Skátablaðið Faxi - 01.04.2000, Síða 14
$uð sem skátut látu át át sét!
Eins og allir vita eru skátar ekkifull-
komnir frekar en annað fólk. Hér á eftir
koma frásagnir afýmsu skrautlegu sem
skátar hafa látið út úr sér í vetur.
Það var í nýársútilegu dróttskátanna
að hluti af hópnurn að keyra í rútu yfir
Hellisheiðina í janúar. (Þar er nær
undantekningarlaust snjór í janúar)
Tvær stelpur voru að leita að skála þar
en fengu það skot á sig að þær myndu
ekki sjá í skálann fyrir snjó. Og þá
heyrist í annarri þeirra: En það er enginn
snjór úti!
:jc ;fc cjccjc tfc
Dróttskátarnir voru í nýársútilegu og
þurftu að taka strætó. Við vorum ekki
viss um hvenær vagninn kæmi. Og þá
sagði ein stelpan: Getum við ekki bara
hringt í strætóskýlið?
Dróttskátarnir voru að ferðast í rútu
með Armanni Fossbúa. Því miður þá
festist rútan. Þá segir ein stelpan: Getum
við ekki bara staðið upp til að létta á
rútunni?
Dróttskátasveitin var stödd í
Haugahelli. Þá segir ein stelpan:
Hellirinn lekur!
Tvær stelpur úr Faxa voru á sveitar-
foringjanámskeiði. A námskeiðum er
þannig skipt í flokka að engir tveir úr
sama félagi eru saman í flokk. Svo var
skipt þannig í flokka að það voru festir
stafir á ennið á þeim, enginn mátti segja
hinum hvaða staf hann væri með.Svo
átti að reyna að para sig saman þannig
að þeir sem höfðu sama staf á enninu
yrðu saman í flokk. Þá segir önnur stelp-
an við hina: Eg veit að ég er alla vega
ekki með G!
Ein stelpan var í matreiðslu í
skólanum og er að fara að nota
púðursykur. Hún opnar dósina og segir
þannig að allir heyra: Hver setti eigin-
lega brauð í púðursykurinn, og hún
hendir brauðinu!!
Dróttskátarnir voru að fara á
námskeið og þurftu að fljúga í brjáluðu
veðri. Þá segir ein stelpan: Ef við
hröpum þá dey ég!
Tvær stelpur drógust aftur úr í göngu.
Það þurfti að bíða eftir þeim og þegar
önnur þeirra sá alla bíða sagði hún:
Hey!! Það er komin önnur pása!!
Ein stelpan spurði einhvern tímann
hvort orðið stillasi þýddi það sama og
orðið jarðarber!
Dróttskátar voru á sundfundi og þá
spurði ein stelpan aðra hvort hún væri
með vatnsheldar linsur. (Stelpan sem
spurði notar sjálf linsur.)
Það var í sveitarútilegu að ein stelpan
spurði einn strákinn hvort hann væri
hrein mey.
Þegar önnur stelpa heyrði hvað hin
hefði sagt umstrákinn varð hún mjög
hissa og sagði þá: Ertu ekki að djóka!?
-Hann á nú aldrei eftir að missa mey-
dóminn!
Það var þegar verið var að smíða í
dróttskátaherberginu að einn strákurinn
bað kærustuna sína um að rétta sér
vinkilinn, sem hann kallaði beinus appa-
ratus. Þá heyrðist í henni: Ó! Ég hélt að
þetta héti víxill!
Á dróttskátafundi einum heyrðist í
einni stelpunni: Ég rak olnbogann í vit-
lausabeinið.
Á dróttskátafundi einum var verið að
tala um eitthvað sem einni stelpunni
fannst frekar flókið, en eftir einhvern
tíma og mikla umhugsum heyrðist í
henni: Hey, Já! -Nú er þetta komið inn í
hausinn á mér!
SKÁTABLAÐIÐ FAXI