefur hún starfað í rúm tvö ár. Hún vinnur við einkamál sem höfðuð eru á hendur ríkinu og ver ríkið. Hvernig er nýja starfið? Budda: Þetta er mjög fínt, mér fannst ágætt að breyta til. Ég var svo mikið í sakamálunum og var komin með dálítið nóg af því. Hansa er einnig komin í nýtt starf og vinnur hjá Samtökum iðnaðarins. Hún hyggst leggja leikhúsferilinn til hliðar um stund, a.m.k. sem fastráðinn leikari. Hvernig er vinnunni háttað hjá þér núna? Hansa: Ég er núna í 50% starfi af því ég er enn að leika í Mamma Mia og er að komast smám saman inn í þetta en ég vinn á mennta- sviði. Ég fór í MBA-nám í HR og útskrifaðist árið 2016. Það var alveg „eye-opening“, mjög skemmtilegt nám. Af hverju fórstu að breyta um starf á miðjum aldri? Hansa: Ég hef alltaf haft áhuga á rosalega mörgu, leiklistin hefur aldrei verið það eina sem ég hef haft áhuga á. Þegar maður er búinn að vera á föstum samningi í Borgarleikhúsinu eins og ég er búin að vera, í 17 ár, þá langar mann svolítið að fara að ráða sér sjálfur. Ég er búin að lenda í nokkrum gangsýningum, sem er ofsalega gaman að sýna, en að sama skapi svakaleg binding. Fjölskyldan situr á hakanum. Mig langar að vera meiri gerandi í mínu lífi. En þú ert ekkert hætt í leiklistinni eða söngnum? Nei, nei, ég skoða allt. Það er bara aðallega það að vera ekki fastur, nú er ég meira sjálf að velja og hafna. Er ekkert þreytandi til lengdar að leika í Mamma Mia? Ég skal alveg viðurkenna að mér finnst hver einasta sýning sem ég hef sýnt skemmtileg, mér finnst rosalega gaman að sýna þetta. Ég ólst upp við ABBA og elska þessi lög og allt það. En stundum er erfitt að koma sér niður eftir þegar allir eru að gera eitthvað annað og maður var kannski að sýna 6-7 sinnum í viku eins og við gerðum síðasta vor. Foreldrar systranna eru Guðrún Erlends- dóttir, lögfræðingur og fyrrverandi hæstar- réttardómari, og Örn Clausen lögmaður en hann er látinn. Þær systur ólust upp á ástríku menntaheimili ásamt eldri bróður, Ólafi. Hvernig uppeldi fenguð þið? Hansa: Við vorum hvattar áfram í því sem við gerðum og þá sérstaklega að við ættum að sækja okkur menntun á sviði sem við hefðum áhuga á. Budda: Ég var ekkert sérstaklega hvött til að fara í lögfræði. Alls ekki. En það var lögð rosalega mikil áhersla á að við myndum „Hansa var Agnetha og ég Anni-Frid“ Systurnar Jóhanna Vigdís og Guðrún Sesselja Arnardætur eru hæfileikaríkar, klárar og hressar konur sem hafa haslað sér völl á ólíkum sviðum, önnur er leikkona og hin lögfræðingur. Báðar hafa þær nýlega stigið út fyrir þægindarammann og segja það nauðsynlegt. Guð- rún lék í bíómynd og Jóhanna kláraði MBA-nám og fer nú í launalaust leyfi frá leikhúsinu. Þær Hansa og Budda, sem svo eru kallaðar, eru bestu vinkonur, tala saman daglega og þiggja ráð hvor hjá annarri. Saman fara þær yfir mál málanna, lífið og tilveruna. Hansa og Budda segjast alltaf hafa verið góðar vinkonur og tala saman stundum oft á dag. Allar stórar ákvarðanir bera þær hvor undir aðra. Ljósmyndir og texti Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Það var virkilega gaman að hitta þær systur og skyggnast aðeins inn í líf þeirra. Þær eru báðar þekktar á sínum sviðum og hafa náð langt í lífinu og forvitnilegt að hitta þær saman og láta þær bera saman bækurnar, tala um æskuna, vináttuna og lífið í dag.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.