Skátablaðið Faxi - 01.12.1998, Page 19
Sveitaforingjanámskeið
Ég, Matthías Þór Rafnkelsson og fleiri
fóru á sveitaforingjnámskeið á Úlfljóts-
vatni helgina 2. - 4. október. Það byrj-
aði á föstudeginum um kl. 10:00 um
kvöldið, en þá var komið sér fyrir, skipt
í hópa og svoleiðis vesen sem engum
leist á, en svo var þetta allt í lagi þegar
allir fóru að kynnast
Laugardaginn byrjaði allt þetta
kl.8:00 með því að farið var í morgun-
leikfimi, en eftir það voru allir vel vakn-
aðir og hressir og tóku upp glósubókina
og voru að skrifa allan daginn. Fórum
við Vestmanneyjaskátarnir og fleiri að
kynnast hvert öðru og tókst það allt
saman vel og var enginn skilinn útund-
an. Þegar að kvöldinu kom fóru allir að
gera skemmtiatriði sem ekki allir gerðu
en þetta gekk allt saman upp. Kl. 12:00
á miðnætti var kyrrð og átti að vera
kominn upp í rúm kl.LOO sem bara
sumir gerðu, en við stálumst út eftir að
foringjar okkar voru sofnaðir og vorum
við úti til kl.3:00 og fórum þá að sofa.
A sunnudeginum var aftur leikfimi og
líka glósuvesen allan liðlangan daginn.
Við fengum aldrei frí til þess að leika
okkur að síga eða að klifra heldur bara
10-20 mínúntur til að fara út að fá
okkur frískt loft. Svo kl.4:00 eftir há-
degi var farið að taka til eftir okkur því
það átti að fara að halda heim eftir
þreytta vinnu. Rútan kom kl.5:00 og
fór hún með okkur til Þorlákshafnar.
Allir voru mjög glaðir með þessa
góðu ferð og heldum við þá bara heim.
Matti.
Sendum öllum bœjarbúum bestu Sendum öllum bœjarbúum bestu
óskir um óskir um
GLEÐILEG JÓL GLEÐILEG JÓL
ogfarsœlt komandi ár ogfarsœlt komandi ár
Þökkum ykkur góð viðskipti Þökkum ykkur góð viðskipti
á árinu sem er að líða. á árinu sem er að líða.
BÆJARVEITUR VESTMANNAEYJA ÍSLANDSBANKI
SKATABLAÐIÐ FAXI