Skátablaðið Faxi - 01.04.2000, Blaðsíða 6
*Aðal{uHt)ut
Aðalfundur FAXA var haldinn sunnu-
daginn 27. febrúar klukkan fjögur.
Öllum skátum sem voru 14 og eldri var
boðið og mættu frekar margir. Svo voru
náttúrulega flestir fínir og sætir í búning
og svoleiðis. A fundinum var farið yfir
það helsta sem gerðist í félaginu á árinu
1999, svo sem ferðum , námskeiðum,
mótum og fleiru. Svo fór smá tími í að
fara yfir reikninga og svoleiðis. Þá var
líka kosið félagsforingja og stjórn en
það breyttist lítið. Svo var komið fram
með starfs- og fjárhagsáætlun sem var
svo samþykkt.Að lokum var svo kosið
um skálaverði, en þá gekk á ýmsu því
nokkrir duglegir skátar voru mjög ákafir
í að fá að vera skálaverðir. Eftir mjög
svo fróðlegan fund fengu allir sér svo
kakó og kex. Anna Jóna
1Zokk, riymny, heit kukó og
kvötdssöntfur ú 22. {eórúur
Það var heldur betur klikkað veður þetta eftirminnilega kvöld. Maður var fegn-
astur að komast niður í dal í lognið en þar var sungið og vígt þá sem átti að vígja,
en eftir góða stund niðri í dal, beið okkar klikkað veður þegar haldið var í
Skátaheimilið þar sem yndislegt fólk sem beið með það sem maður dreymdi: það
var heitt kakó (mmmm) Vill ég að lokum óska þeim nýju góðs í skátastarfinu.
Rósa heiti ég
tfotsetumerkið 2000
Að ná forsetamerkinu er stefna
Dróttskátans, en það er skáti á aldrinum
15-18 ára. Skátar safna „vörðum“ á
búninginn sinn, en það eru lítil kringlótt
merki sem sett eru fyrir ofan brjóst-
vasann á skyrtunni og sýnir hæfni ská-
tans og hverju hann hefur lokið. Við
fáum verkefnabækur til að fara eftir, og
eftir að hafa lokið við þær fáum við 3
vörður í þeim lit sem á við. Fyrst er það
gulur fyrir ylfinga (7-10), svo hvítu
vörðurnar, bláu vörðurnar og svo
vörðurnar fyrir dróttskáta en þær eru 2,
dróttskátavarðan og gullna varðan.
Skátin lýkur síðan öllum þessum vörðu-
verkefnum á Bessastöðum og fær for-
setamerkið, sem er málmerki, afhent af
forsetanum.
A Bessastöðum hittist árlega stór
hópur dróttskáta til að fá þetta merki,
núna fer frekar stór hópur frá Faxa
miðan við hvað hefur verið áður. Við
erum 6 talsins; Rósa, Sigga, Herdís,
Steinunn, Palli og Matti. Merkið verður
afhent laugadaginn 8 apríl.
Dróttskátasveitin ætlar að reyna fara
sem flest og gera eina góða ferð úr þessu
öllu saman.
Þessi atburður fer fram á virðulegan
hátt. Fyrst er messa og foreldrum og for-
ráðamönnum er velkomið að koma með
skátunum sínum. Eftir athöfnina eru
Bessastaðir skoðaðir og skátarnir hittast,
spila og syngja saman . Eldri skátamir
sem höfðu fengið Dróttskátamerkið og
þeir sem höfðu lokið Gillwell og fengið
brúnu klútana voru þeir sem maður leit
upp til þegar maður var yngri skáti og
gerir það enn.
Forsetamerkið er endi á ákveðnum
áfanga en aðeins upphaf af nýju mark-
miði.
Sigga og Steinunn
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI