Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Blaðsíða 16

Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Blaðsíða 16
Selfossferð flokksforingja Við fórum í brjáluðu veðri á föstu- deginum með Herjólfi en þrátt fyrir það urðum við ekkert sjóveikar. I Þorlákshöfn tóku tveir Fossbúar á móti okkur. Þeir voru Armann Gemsi og Magnús Gullfiskur. Þegar við komum á Selfoss komum við okkur fyrir í skáta- heimilinu á Selfossi og fórum svo í KA að kaupa nesti. Þegar við komum aftur byrjaði tveggja tíma fyrirlestur og þegar hann var búinn fengu tveir og tveir fyrir- lestrarefni fyrir morgun-daginn, þ.e.a.s. laugardaginn. Svo vorum við rekin í rúmið (dýnurnar) og þá sagði Freydís okkur söguna um Garðabrúðu. Svo vöknuðum við um kl. 9:30 og höfðum fyrirlestrana sem voru til kl.5:00 um daginn. Eftir langan og erfiðan dag og miklar harðsperrur í rass- inum (úl af hinum hörðu selfysku stólum) fórum við loks í sund. Þar vorum við til kl.6:00 þá kom rúta og sótti okkur því það var svo mikil rign- ing. Svo var okkur skipað að taka með okkur hlý föt, svefnpoka og nesti vegna þess að við áttum að fara í óvissuferð. kl. 19:45 fórum við upp í rútu og brunuðum af stað. Það var svo mikið myrkur að við sáum ekkert úti. Svo beygðum við út af veginum og komum að húsi. Svo dimmt var að við sáum bara kertin í gluggunum. Við vorum komin í Dalakot. Við byrjuðum á því að velja okkur koju, en pössuðum okkur samt að velja okkur ekki bekkinn því þar átti að hvíla Dagana 25-28 júní skruppu nokkrir skátar héðan á Landnemamót í Viðey. Við komumst á leiðarenda á fimmtu- dagskvöldinu og þá var skipt í dagskrá- og vinnubúðir en dagskráin var unnin af skátum úr félaginu Landnemum sem er f Rvk. og var hún bara nokkuð góð. Fyrsta daginn var farið frekar snemma að sofa (um miðnætti) og var ræs kl: 10 næsta dag. Vorum við öll sem voru komin frá Eyjum sett í vinnubúðir og sátu því allan daginn og sóluðum okkur á póstum. Eftir kvöldmatinn var kvöld- söngur, þar voru sungin nokkur lög og kynningarleikur fór fram. Á laugar- daginn var ræs líka kl: 10 og sumir fóru í dagskrá en aðrir í vinnubúðir. afturganga hins brotlenta þýska flug- manns (trúlegt). Þegar við vorum búin að þessu og þar með töldu að fá okkur snarl var okkur sagt hin skelfilegasta draugasaga og hún leiddi það af sér að við áttum að fara út að leita að hengda bróðurnum sem sagan fallaði um. Eftir mikinn rammleik um dimmt hraunið og Dagskránni var skipt í 3 lönd og hafði hvert sinn þema sem unnið var að fram á kvöldmat. Um kvöldið var kvöldvaka haldin með skemmtiatriðum og öllu tilheyrandi og Bryggjugleðin svo á eftir en þá var dansað og sungið langt fram á nótt. Á sunnudaginn var ræs kl. 10:30 fyrir þá sem tóku þátt í flokkakeppni svo við fórum ekki á lappir fyrr en um hádegið, mótslit voru um 14:30 og þá fórum við í sund, „út að borða”, í bíó og síðan keyrði hann Ármann Fossbúi okkur niðrí Herjólf sem átti að fara kl:2 um nóttina svo við komumst ekki heim fyrr en um hálf sex um morguninn. Sigga og Steinunn Inkar nokkrar skrámur fundum við loks hinn hengda bróður sem hékk þá í sigbelti og með snöru um hálsinn í trönum við hliðina á skálanum. Svo skriðum við ofan í svefnpoka og hlustuðum á Sigurjón flippa út með rúgbrauð með rjóma lagið og 1000 grænar flöskur til rúmlega fjögur um nóttina. Þá loksins sofnuðum við. ( Það má taka það fram að í Dalakoti er ekki rafmagn, vatn né hiti og þar að auki ógeðslegur útikamar sem við viljum vinsamlegast kvarta yfir). Það sem við vöknuðum við um morguninn var að Ármann var að flauta á rútunni og glugginn hjá okkur var galopinn. Þegar við vorum vöknuð tókum við saman og keyrðum til Selfossar og tókum þar restina af dótinu. Svo keyrðum við í Eden í Hveragerði og þar var splæst ís á línuna. Við fórum svo í bíltúr eitthvað upp í sveit og þar var verið að smala. Þegar við vorum búin að virða fyrir okkur hina íslensku smalamennsku um stund héldum við af stað út á Bakka og flugum heim. Þetta var mjög skemmtileg ferð og við vonum að við gerum þetta einhvern tíma aftur. Elva Dögg og Leifa. Skítugum naríum. Faxa. Viðeyjarmót © SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.