Skátablaðið Faxi - 01.04.2000, Blaðsíða 10

Skátablaðið Faxi - 01.04.2000, Blaðsíða 10
‘Ðs.námskeið Nokkrir dróttskátar í Faxa, þ.e.a.s. Anna Jóna, María Sif og Helga ákváðu að fara á dróttskátanámskeið helgina 28.-30. jan. Það munaði minnstu að við kæmumst ekki. Við áttum að fra með flugi í hádeginu en svo var ekki flogið fyrr en um áttaleytið. Mummi skutlaði okkur svo frá flugvellinum og niður að skátahúsinu í Reykjavík. Þar var rútan enn og ekki farin (það var mæting kl. 19:00). Hinir krakkarnir á nám- skeiðinu voru að versla þannig að við fengum engu að ráða um það sem átti að vera í matinn. Svo fór rútan með okkur á Lækjarbotna (sem er skáli í nágrenni Reykjavíkur). Við þurftum að labba smá spotta. Þegar við vorum komin að skálanum var námskeiðið sett. Svo var komið að því að skipa í flokka. Það var þannig gert að Eddí (sem var stjómandi námskeiðsins) var með húfu fulla af reimum. Svo drógu allir og þeir sem fengu eins reim voru saman. Svo áttu pörin að velja sig saman tvö og tvö. Svo fóru þeir sem nenntu í stutta göngu til að skoða sig um í myrkrinu. Síðan var farið inn og þá hófst kynningar- leikurinn. Hver og einn átti að standa upp og svo máttu hinir yfirheyra hann um allt og ekkert. Svo var kakó og svoleiðis og allir áttu að fara að sofa. Eddí fór að sofa og enginn annar. Svo fóru einhverjir niður að gera eitthvað og spila háa tónlist meðan aðrir voru að spjalla saman og þá sérstaklega um einkamál. Svo gerð- ust þau undur og stórmerki að ónefnd manneskja, X, fór að slá sér upp. í þetta skipt ið hét sá heppni Asgeir og er Hraunbúi. Það gerðist á meðan Helga þóttist vera sofnuð og svo urðu Anna Jóna og Jónína kópur allt í einu svangar og þurftu að fara niður að borða báðar í einu. Það voru engir aðrir þarna uppi sem voru vak- andi. Svo þegar Anna Jóna og Jónína komu upp aftur voru X og Asgeir föst saman. Svo tókst öllum að sofna á endanum en ekki nóg því að klukkan 9 morguninn eftir vakti Eddí okkur með því að syngja „O, what a beautiful moming.....”. Það vöknuðu allir. Svo var dagskráliður sem Eddí kallar fmfm (fótaferð, morgunleik- fimi, fáni, morgun- matur). Það gekk slysalaust fyrir sig. Svo var okkur hent inn í ískaldan sal og þar áttum við að skrifa niður á stórt blað allt sem okkur datt í hug um skáta- starf. Svo var talað um það. Svo fórum við að gera eitthvað sem ég man ekki hvað var. Svo var étið hádegis- mat. Um daginn voru nokkur verkefni. Við bjuggum til £mdim bei Eif/aihdá tii h/> > dd '&jwt 1É cMta Meqi ítmf(jlda lem rnckmm w bumÉha llwll cs GlóðikgTiuem/o Vestn ymvnmnabfw SKATABLAÐIÐ FAXI

x

Skátablaðið Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið Faxi
https://timarit.is/publication/1269

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.