Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.05.2017, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.5. 2017 VETTVANGUR Þetta heilræði er svohljóðandi:„Það sem þér viljið að aðrirmenn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.“ Ef við erum í vafa um hvaða stefnu við viljum fylgja í málefnum sem snerta annað fólk, þá nýtist heil- ræðið prýðilega. Hvað myndi ég vilja að gert yrði ef ég sjálfur eða sjálf ætti í hlut? Þessa formúlu má til dæmis nota á úrræði fyrir aldraða sem þurfa á stuðningi að halda. Þá gerðu stefnu- mótendur rétt í að spyrja sjálfa sig, hvaða úrræði þeir kysu sjálfir. Fljótlega kæmi í ljós að svörin væru engan veginn á einn veg. Ein- staklingur sem býr afskekkt eða er án fjölskyldu, væri líklegri að vilja komast á dvalarheimili fyrir aldraða en sá sem býr í þéttbýli, er í nánum daglegum tengslum við fjölskyldu sína og nærri þjónustumiðstöðvum. Þá má ekki gleyma því að við erum ólík að því leyti að sum okkar þrá stöðugt samneyti við sem allra flest fólk en öðrum líður betur með sjálf- um sér eða fáu fólki. Og þar sem svörin eru mismundi ætti það einnig að gilda um lausn- irnar, samkvæmt formúlunni góðu. Það þýðir bara eitt ef vel á að vera og það er valfrelsi. Fólk þarf að geta valið hvað því hentar best. En hver er svo veruleikinn? Hann er þessi: Skorið er niður við hefð- bundnar öldrunarstofnanir og hlut- fallslega fækkað rýmum þar. Þannig að möguleikar fólks til að velja slík úrræði verða stöðugt takmarkaðri, enda nýja stefnan sú að stuðla að því að sem flestir verði á heimilum sín- um sem allra lengst. Forsenda þess að sú stefna gangi upp er aftur sú að því aldraða fólki, sem vill vera sem lengst heima en er hjálparþurfi, sé veittur nauðsyn- legur stuðningur. Það er hins vegar ekki að gerast. Eftir því sem ég kemst næst þá er staðan í þessu efni síður en svo að batna, hún er að versna. Álagið á það fólk sem sinnir þessum umönn- unarstörfum er vaxandi, því fjölgun starfsfólks er í engu samræmi við fjölgun skjólstæðinga. Þetta bitnar á starfsfólkinu og að sjálfsögðu einnig á þeim sem þjónustunnar eiga að njóta. Fyrir ekki svo ýkja löngu var ég ráðstefnustjóri á málþingi sem Sjúkraliðafélag Íslands stóð fyrir í samvinnu við evrópsk systursamtök. Flestum fyrirlesurum varð tíðrætt um mikilvægi opinberrar stuðnings- þjónustu á þessu sviði og höfðu sum- ir orð á að frelsa þyrfti aðstand- endur undan þeim byrðum sem foreldrar og ættingjar gætu orðið þeim. Þá kvað skyndilega við allt annan tón úr ræðupúltinu. Vitnað var í aldraða konu sem snúið hafði dæminu algerlega við: „Í guðanna bænum frelsið mig frá börnum mín- um. Ég hef engan áhuga á nánu samneyti við þau, hvað þá að þau fari að borða með mér daglega, þvo af mér og jafnvel mér sjálfri, nei takk.“ Salinn setti hljóðan en öllum fannst þetta vera viðhorf sem vert væri að íhuga enda snerist það um grund- vallaratriði, nefnilega frelsi ein- staklingsins. Og nú þurfum við að spyrja: Skyldi sú aðstoð sem veitt er þurfandi öldruðu fólki í heimahúsum á Íslandi, vera til þess fallin að gera það að frjálsum einstaklingum? Aldrað fólk í Reykjavík sem ekki ræður við að baða sig sjálft getur fengið aðstoð við böðun einu sinni í viku – að hámarki. Fyrir manneskju sem er byrjuð að missa stjórn á eigin líkama er þetta ekki nóg, það segir sig sjálft. Það á reyndar við um okk- ur öll, óháð aldri okkar, að við viljum geta þrifið okkur á degi hverjum. En er þá ekki komið að því að beita formúlunni góðu, „það sem þér viljið að aðrir gjöri yður það skuluð þér og þeim gjöra“? 2.000 ára heilræði er besti vegvísirinn ’Skyldi sú aðstoð semveitt er þurfandi öldr-uðu fólki í heimahúsum áÍslandi, vera til þess fall- in að gera það að frjáls- um einstaklingum? Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Morgunblaðið/RAX Eurovision hefur skiljanlega verið helsta umræðu- efni samfélags- miðlanna þessa vikuna. Ekki voru þó allir sem horfðu, eins og Hildur Sverrisdóttir, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, sem var föst á þingi en hún tísti á þriðjudags- kvöldið: „Í þingsal er svo heitt í hamsi að forseti slær ítrekað og taktfast í bjölluna. Svo sem vissar sárabætur fyrir að missa af Euro- vision.“ Stefán Máni Sigþórsson rit- höfundur tísti: „Hvað er svona sniðugt við að gera endalaust opinbert grín að útliti, æði og klæðaburði keppenda í Eurovisi- on? Stanslaust shaming.“ Ef fólk var ekki að tísta og skrifa á Facebook um Eurovision var það ný auglýsing Icelandair um fótboltastelpurnar. Þórdís Gísla- dóttir rithöfundur tísti: „Ég tár- aðist hvorki yfir Svölu, Portúgal- anum né Ice- landair-auglýsing- unni. Er ég með steinhjarta?“ Og Þórunn Ólafsdóttir, for- maður Akkeris, samtaka áhuga- fólks um starf í þágu flóttamanna tísti: „Flott auglýsing Icelandair en það er engin kona í yfirstjórn fyrirtækisins og flugfreyjur þurfa enn að vera í hælaskóm í vinnunni. Í alvöru?“ Andrés Jónsson almannateng- ill svaraði þessu til: „Það sem væri flott væri ef for- stjórinn kæmi fram og segði „Við vitum upp á okkur skömmina á sviði jafnréttis- mála og ætlum að bæta úr.““ Jón Ólafsson tónlistarmaður sagði frá því á Facebook hvernig hlustendur út- varpsstöðvarinnar FM 957 urðu af ódauðlegum smíðum: „Á ár- dögum útvarpsstöðvarinnar FM 957 var ég beðinn um að koma með tillögur að stefjum. Það er skemmst frá því að segja að þeim var hafnað. Ein hugmynd mín held ég þó að hefði getað orðið ódauðleg: „FM 957, allt oddatöl- ur“.“ Örn Úlfar Sævarsson auglýs- ingamaður kom með aðra uppá- stungu sem hefði án efa líka slegið í gegn: „FM 957 Allt prímtölur, nema 9.“ AF NETINU jakkafatajoga.is ÁNÆGJA EFLING AFKÖST IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager og á leiðinni Sími 4 80 80 80 2017 F-350 Platinum Ultimate 6,7L Diesel ,440 Hö, 925 ft of torque. Með sóllúgu, power running boards, hita og kæling í sæti, fjarstart, heithúðaðan pall og margt fleira. Ath. aukabúnaður á mynd: 35” breyting. VERÐ 10.390.000 2017 GMC Denali Nýr litur: Mineral metallic. Með sóllúgu, heithúðaðan pall, hita í stýri og fl. Nýja 6,6L Duramax Diesel vélin 445 hö. Einnig til hvítur, svartur og Dark Slate. VERÐ 10.465.000 2017 Chevrolet Silverado High Country Nýja 6.6L Duramax Diesel vélin, 445 HÖ, vel útbúinn bíll t.d. upp- hitað stýri, BOSE hátalarakerfi, upphituð og loftkæld sæti og heithúðaður pallur. Einnig til hvítur. VERÐ 9.790.000 2017 Ram Limited 3500 6,7L Cummins, með loftpúðafjöðr- un, Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúgu, heithúðaðan pall, Ram-box og fl. Einnig til silfur og blár. VERÐ 10.490.000 Ath að myndin er af sambærilegum bíl

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.