Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Síða 6

Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Síða 6
Sveitir og flokkar KYNMING Skátasveitin Fífill Hæ Við erum Fíflar og erum á aldrinum 12-15 ára. I sveitinni okkar eru 5 flokkar, Eskimóar, Refir, Apríkósur, Daldónar og Skítugar naríur. Við höld- um fundi hvern miðvikudag þar sem íoringjaráðið leiðir saman hesta sína. Þar flytur sveitarforinginn foringjanum fréttir af stjórnarfundum félagsins og þannig komast málefni frá stjórn félagsins auðveldlega til grunneiningar skátastarfsins, skátaflokksins. En að sitja á fundum er ekki það eina sem foringjaliðið aðhefst. Asamt öðrum foringjum félagsins hittum við aðra foringja á Selfossi, fórum á námskeið á Úlfljótsvatni, tókum á móti foringjunum frá Selfossi og fórum í útilegu í Dalakot núna fyrir stuttu. Þetta er einungis nokkur atriði af mörgum sem foringja- ráðið hefur aðhafst í vetur. Annað starf sveitarinnar er mest fólgið í starfi skátaflokkanna sjálfra. Þeir hafa sinn eigin fundartíma, fara í útilegur og ferð- ir og starfa eftir sinni eigin áætlun í átt að hverri vörðu en það eru viðurkenn- ingar fyrir að hafa lokið ákveðnum verkefnum. Eftir áramót er á dagskrá að fara í sveitarútilegu og fleiri ferðir eins og tíundaðar voru hér að ofan. Skátarnir í Fífli óska öllum Eyjabúum gleðilegra jóla og farsælda á komandi ári. Fyrir hönd Fífils; Freydís sveitarforingi. Eskimóar f /gm Við erum fimm W stelpur í Eski- \ móum. Við heit- —-jJ um: Anna Jóna, ff™™™ Lísa. Tinna. Sóley ! og Ella. Við fór- \ / um i útilegu þar sem við bjuggum m.a. til mokkasiur úr leðri. Það má | lesa um útileguna ; annars staðar í blaðinu. Svo eigum við dagbók þar sem við skrifum niður og setjum í myndir af því sem við höfum gert. Þið eigið vonandir eftir að heyra meira af okkur í næsta skátablaði. F.h. Eskimóa: Anna Jóna f.l. foringi. Skítupar Naríur Hæ! Við erum Skítugar naríur og við viljum segja svolítið frá skátastarfi okkar í sumar og í haust. Eins og marg- ir vita var haldið skátamót hér í sumar og var það alveg æðislega skemmtilegt mót. Við fórum m.a. í bátsferð á víkingaskipinu Islendingi, þreyttum þrautir í hinu frábæra Þrauta og meta- landi og síðast en ekki síst fórum við í risarall. Þá gengum við upp á Helgafell og svo niður í Páskahella og þaðan upp á Eldfell, niður á Skans, út í Spröngu, upp A Klif og löbbuðum Eggjarnar (hrygginn) og upp á Blátind. Nokkrir Danir löbbuðu þetta með okkur og voru þeir þá með orðið „fiskibollur” á heilanum því það hafði verið í matinn kvöldið áður. Svo sváfum við líka undir berum himni síðustu nóttina. Við hitt- um fullt af skemmtilegum krökkum og vonum að þetta verði gert fljótlega aftur. Tvær af okkur fóru upp á Selfoss í sept- ember og sögðu þær hafa verið alveg þvílíkt gaman. Við fórum allar upp á Úlfljótsvatn á flokksforingjanámskeið 1 og var það frábærlega gaman enda kynntumst við mörgum skemmtilegum krökkum. Þar gerðurn við líka margt gaman t.d. fórum við í 3 tíma „hike“ í mígandi rigningu, reyndum að koma öllum flokknum yfir 2 metra hátt band, fórum í hátíðarkvöldmat hjá mjg svo vitlausum dreka og að lokum í næturleik þar sem keppt var um hver næði að ræna gullinu af drekanum ógurlega. Og svo fórum við í Herjólf með góðar minn- ingar. Hugmyndir hjá okkur um áframhald- andi skátastarf eru að komast í skíðafer- ðalag upp í Bláfjöll og fara á flokks- foringjanámskeið 2 og ekki að spyrja að því að fara á Landsmótið í sumar og labba Laugarveginn. Við vonum að þetta geti gengið og þökkum fyrir okkur. Skítugar naríur, Elva Dögg, Leifa, Berglind, Sjöfii og Kristín. SKÁTABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.