Skátablaðið Faxi - 01.12.1988, Qupperneq 3
Á leióinni til Betlehem
Maður og kona voru á leiðinni
til Betlehem til þess að láta skrá-
setja sig. Knúin af lagaboði, þótt
konan ætti von á barni á hverri
stundu. Þau voru af þjóð, sem
laut erlendu valdi. Tilgangur
skrásetningarinnar var að krefja
fólk um meiri og hærri skatta til
tjandsamlegs valds. Sagan er
okkur kunn. Við höfum heyrt
hana oft.
Þetta var ekki för, sem þau
höfðu hlakkað til. Það hvíldi
myrkur yfir þessari löngu leið.
. Þau reyndu að fá inni á gisti-
húsunum í Betlehem. en hvergi
var pláss fyrir þau. Það var þar,
sem Frelsari heimsins fæddist.
Nú erum við á aðventunni að
undirbúa komu Frelsarans. Það
er eins og að vera á ferðalagi til
staðar, sem okkur langar að
koma til. Og við erum með
hugmyndir um hvers við
væntum á leiðarenda. Stundum
er för okkar sama merki brennd
og för Maríu og Jósefs til
Betlehem fyrir næstum 2000
árunt, þ.e.a.s. að myrkur hvíli
yfir förinni. En aðrar ferðir búa
yfir fyrirheitum, fylla okkur til-
hlökkun og gleði.
Séra Bragi Skúlason
Á þessari aðventu erum við á
leiðinni til Betlehem, þar sem
við væntum þess að finna
Frelsarann. Við hlökkum til að
komast á leiðarenda, ólíkt
Maríu og Jósef. Á milli þeirra og
okkar eru atburðir, sem breyttu
mannkynssögunni.
Við erum á för, sem felur í sér
ntargvísleg fyrirheit. Hátíðin er
framundan. Og hún er þó aðeins
skuggi þess, sem verða mun við
endi tímanna.
Frelsarinn, Jesús Kristur, er
ekki bara í Betlehem á þessum
jólum. Hann er hér hjá okkur.
Og þótt ferðalög heimsins bjóði
upp á margvíslegt myrkur, þá
getur myrkrið ekki slökkt Ijós
jólanna. En undirbúningurinn
undir komu Frelsarans bendir
okkur á það, að víða er myrkur í
þessum heimi, bæði innra með
fólki og umhverfis það. Margir
berjast, eru hungraðir, heimilis-
lausir, skortir brýnustu
nauðsynjar. Á ferðalögum um
heiminn sjáum við þessa
minnstu bræður og systur, og við
sjáum þau á íslandi líka, þótt við
viljum oft gleyma þeim. Hátíðin
bendir á andstæður: það halda
ekki allir menn og konur í
heiminum gleðileg jól. En Jesús
fæddist vegna okkar allra. Hann
spyr ekki urn hörundslit, efna-
hag, verðleika, aldur, en Hann
spyr um trú. Og þess vegna er
ferðin til jólanna fyllt af fyrir-
heitum Guðs. Guð mun eiga
síðasta orðið í heimi, sem svo oft
felur sig í myrkrinu.
Gleðileg Jól!
Sr. Bragi Skúlason.
3
x>-n O — ö>i— cd>—i>t:co