Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Qupperneq 18
Dróttskátanáms
Helgina 20. - 22. Nóvember 1998 var
haldið Dróttskátanámskeið hér í Eyjum
og var Edvin (Eddí) fenginn til þess að
leiðbeina okkur. Hann er ættaður frá
Akureyri og því ekki vanur „dallinum”
og var klósettsetan mjög náin honum í
Herjólfi.
Skátarnir sem komu voru flest allir frá
Hveragerði en samt lét einn
Selfyssingur sjá sig. Þar var hann
Maggi Gullfiskur.
Eftir að allir voru búnir að koma sér
fyrir og skipt hafði verið í flokka var
borið fram kakó og kex og kynningar-
leikur fór fram. Þegar honum var lokið
skriðu allir ofaní svefnpoka og lesin var
saga um stofnanda skáthreyfingarinnar.
A laugardagsmorguninn vorum við
vakin í snatri með ógeðslegum morgun-
söng og við drifin út í morgunleikfimi
og fána. Eftir morgunleikinn voru fyrir-
lestrar til hádegis, en eftir það var
haldinn stuttur fyrirlestur. Á honum
lágu allir skátarnir á dýnum og slöppuðu
af. Að því loknu var haldið í sund og
kroppurinn þveginn. Gamli golfskálinn
beið okkar opnum örmum með gotterí
úr bakaríinu.
Eftir að allir voru vel saddir var farið
niður í Spröngu og hangið í spottanum
nokkrar ferðir. Þaðan var rölt niður á
Skans og upp á hraun að skoða inn
í gamlar húsarústir. Týndust nú
skátarnir smám saman niður í
K.F.U.M. og K. hús (en þar var
námskeiðið haldið) og klæddu
sig í búning. Þegar allir voru
tilbúnir löbbuðum við til Rósu
mömmu og sungum borðsöng
fyrir utan og bauð hún okkur
þá inn í kjúkling og franskar.
Eftir matinn fórum við í
K.F.U.M. og K. húsið og héld-
um dúndur kvöldvöku og drif-
um okkur í frábæran næturleik í
miðri kvöldvöku. Nætur-
leikurinn gekk út á það að koma
skilaboðum til Eddí án þess að
hitt liðið næði manni. Eftir tap hjá
báðum liðum fórum við og kláruðum
kvöldvökuna með óskalagi frá Faxa.
Svo kláraði Eddí söguna og eftir það átti
að vera kyrrð með þeim skilyrðum að
við myndum ekki vekja Eddí, en samt
var mikið um sjoppuráp og spilaði
Magnús Fossbúi á gítarinn sinn með kór
undir. Við sofnuðum á misjöfnum
tímum.
Á sunnudagsmorguninn vorum við
vakin og dregin út í morgunleikfimi,
fána og svo morgunmat. Síðan var
okkur troðið öllum í bíl og keyrt upp í
stykki þar
sem endurmat fór fram svo var okkur
keyrt aftur niður í K.F.U.M. og K. hús
og tóku allir dótið sitt sarnan og drifu sig
niður í Herjólf.
Sigga og Rósa.
Við viljum þakka K.F.U.M og K. fólki
fyrir lánið á húsinu. TAKK - TAKK.
BRANDARAR
Ljósmóðirin: „Þetta er ekki búið. Það
er annað á leiðinni". -
„Hvað segirðu“ svaraði bóndakonan.
- Er þetta frá fjósamanninum líka að
koma?
Maður gekk inn á bílapartasölu og
fór til afgreiðlumannsins og sagði: -
Eg ætla að fá benísnlok fyrir
Lönduna mína. - Alveg sjálfsagt. Það
eru ágætis skipti.
-Pabbi í dag skrifuðum við ritgerð
um það við hvað feður okkar störf-
uðu. - Nú, hvernig gekk? - Já, kenn-
arinn stendur hérna fyrir utan með
tveimur lögregluþjónum.
Svo var það kona Hafnfirðingsins
sem eignaðist tvíbura. Hún fór út
með hlaðna byssu í leit að hinum
föðurnum.
- Pabbi, hvar varstu? - Ég var með
Önnu úti í hlöðu, - Já, og hvað voruð
þið að gera? - Ég veit það ekki, en
það verður uppáhaldsleikurinn minn
hér eftir.
85 ára gömul ekkja fór á blint
stefnumót með níræðum manni.
Þegar hún kont til dóttur sinnar sein-
na um kvöldið virtist
hún í uppnámi. - Hvað gerðist?
spurði dóttirin. - Ég þurfti að slá hann
tvisvar utan undir. -Var hann svona
ágengur? - Nei, ég hélt hann væri
dauður.
Ylfínga-
foringja-
námskeið
Ylfingaforingjanámskeið var haldið á
Ulfljótsvatni auk, flokksforingja-,
sveitaforingja-, og dróttskátanámseið,
en þau voru öll haldin í sitthvoru lagi
(allir voru sér).
Á ylfingaforingjanámskeiðinu voru
11 stelpur og konur. Ylfinganámskeið
er ekki uppbyggt af fyrirlestrum eins og
önnur námskeið. Við vorum oftast í
leikjum og að læra nýja söngva og leiki.
Snemma var farið að sofa og vaknað
snemma. Á laugardagskvöldi var haldin
sameiginleg kvöldvaka.
Dróttskátanámskeiðið sá um hana.
Hver hópur kom með skemmtiatriði.
Ylfingaforingjanámskeiðið var byggt
upp á Mowgli sögum.
Við þökkum Faxa fyrir að borga ferð-
ina fyrir okkur. Við lærðunt mikið.
Anna Brynja og Guðrún Lilja.
SKÁTABLAÐI0 FAXI