Skátablaðið Faxi - 01.04.2000, Side 2
m m
öflugt skátusturf tfuxu
Skátafélagið Faxi hefur starfað hér í
Vestmanaeyjum í rúm 60 ár við góðan
orðstýr og oftast gengið vel: Markmiðin
hafa verið ljós og frá upphafi verið þau
sömu, að leiða börn og ungt fólk til
þroska svo að þau verði sjálfstæðir,
virkir og ábyrgir einstaklingar. Þessum
markmiðum vill Faxi ná með öflugu
starfi í flokkum og sveitum og m.a.:
•Með því að starfa í hópvinnu, sem
þroskar tillitsemi, samstarfshæfileika,
ábyrgð og stjórnunarhæfileika.
■Með útilífi sem eflir líkamsþrek og
vekur áhuga barna og ungs fólks á nátt-
úrunni og eflir skilning og áhuga á að
vernda hana.
Þetta eru háleit marmið og það getur
oft reynst erfitt að uppfylla væntingar
allra þeirra sem í hreyfinguna ganga.
Félagsstjórnin gerir sér grein fyrir þessu
og vill með góðum undirbúningi og gerð
áætlana standa á bak við og styðja við
störf skátanna í félaginu, sem tekur mið
af skipulagi hreyfingarinnar.
Skipulag skátahreyfingarinnar byggir
á flokkakerfi, 4-8 skátar í hverjum
flokki sem stjórnað er af flokksforingja
og 2-4 slíkir flokkar mynda sveitir sem
sveitarforingi stjórnar. I Skátafélaginu
Faxa eru 4 almennar sveitir og ein
dróttskátsveit eða rúmlega 100 starf-
andi skátar.
Nú er það svo að þrátt fyrir þessi
háleitu markmið, sem reynt er að ná eins
og lýst er hér að framan hefur skát-um í
félaginu fækkað frá því þegar þeir voru
um 150 fyrir tveimur árum.
Af hverju hefur skátunum fækkað?
Það eru fleiri sem hætta fyrr og það hafa
verið færri sem byrja. Öll þekkjum við
ástæður sem nefndar eru þegar skáti
hættir, eins og: of mikið að gera, hef
Páll Zóphóníasson, félagsforingi
ekki tíma, starfið ekki skemmtilegt,
foringinn mætti ekki eða sinnti starfi
sínu ekki nógu vel og margar aðrar
skýringar sem félagsstjómin verður að
taka alvarlega. Á ábyrgð félagsstjórnar-
innar eru m.a. fjármál, húsnæðismál og
allur hinn ytri rammi um félagsstarfið,
ennfremur foringjaþjálfunarmál.
Félagsstjórnin gerir sér ljóst að það er
ekki hægt að bjóða upp á skátastarf sem
stendur undir nafni nema til séu nægi-
lega margir vel menntaðir og þjálfaðir
foringjar. Foringjar hafa verið duglegir
og farið á námskeið eftir því sem fram-
boð hefur verið og þeir haft tök á að
fara. Skátafélagið hefur stutt við bakið á
foringjum sínum og allur útlagður
kostnaður er greiddur úr félagssjóði en
þrátt fyrir það, er kostnaður þeirra
umtalsverður og menn finna fyrir því,
sérstaklega þegar þess er gætt að öll
vinna skátaforingja er sjálfboðavinna.
Þá er einnig mikilvægt að ytri rammi
um félagsstarfið sé í góðu lagi.
Skátafélagið leigði húsnæði sitt í eitt ár
og flutti starfið annað, en nú er félagið
aftur komið inn í Skátaheimilið og er að
koma sér þar fyrir. Hver sveit hefur sitt
eigið herbergi fyrir sína starfsemi.
Skátarnir í sveitunum máluðu herbergin
sín í haust og hafa verið að innrétta og
skreyta eftir eigin höfði. Þetta mun setja
sterkan svip á Skátaheimilið, sérstak-
lega þegar haft er í huga ekki þarf að
taka þetta niður á hverju vori, því
ákveðið hefur verið að hætta útleigu á
húsinu undir Farfuglaheimili.
I Skátastykkinu sem er 4 hektara
útivistarsvæði, er nýr 100 m2 skáli sem
notaður er fyrir útilegur og aðra starf-
semi sem tengist útivist og námskeiða-
haldi. Auk þess hefur félagið umsjón
með gamla golfsskálanum sem enn er
notaður fyrir útilegur. Nú er verið að
semja um leigu á skála uppi á landi, sem
félagið hefur oft fengið afnot af, nánar
tiltekið í Bláfjöllum. Áformað er að
leigutíminn verði þrjú ár fyrst um sinn.
Skáli þessi sem ber nafnið Glitrutt er
skáli í eigu Bláfjallanefndar.
Félagsstjórnin hefur miklar væntingar
til komandi ára, með góða foringja, gott
skátaheimili og ágæt útivistarsvæði sem
hvaða félag sem er, ætti að vera stolt af.
Rekstarkostnaður félagsins er í beinu
hlutfalli við starfið, því er sá stuðningur
sem bæjarbúar veita mikilvægur m.a
með því að senda skátaskeyti á ferm-
ingardaginn.
Við þökkum fyrir okkur.
Páll Zóphóníasson
félagsforingi
Útgefið í apríl 2000
Útgefandi: Skátafélagið Faxi
Ábyrgðarmaður: Marinó Sigursteinsson
Ritstjóri: Freydís Vigfúsdóttir
Auglýsingar: Sigríður Guðmundsdóttir
Prófarkalestur: Freydís Vigfúsdóttir
Prentvinna: Prentsm. Eyrún ehf.
Ritnefnd:
Júlía Ólafsdóttir
Freydís Vigfúsdóttir
Anna Jóna Kristjánsdóttir
D.S Weztmenn
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI