Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Síða 7
Daldónar
Skátaflokkurinn Daldónar var stofn-
aður einhvern tímann haustið ‘93. Þá
voru meðlimir hans um 6 en síðan tók
að fjölga í honum um heilan helling og
vorum við mest 13 í flokknum. Arið
sem flokkurinn var stofnaður og alveg
fram til ‘96 var Baldvin „Chelsea“
Elíasson flokksforinginn í flokknum.
Hann kom okkur vel af stað og fór með
okkur í margar skemmtilegar útilegur
þar á meðal fór hann með okkur á
Landsmót skáta á Úlfljótsvatni. Þegar
hann hætti með flokkinn tóku Sigurjón
og Andri við flokknum og ég býst bara
við að við höfum stjórnað flokknum
ágætlega. Þegar við tókum við
flokknum hættu frekar margir. Það var
reyndar örugglega ekki okkar sök. Eftir
að Baldvin fluttist upp á land til að
vinna sem öskukarl þá höfum við farið
í þó nokkrar útilegur en greinarhöfudur
hefur verið veikur í 2 af 4 þeirra.
Síðustu tvær útilegur voru alveg
stórskemmtinlegar en því miður get ég
ekkert sagt um hinar tvær.
Sigurjón Viðarsson
Skátasveitin Dögnn.
í dögun eru 7 flokkar. Það eru alltaf
haldnir foringjafundir Vi mánaðarlega.
Flokkamir halda sjálfir sína fundi 1
sinni í viku. I Dögun er 1 ylfingaflokkur
sem hóf starf í sept. síðastliðnum. í
ylfingaflokknum eru bæði strákar og
stelpur á aldrinum 8-9 ára. í hinum
flokknum em kynjaskipti og eru
krakkamir á aldrinum 10-13 ára.
Anna Lára Gísladóttir
Þórína Baldursdóttir.
Skátaflokkurinn Lubbar
Við erum í Lubbum, við erum 8 með
foringjum og heitum Jónas, Bjössi,
Birkir I, Birkir A, Svanur og Hannes og
foringjar Smári og Þór. Við höfum gert
allskonar hluti í sumar og ætlum að
reyna aftur í ár. Vonandi fáum við að
vígjast bráðum en við erum að vinna
verkefni úr Skáti á ferð suður.
Skátaflokkurinn Kanínur
I flokknum okkar eru 13 stelpur og
þær heita Andrea, Anna Kristín,
Birgitta, Eva Ösp, Erna ,Kristín Alda,
Kristný, Sólrún, Sólveig, Þórgunnur,
Þórdís, Þóra Birgit og Sigrún. Síðan við
byrjuðum í sept. þá höfum við gert
margt t.d verkefni, útileikjafund og
haldið skátafund í Skátastykkinu.
Viljum við óska öllum bæjarbúum
gleðilegra jóla.
Kærar kveðjur; Kanínur.
Ylíingar Zorro
I Zorro eru 12 fjörugir krakkar á
aldrinum 8-9 ára. í flokknum eru
blandað strákum og stelpum saman. Við
höfum lélega aðstöðu í Féló. Við erum
með verkefnabókina Skátinn á ferð aus-
tur. Þau syngja mikið og eru alltaf að
læra nýja leiki. Ylfingastarfíð gengur út
á að segja þeim söguna.
Ylfingaforingjarnir
Anna Brynja og Guðrún Lilja
Flokkurinn Dropar
Meðlimir í Dropum eru þær Anna,
Guðrún Eir, Hrafnhildur, Jóna Heiða,
Sara, Kristín Ósk og Kristín Sjöfn,
flokksforingi Dropa er HERDÍS.
Dropum finnst gaman að syngja og fara
í leiki. flokkurinn fór í útilegu 16-18
okt. og var þemað „ganga“, gengið var
niður í Kaplagjótu, meðfram Hamr-
inum, út á Skans og farið í næturleik.
Gönguútilegunni lauk á hádegi á laug-
ardag og við tók sovétútileiga uppí
Stykki.
Flokkurinn Dropar óska öllum gleði-
legra jóla og farsæls komandi skátaárs.
Skátaflokkurinn Rottur!!
Skátaflokkurinn Rottur hefur verið
starfræktur í rúm þrjú ár.
Flokksforingjar eru Jóhann Friðriksson
og Guðbergur Geir Erlendsson, en við
tókum við af þeim Smára Pál McCarthy
og Snorra Pál Snorrasyni. Við gerum oft
verkefni á fundum en auðvitað er einnig
mikið farið út. Aðalgallin við það er sá
að við vitum aldrei hvað við ætlum að
gera úti, en það endar yfirleitt með því
að við förum niður á Stakkó í leiki.Við
stefnum á að fara í útilegu á næstunni en
ekki er búið að ákveða hvenær.
Flug’ur
Hæ!
Við erum flokkurinn Flugur og ætlum
að segja ykkur svolítið um okkur. Við
erum í sveitinni Dögun og erum með
fund 1 sinni í viku niðrí Gamla golfskála
þá förum við í leiki, syngjum, vinnum
að verkefnum, förum í göngur og fleira.
Og ekki fyrir löngu fórum við í útilegu í
Skátastykkinu þá gerðum við margt
skemmtilegt t.d. komu 2 geimverur um
kvöldið og rændu öðrum skátaforingj-
anum og við þurftum að fara út að leita
að henni og bjarga frá þeim svo var
haldin kvöldvaka og líka var farið í
póstaleik og fleira.
Það er rosalega gaman í skátunum
og hvetjum alla til að prófa!!!
Flugur
SKÁTABLAÐIÐ FAXI
o