Skátablaðið Faxi - 01.12.1988, Side 12
X>-r| CD —0>|—03>H>7;C«
Flokksformgjanámskeiö
í Vestmannaeyjum
i
Vmis málet'ni rökrædd
Dagana 14.-16. október var
haldið flokksforingjanámskeið á
vegum Faxa hér í Vestmanna-
eyjum. Flestallir flokksforingjar
Faxa fóru á námskeiðið og voru
það u.þ.b. 30 krakkar á aldr-
inum 13-17 ára. Skátafélagið
Faxi er þannig uppbyggt, að í því
eru fjórar sveitir og innan
hverrar sveitar eru 4-6 flokkar
og eru oftast tveir foringjar með
hvern flokk. Markmið nám-
skeiðsins var meðal annars að
láta foringjana innan hverrar
sveitar kynnast, og mynduðu
sveitirnar því flokka á nám-
skeiðinu.
Klukkan átta að kvöldi föstu-
dagsins 14. október, mættu
flokksforingjarnir í skáta-
heimilið og var þá byrjað á því
að setja námskeiðið. Að því
loknu drógu flokkarnir sér
umslög og á þeim stóð heiti
staðarins sem þeir áttu að fara á
en ekki mátti opna umslagið fyrr
en á staðinn var komið. Á
umslaginu, sem ég var í fékk,
stóð „Skansinn” og þurfti
flokkurinn því að fara út á
Skans. Auk mín, voru í
flokknum þau Högni, Elli,
Páley, Kristbjörg, Hjalti, Ægir
og Pétur. Þegar við komum út á
Skans opnuðuni við umslagið og
var í því blað. Á blaðinu stóð
hvar við áttum að sofa föstu-
dagsnóttina. Það komu aðeins
tveir svefnstaðir til greina og
lentum við í gamla golfskálanum
ásamt foringjum úr Litlu gulu
hænunni, en það er ein sveitin.
Hinir tveir flokkarnir fengu að
gista á Steinsstöðum.
Þegar við komum í Gamla golf-
skálann, var Litla gula hænan
þegar komin þangað og búin að
koma sér fyrir. Þegar við vorum
búin að vera þarna í u.þ.b.
hálftínia komu flokkarnir, sem
áttu að gista á Steinsstöðum.
Það átti að halda kvöldvöku í
Gamla golfskálanum.
Á kvöldvökunni komu allir
flokkarnir með skemmtiatriði
og fengum við kakó í lokin.
Kvöldvakan var í u.þ.b. 2 tíma
og þegar hún var búin fóru þau,
sem áttu að vera á Steins-
stöðum, þangað. Eftir að þau
voru farin, ætluðum við að fara
að sofa. Gekk það frekar illa og
sofnuðum við ekki fyrr en rúmt
þrjú.
Daginn eftir vöknuðum við
klukkan níu og tókum þá til í
Gamla golfskálanum, því að við
áttum ekki að sofa þarna
laugardagsnóttina. Kl. tíu
mættum við í morgunmat í
skátaheimilið og fengum við þar
brauð og súrmjólk. Eftir
morgunmatinn hófust fyrir-
lestrar og þá fluttu sveitar-
foringjarnir og Páll Zóphónías-
son félagsforingi Faxa. Á meðan
að fyrirlestrarnir voru fluttir,
voru flest allir að sofna, vegna
þess hve seint við fórum að sofa
og náðist því miður ekki að fara
yfir allt efnið, sem átti að taka
fyrir á námskeiðinu. Fyrir-
lestrarnir voru alveg til klukkan
að verða fimm, en þó með
ýmsum hléum og hádegismat á
milli. En kl. 5 var dregið um
svefnstað og vildu flestir gista á
Steinsstöðum. Lentum við nú í
kofa uppi á Hrauni sem er í eigu
Hitaveitu Vestmannaeyja og Slappað af
eftir erfiðan dag
12