Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Page 4

Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Page 4
Á afmælismótinu var vel tjaldað í öllum skilningi. Uti um allan bæ mátti sjá skáta í dagskrá. Þeir sprönguðu, unnu frumbyggjastörf, fóru í siglingar og skoluðu þess á milli af sér í lauginni. Á kvöldin ómaði hress og kröftugur ská- tasöngur frá stórum hópi sem safnaðist kringum bálið og þar var bæði mikið hlegið að góðum skemmtiatriðum og líf og fjör undir stjórn varðeldastjóranna. Gjafir voru færðar m.a. plöntur frá Stróki sem virðist hafa það á stefnuskrá að auka hvergerðskan gróður í Vestmannaeyjum. Það var í fáum orðum sagt frábært að sækja Faxa heim og njóta gestrisni þeirra. Kær þökk sé hópnum sem undirbjó mótið og stjór- naði því af skörungsskap. Og alltaf með bros á vör. Á leiðinni heim með Herjólfi fór ég Það var fallegt veður þegar við lögðum frá landi í Þorlákshöfn fimmtu- daginn 9. júlí 1998. Herjólfur klauf ölduna og brátt fengum við frábært útsýni yfir sveitir Suðurlands og þó miklu fremur fjallasýnina. Þessa fjalla- sýn sem Eyjabúar eru svo öfundsverðir af. Á leiðinni var margt spjallað. Það yrði gaman að heimsækja skátana í Faxa og sjá Stykkið þeirra sem talsvert hafði verið rætt um í Landnemahópnum um veturinn og hann Mummi (Guðmundur Vigfússon) hafði oft sagt fólki frá. „Hvað er þetta Stykki?“ spurðu menn, og nú skyldi fengið svar við því. Við ræddum líka um hvað það væri skemmtilegt að ungir skátaforingjar ættu ekki aðeins sitt heimafélag heldur kæmu til liðs við þau skátafélög þar sem þeir væru staddir hverju sinni. Með því móti vex samstarf félaganna og skiln- ingur þeirra í milli og þetta er um leið ágætis skátaskóli fyrir foringjana sjálfa og þá sem njóta krafta þeirra. Land- nemar höfðu einmitt bundist Faxa vin- áttuböndum gegnum slíkt starf. Og nú nálguðumst við Eyjar. Það hvessti dálítið svona rétt til þess að sýna okkur að aldan gæti verið stórtæk á þessum slóðum en brátt var siglt inn í höfnina og á bryggjunni var ljóst að ská- tarnir áttu bæinn þessa daga! Enda ekki lítil ástæða, skátastarf í Vestmanna- eyjum fagnaði 60 ára afmæli. Faxi eldist vel og er ungur þó! Mér eru í fersku minni fyrstu kynni mín af Faxa. Þau voru reyndar gegnum brottflutta skáta sem kölluðu sig Útlaga. Eg man að ég hugsaði, þegar ég heyrði þetta nafn, að römm væri sú taug er rekka drægi heimahaga til, úr því að þeir veldu þetta nafn til þess að lýsa hópnum sem hafði valið sér aðsetur til Iangframa í Reykjavík og víðar fjarri átthögum. En nú vorum við sem sagt komin þangað sem Útlagar áttu rætur sínar. Á bryggjunni var tekið á móti okkur og ekið beint upp í Stykki þar sem tjald- borg var risin, í kastfæri frá bæjarlífínu í Vestmannaeyjum en samt í fullri ró og allt eins og við værum uppi í sveit. Aðsetur skátanna þar í burstabænum er óvenju skemmtilegt og ekki að undra að menn séu stoltir og ánægðir af því. Það er gaman að sjá hve Stykkið gefur góða möguleika á uppbyggingu spennandi útivistarsvæðis. Afmælismót Faxa 60 ára skátafélag SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.