Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Síða 14
Engar verslanir á Laugarveginum!
...ekki á hinum eina sanna Laugarvegi
heldur á gönguleiðinni sem liggur frá
Landmannalaugum niður í Þórsmörk,
52 km alls!
í júlímánuði síðastliðnum var ég
meðal hóps sem gekk þessa vinsælu
gönguleið, en einnig yfir Fimm-
vörðuhálsinn sem er í beinu framhaldi
frá Þórsmörk niður að Skógum. Þessi
ferð var farin í styrktarskyni við Félag
sjálfstæðra ostruvina á Nýfundnalandi.
Þeir sem vilja styrkja þennan göfuga
málstað er bent á UPS! (Universal pro-
tection of seafood). Nei, nei ég er bara
að gantast !!! Þessi ferð var hluti af
dagskrá fyrir danska skáta sem heim-
sóttu Fossbúa, skátana á Selfossi. Ég
og Raggi búkollubróðir frá Flveragerði
fengum bara svona að fljóta með.
En hér kemur ferðasagan:
Við lögðum að stað um hádegisbil frá
Landmannalaugum föstudaginn 17 júlí.
Éins og reyndir höfðu sagt mér þá var
fyrsti dagurinn erfiðastur að því leyti að
gangan var upp í móti að mestu leyti og
ef ég man rétt þá var hækkunin um 900
m á 5 klst. en þennan dag gengum við í
7 klst. Áfangastaðurinn var Hrafntinnu-
sker, ekki myndi hver sem er láta bjóða
sér að borga 400 kr. fyrir að gista á því
tjaldstæði (sjá mynd). Þar snæddum við
orkuríkan kvöldverð fyrir næsta dag og
af einhverri ástæðu sem ég „virðist hafa
gleymt” var ég kosin kokkur kvöldsins!
Morguninn eftir var haldið snemma af
stað til að hafa nægan tíma til að stoppa
á skemmtilegum stöðum eins og í íshell-
um og við bullandi hverapytti.
Dönunum fannst landslagið alveg
frábært, sögðust aldrei gengið á einum
degi í jafn fjölbreyttu umhverfi, sögðu
það vera eins og á Tunglinu,
jöklum, aldingörðum og eyði-
merkum. Við geng-
um áfram
niður Bröttu-
brekku, fram-
hjá Álftavatni
og enduðum í
fallegum grasi-
grónum dal rétt
utan við
H v a n n g i 1 .
Þrátt fyrir
þreytu í hóp-
num eftir erf-
iðið héldum við
kvöldvöku eins
og skátum er
einum lagið,
sungum og
fórum í limbó.
Töfradrykkur-
inn kakó flutti
okkur inn í
draumalandið.
En morgunin
eftir vöknuðum
við við úrhelli
eins og gerðist
víst títt þarna á
eyjunni fyrir
norðan Vest-
manneyjar! Sú
dagleið sem við
héldurn nú í er
víst sögð leið-
inlegasti hlut-
inn af leiðnni
og ætla ég að
það sé vegna
hversu mikinn
sand þarf að
troða en það getur orðið ansi leiðigjarnt
til lengdar. En ekki var laust við að hæt-
tan stefndi að okkur líkt og fyrri daginn
því mikill sandstormur stefndi að okkur
með ógnarhraða. Við rétt
náðum að
forða
okkur inn í skálann í Emstrum. Það vill
svo til að Markafljót rennur þar rétt hjá
og gerðum við okkur því ferð til að
skoða gljúfrið...vá hvað það hefði verið
gaman að vera fugl á þeirri stundu og
svífa niður í dýpið. En ekki gerðist það
nú í þetta sinn og ferðinni var haldið
áfram næsta dag og var stefnan tekin á
Þórsmörk. Nokkrar sprækar sauma-
klúbbskonur voru samferða okkur
áleiðis úr Emstrum en æskan er
alltaf að flýta sér og fjótlega
hurfu þær úr augnsýn en þá
rákumst við á hóp af dönsk-
um skátum sem er ekki
frásögu færandi nema að
okkur blöskraði að heyra að
þessir 13-15 ára krakkar voru
flestir með 26 kg. á bakinu! Þess
skal geta að hæfilegt þykir að vera
ekki með yfir 15 kg. í bakpokanum í
ferð sem þessari. Með bros á vör og
raddböndin þanin af lögum Sól-
strandagæjanna lentum við í Þórsmörk
SKÁTABLAÐIÐ FAXI