Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Síða 5

Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Síða 5
að hugsa um það sem einkenndi skátas- tarf á hverjum stað. íslenskir skátar hafa löngum tvístigið milli þess að auka dug- nað sinn við að bjarga sér við íslenskar aðstæður og svo hins að flytja inn hæfni skáta til að bjarga sér við erlendar aðstæður. Annars vegar er það íslensk náttúra með hraun, kletta, ár og sjó, hrjóstrug en heillandi. Hins vegar eru það skógar og annar gróður, mildari veðrátta og þrengra umhverfi. Við heim- sóknina á afmælismót Faxa var ég þægi- lega minnt á að íslenskar aðstæður eru heldur ekki alls staðar þær sömu. Það sem við stundum í Eyjum til þess að njóta og kunna á náttúruna þar er ekki það sama sem Strókur stundar í Hveragerði eða Landnemar í Reykjavík. En um leið fannst mér það spennandi tilhugsun að íslensku skátafélögin gerðu meira af því að kynnast heimahögum og aðstæðum annarra félaga, notuðu skáta- tengslin til þess að læra meira um Island í fjölbreytni sinni og hvernig íslensk náttúra birtist okkur á hverjum stað. Dálitlu síðar um sumarið áttum við Freydís (Vigfúsdóttir) þess kost að ræða nokkuð um þetta þegar við gistum finnska skóga í ferð Landnema og fleiri skátavina. Og okkur þótti þetta báðum spennandi möguleiki. Um leið og ég þakka skátunum í Faxa fyrir afmælismótið kem ég hugmynd- inni okkar á framfæri og vona að beint samband og vinátta skátafélaga í milli eigi eftir að aukast enn til muna á komandi árum. Með skátak\>eðju, Anna Kristjánsdóttir Svona var mótið: Dagskrá mótsins var fjölbreytt eins og gerist gjarnan á skátamótum en það sem var öðruvísi við þessa dagskrá var að hún var sniðin eftir þema mótsins: „Náttúran og umhverfið". í því fólgst að kynnast hvernig hægt er að njóta náttúrunnar á umhverfisvænan hátt. Fyrir utan almenna tjaldbúðarvinnu og kvöldskemmtanir voru í boði þrjú svokölluð dagskrálönd sem skátamir (á öllum aldri) skemmtu sér frá morgni og þangað til hungrið fór að kalla, eftir kvöldmat. Þessi þrjú dagskrálönd hétu spröngu- land, þrauta- og metaland og gönguland og öll byggðust þau á ákveðnu þema. I spröngulandi var áhersla lögð á þjóðaríþrótt Vestmanneyinga, sprangið en einnig var hægt að síga niður þverhnípt björg, klifra í bjarginu og á lóðréttum staur eins og þeir gera sem klifra eftir kókoshnetum! í Þrauta og metalandi voru þrautir þreyttar og met sett og slegin. Þar var svakaleg þrautabraut sem engir nema skátar og Tarsan komast yfir, þar var risastór apahönd (hnútur) sem kasta þurfti eins langt og maður gat, þar var bíll sem troða þurfti eins mörgum inní og hægt var og svo framvegis og svo framvegis. I Göngulandi voru fjölbreyttar göngur í boði og allir gátu valið sér gönguleið sem hentaði sér því leiðirnar voru Sigling með víkingaskipinu íslendingi var eitt af fjölmörgu sem ská- tarnir gerðu á mótinu merktar og mældar eftir hversu erfiðar þær voru. Það voru ekki margir sem fóru erfiðustu leiðina, risagönguna, enda geta ekki allir verið hetjur. Eftir hverja göngu gátu menn svo slappað af í sundi eða úti á sjó á víkingaskipinu íslendingi. Ekki þarf að efast um að allir hafi upplifað skemmtileg ævintýri þessa daga í Eyjum og vonum við að í framtíðinni muni vera vilji og kraftur fyrir að halda annað mót í þessum dúr. Jafnframl því að þakka öllum fyrir ómetanlega aðstoð við mótið, þá viljum við þakka eftirtöldum félögum fyrir þátttökuna: Fossbúar Selfossi og Danirnir sem þar voru með í för, Strókur Hvergerði með Búkollufjölskylduna í fararbroddi, Landnemar Rvk., Hólmverjar Stykkisthólmi, Melur Þorlákshöfn, Vogabúar Vogum, Vogabúar Rvk., Hraunbúar Hafnafirði, Skátasveitin Húgó og Ds.Serve ísafirði, Heiðabúar Keflavík, Matti frá Njarðvík og ???????. Sjáumst öll hress á Landsmótinu næsta sumar. Stjórn Skf. Faxa ~0 SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.