Skátablaðið Faxi - 01.04.2000, Side 8
(Jtost og vesen
-í nýársútUegu ds.Weztmunnu
Við, frábæru krakkarnir í ds.
Weztmönnum mættum hress og kát
niður á Herjólf Sunnudaginn 2,jan. Það
var ógeðslegt í sjóinn og langflestir
ældu.
Svo tókum við rútuna á BSÍ. Þar hitt-
um við Freydísi. Hún tjáði okkur það að
Armann Fossbúi ætlaði að sækja okkur
þangað og skutla okkur upp í Þrist. Við
bjuggumst við smá seinkun. Klukkan
var u.þ.b. 18:00. Og við biðum, en ekki
kom Armann. Svo reyndum við að
hringja en ekki náðist í Armann. Þegar
við vorum búin að hringja u.þ.b. 10
sinnum náðum við loks í Ármann. Þá
var hann fastur á rútunni sinni nálægt
Þristi og hann átti eftir að skutla
Fossbúunum heim á Selfoss. Hann bjóst
ekki við að vera kominn fljótlega þannig
að við höfðum drjúgan tíma til að gera
eitthvað annað. Við fórum á bæjarrölt.
Svo fórum við niður á BSÍ og Ármann
var kominn um kl.23:00. Hann skutlaði
okkur eins langt og hann komst upp að
Þristi en festi rútuna á sama stað og
áður! Og við fengum að ýta. Eftir ein-
hvern tíma datt einhverjum snillingi í
hug að draga rútuna ájeppa. Það tókst!!
Svo skutlaði Mummi okkur restina á
jeppanum sínum. Það var víst ekki nóg
pláss fyrir farangurinn og okkur öll inni
í bílnum þannig að Freydís, Matti og
Darri fengu að hanga utan á bflnum.
Þrátt fyrir það var ekkert verið að keyra
neitt varlega þannig að það endaði með
því að Darri flaug af og ofaní
snjóskafl!!! Á endanum komumst við
svo í skálann. Þar voru fyrir einhverjir
frá Kópum í Kópavogi, Strók í
Hveragerði og einhverjir fleiri. Það var
rosalega þröngt á þingi. Okkur tókst
samt að troðast einhvers staðar. Svo
ætlaði maður að reyna að sofna en það
reyndist mjög erfitt þar sem sumir voru
að leika sér með mjög svo böggandi ljós
og aðrir að spila á símana sína langt
fram á nótt. Flestir voru sofnaðir um
kl.7:00. Svo vaknaði ég fyrst um kl.
12:00 og svo allir hinir u.þ.b. hálftíma
síðar. Svo var ákveðið að enda útileguna
en við Vestmannaeyingarnir ákváðum
að fara á Selfoss og gista þar.
Farangurinn okkar fékk því far með
Hvergerðingunum. Við þurftum að
labba mjög langa vegalengd með hann.
Þegar við komum aftur í skálann til að
taka til var helmingurinn af sveitinni
okkar horfinn, þ.e.a.s. Sigga, Steinunn,
Herdís, Helga og Stína. Eftir einhvern
tíma vorum við orðin mjög áhyggjufull.
Við náðum engu símasambandi við þær.
Á endanum komumst við að því að þær
væru komnar til Hveragerðis! Þær
höfðu þá fengið far með farangrinum.
Þá var kornið að því að við hin færum.
spotta. Svo feggum
við far með pick-up
að strætóskýli rétt
fyrir utan Mosfells-
bæ. Þegarþarna var
komið var okkur
orðið mjög kalt
enda mikið frosl
úti. Við komumst
svo að því að strætó
kæmi ekki fyrr en
einum og hálfum
klukkutíma síðar!!
Þá ákváðum við
snjókarlarnir að
reyna að redda
okkur fari. Það
tókst á endanum. Darri og Matti voru
hins vegar svo frosnir að þeir gátu ekki
beðið. Þeir röltu af stað og inn í
Mosfellsbæ þar sem þeir húkkuðu sér
far í bæinn! Okkur hinum var svo skutl-
að á Pizza Hut. Strákarnir komu svo
stuttu seinna. Þar fengum við okkur að
borða enda orðin sársvöng. Eftir matinn
var okkur skutlað niður á BSI. Þaðan
tókum við rútu á Selfoss Kl.22:00.
Strokufangarnir tóku svo á móti okkur í
Fossnesti. Þaðan var haldið beint á
videoleigu og teknar þrjár spólur. Við
fórum svo í skátaheimilið á Selfossi og
horfðum á þær. Það var einstaklega
rómantískt, sérstaklega fyrir Palla og
Helgu því þau byrjuðu saman þá. Eftir
Videoið fóru sumir og gerðu skandal á
Selfossi (það þarf ekkert að vera að fara
nánar út í það!). Þegar klukkan var orðin
9:00 og við ennþá vakandi ákváðum við
að nenna ekki í Herjólf því rútan fór frá
Selfossi kl. 10:00 og við orðin þreytt.
Við athuguðum með flug en það var
ófært. Þess vegna ákváðum við að vera
aðra nótt.Við fórurn að sofa kl. 10:00 og
vöknuðum kl.l5:00.Þá lágum við í leti
smá stund en drösluðum okkur svo í KÁ
að versla. Svo var farið á videoleigu og
teknar aðrar þrjár spólur. Svo lágum við
í leti og elduðum og borðuðum. Þeir
sem nenntu fóru að glápa á video. Hinir
voru bara að spjalla við Fossbúana sem
kíktu á okkur. Svo enduðum við kvöldið
á að taka rækilega til í skátaheimilinu.
Svo voru allir sofnaðir kl.5:00. Við
vorum svo vakin um kl. 7.30 því að
Mummi kom að sækja Palla til að
skutla honum í skólan. Að sjálfsögðu
vorum við hin vakin í leiðinni með
miklum látum okkur til ómældrar
ánægju og yndis auka (a.t.h., það var
ekkert verið að fara varlega upp stigann
og rétt ýta við Palla heldur var hlaupið
upp stigann með þessum lfka látum,
hrundið upp hurðinni og gargað!!) Svo
fórum við í Herjólf og allir steinrotuðust
enda dauðþreyttir eftir erfitt ferðalag.
Anna Jóna og
Herdís
0
SKÁTABLAÐIÐ FAXI