Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Blaðsíða 17
Filippus hefur í gegnum tíðina átt það
til að segja annað hvort eitthvað aga-
lega fyndið eða hrikalega vandræða-
legt á opinberum vettvangi. Hér eru
nokkur dæmi:
Þegar honum var sagt að Madonna
syngi þemalagið við Die Another Day
árið 2002: „Þurfum við eyrna-
tappa?“
Hann reiddist bílastæðaverði
sem þekkti hann ekki árið
1997: „Vitleysingurinn
þinn!“
Hann spurði Simon Kelner
lýðveldissinna og ritstjóra
The Independent í móttöku
í Windsor-kastala hvað
hann væri eiginlega að gera
þarna? Hann svaraði því til
að hann hefði verið boð-
inn. „Jæja, en þú þurft-
ir ekki að mæta.“
Við aðflutta Breta í
Abu Dhabi árið 2011.
„Eruð þið að flýja
frá einhverju?“
Við forseta Nígeríu,
sem var í þjóðbúningi, árið
2003. „Þú lítur út fyrir að
vera klár fyrir svefninn!“
Sagt við hópinn Diversity,
sem var af mismunadi kyn-
þáttauppruna og vann Brita-
in’s Got Talent árið 2009.
„Eruð þið öll í sömu fjöl-
skyldunni?“
Við heyrnarlaus börn í stáltrommusveit
árið 2000. „Heyrnarlaus? Ef þið eruð
alltaf nálægt þessu, þá kemur það ekki
á óvart að þið séuð heyrnarlaus.“
Sagt við Elton John um gyllta Aston Martin
bíl tónlistarmannsins árið 2001. „Ó, ert það
þú sem átt þennan hræðilega bíl?“
Um hversu erfitt það sé að verða ríkur í
Bretlandi. „Hvað með Tom Jones? Hann
hefur grætt milljónir og hann er alveg
hræðilegur söngvari.“
Á skoskri fiskeldisstöð. „Svo þið eruð
fólkið sem er að eyðileggja árnar okkar!“
Þegar hann fékk gjafakörfu frá bandaríska
sendiherranum árið 1999. „Hvar er flaskan
af Southern Comfort?“
Árið 2000. „Fólk heldur að það sé mjög
mikil stéttaskipting hérna en hertogar
hafa átt það til að kvænast dönsurum.
Sumir hafa meira að segja kvænst
Bandaríkjamönnum.“
að gera hestvagnaakstur að íþrótt í Bret-
landi og hefur keppt í honum á alþjóðavett-
vangi.
Hann hefði getað orðið æðsti yfirmaður
sjóhersins ef hann hefði ekki kvænst El-
ísabetu. En hann þurfti að gefa feril sinn í
hernum upp á bátinn og við tóku konung-
legar skyldur. Engu að síður hefur hann
alltaf haldið góðum tengslum við herinn og
ýmsar stofnanir tengdar hernum.
Hann hefur verið táknrænn yfirmaður
Konunglega sjóhersins frá 1953 en búist er
við að Harry prins muni taka við af honum.
Vísindi, umhverfi og íþróttir
Hann er velgjörðarmaður margra stofnana
og góðgerðarsamtaka. Þegar hann varð ní-
ræður hætti hann sem formaður eða vel-
gjörðarmaður um tólf félaga en hann hefur
samt sem áður tengingu við um 800 félög.
Hann hefur alltaf sýnt sérstakan áhuga á
vísindum og tæknirannsóknum, iðnaði, um-
hverfisvernd og íþróttum.
Hertoginn er líka þekktur fyrir að vera
fyndinn og jafnvel segja eitthvað óviðeigandi
eins og sjá má á samantekt hér til hliðar.
Filippus er sannarlega litríkur persónuleiki
sem margir munu sakna úr sviðsljósinu.
Ekki er þó öll von úti enn því þrátt fyrir að
Filippus ætli almennt að hætta konung-
legum skyldum sínum hafa talsmenn Buck-
ingham-hallar sagt að hertoginn mæti á
opinbera viðburði „við og við“. Drottningin
heldur áfram að sinna konunglegum skyld-
um sínum með hjálp yngri meðlima kon-
ungsfjölskyldunnar.
Hertoginn af Edinborg hittir allskonar fólk í starfinu, líka
poppstjörnur eins og hina áströlsku Kylie Minogue.
Á sínum yngri árum. Drottningin og Filippus ásamt börnum sínum Karli og Önnu.
Drottningin og Filippus í opinberri heimsókn í Brisbane í Ástralíu. Það er stutt í hláturinn hjá hertoganum. Mynd frá 1994.
Elísabet og Filippus hafa setið fyrir saman á ótalmörgum myndum. Á myndinni til vinstri eru þau
ógift en myndin var tekin 9. júlí árið 1947, þegar tilkynnt var um trúlofun þeirra opinberlega og sú
til hægri var tekin í Balmoral-kastala í tilefni af 32 ára brúðkaupsafmæli hjónanna árið 1979.
Aldeilis flottur uppáklæddur fyrir garðveislu í
Buckingham-höll í tilefni af 93 ára afmælinu.
Filippus er þaulvanur að klippa
borða og afhjúpa minnismerki.
Hertoginn opnaði ásamt drottningunni nýtt
svæði fyrir fíla í dýragarði í Whipshade sem er
norður af London í apríl á þessu ári.
14.5. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17
AFP
„ÞÚ ÞURFTIR EKKI AÐ MÆTA“