Skátablaðið Faxi - 01.12.1988, Blaðsíða 2
00—l<Q — Q Li_<X
l
SKÁTABLAÐIÐ
FAXI
Útgefandi: Skátafélagiö Faxi Vm.
Ábyrgöarm.: Marinó Sigursteinsson
Útlit: Ship-o-hoj/Villi Kr: G
Prentverk: Eyrún h.f. Vm.
Starfsemin í skátafélaginu Faxa
hefur vaxiö nú undanfarin ár
þrátt fyrir allt sem á boðstólum
er, t.d. sjónvarp, vídeó og tleira.
Er gott til þess að vita, að börn
og unglingar vilja ekki lengur
láta mata sig á öllu, en vilja gera
eitthvað á eigin spýtur. Starf-
semi skátafélagsins er fólgin í
fundum og útiveru, þ.e. úti-
Áætlun
Skáta-
félagsins
Faxa
Haustid 1988
og voríó 1989
SEPTEMBER:
Innritað í félagið.
OKTÓBER:
Flokksforingjanámskeið.
NÓVEMBER:
Unnið við félagsblað.
DESEMBER:
Jólablaðsútgáfa.
Jólapóstur.
Jólafundur.
JANÚAR:
Göngudagur tjölskyldunnar.
Aðalfundur.
FEBRÚAR:
Afmæli 22. febrúar.
MARS:
Fermingarskeyti.
APRÍL:
Vetrarferð.
MAÍ:
Skátamót.
Hver af hinum 5 sveitum télagsins
hafa gert sínar áætlanir en þar og í
flokkunum tér hið eiginlega skáta-
starf fram.
legum og göngum. Það skal
viðurkennt hér að maður saknar
þess að sjá ekki 2-3 skátaflokka
á göngu um eyjuna á sunnu-
dögum. Fyrir gos stunduðu
skátar hér í Eyjum að fara í
útilegur út í Skátastykki, en eins
og allir vita þá var stykkið eyði-
lagt eftir gos, og reist þar
íbúðarhús og blokkir. Það sem
Skátafélagið vantar í dag er
landsvæði sem hentar fyrir úti-
legur og aðra útivist. Það hlýtur
að þurfa að bæta Skátafélaginu
Faxa það sem af þeim var tekið
hér eftir gos, og engar bætur
komu fyrir. Ef skátafélagið fengi
úthlutað svæði, (sem stjórn
félagsins hefur þegar augastað
á) gæfist gott tækifæri til að kom
upp gróðri, og yrði þá möguleiki
að gera þær tilraunir sem Land-
græðslan ætlar að gera á því
svæði. Ekki er vafi á því að
skátar hér í Eyjum mundu grípa
þetta tækifæri fegins hendi.
Ungir skátar njóta sín mjög vel í
útilegum og við störf úti í nátt-
úrunni. Þau muna alltaf eftir
sinni fyrstu útilegu og vinna vel
og af áhuga að öllum þeim verk-
efnum sem þeim eru sett fyrir.
Það er því ekki síður ósk frá
ungum skárum hér í Eyjum að
sem fyrst verði tekin ákvörðun
um þessi mál af ráðamönnum
þessa bæjar.
Kjörorð ungra skáta er: „Vilji er
allt sem þarf
Eitt sinn skáti, ávallt skáti. er
gott og gilt enn í dag. Margir af
þeim sem eru komnir um miðjan
aldur og voru skátar þegar þeir
voru ungir, muna eftir því sem
sínum bestu stundum að hafa
verið skátar og eru minningar
flestar tengdar útilegu eða
annarri útivist. Skáti.
Haldiö hcim aö loknu starfi viö Hraunprýði
ALLT EFNI í BLAÐINU ER UNNIÐ AF SKATUM
RITNEFND:
Björg Ó Bragadóttir
Enrilía Borgþórsdóttir
Valgerður Jónsdóttir
Magnús Eggertsson
Þór Jónatansson
Willum Andersen
AUGLÝSINGAR:
Pétur Andersen
Viktor Ragnarsson
Erlingur Guðbjörnss.
Bjarki Guðnason
Halla Andersen leiðrétti handrit
Bjarni Sighvatsson tók forsíðumyndina
2