Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 4

Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrirVOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is VIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Berit Reiss-Andersen, formaður nefndarinnar sem veitir friðar- verðlaun Nóbels, segir verðlaunin á vissan hátt hvatningarverðlaun. Með þeim vilji nefndarmenn styðja verð- launahafann til góðra verka. Friðarverðlaunin voru fyrst veitt árið 1901 og vekja jafnan umtal. Þau eru veitt í Ósló en ekki í Stokkhólmi eins og hin nóbelsverðlaunin. Reiss-Andersen var meðal ræðu- manna á ráðstefnu í Reykjavík þar sem m.a. var fjallað um leiðir til að sætta ágreining innan fjölskyldna. Hún ræddi við Morgunblaðið um störf nefndarinnar og valferlið. Norska stórþingið skipaði Reiss- Andersen í verðlaunanefndina í árs- byrjun 2012 og 2. maí síðastliðinn var hún skipaður formaður. Fimm ein- staklingar sitja í nefndinni. Hún segist aðspurð ekki hafa háð „kosningabaráttu“ til að komast í nefndina. „Mig dreymdi ekki einu sinni um þetta. Ég held ekki að nokk- ur maður hafi farið í kosningabaráttu til að komast í nefndina. Reyndar kemur mér einn í huga en hann var ekki kosinn,“ segir Reiss-Andersen og hlær innilega. Hefði ekki tengsl við stjórnmál „Þegar fulltrúar Verkamanna- flokksins skipuðu mig sögðu þeir til skýringar að þeir vildu manneskju sem hefði beitt sér í málum en væri ekki með sterk tengsl við stjórn- málin. Þegar maður starfar sem lög- maður vinnur maður að málum á hverjum degi og reynir að vera rödd þeirra sem þurfa rödd í eigin sam- félagi. Ég starfaði í félögum lög- manna í mörg ár og hef meðal annars unnið með mannréttindalög,“ segir Reiss-Andersen og bendir á að þau séu mikilvæg í friðarferlum. Spurð hvernig hún hafi undirbúið sig fyrir nefndarstörfin segir Reiss- Andersen að fylgjast þurfi vel með alþjóðamálum og hafa tilfinningu fyrir straumum samtímans. Hún vinnur nefndarstörfin samhliða lög- mannsstörfum. Formennskan er því ekki fullt starf. „Ég hef aldrei átt svo annríkt,“ segir hún um annir sínar. Skilyrt hverjir mega tilnefna Reiss-Andersen segir friðarnefnd- inni hafa borist 230 til 300 tilnefn- ingar á ári á síðustu árum. Frestur til að skila þeim inn renni út 1. febrúar ár hvert. Hún segir nefndina hittast í kjölfarið og svo hér um bil einu sinni í mánuði áður en hún velur verð- launahafa í október. Nefndin tekur sér frí í júlí og er þá ekki fundað. Reiss-Andersen segir að sam- kvæmt erfðaskrá Alfreðs Nóbels, sem nóbelsverðlaunin eru kennd við, geti þingmenn um heim allan, fyrr- verandi nefndarmenn og verðlauna- hafar og prófessorar á þeim sviðum sem verðlaunað er fyrir, auk prófess- ora í lögum, félagsvísindum og við rannsóknarstofnanir, lagt fram til- nefningar til friðarverðlauna. Þagnarskyldan mikilvæg Nefndin greinir ekki frá því hverj- ir eru tilnefndir og segir Reiss- Andersen að með því sé fylgt fyrir- mælum í erfðaskrá Nóbels. „Hann mælti fyrir um leyndina, sem er að mínu mati mjög góð því hún verndar okkur gegn afskiptum og tryggir sjálfstæði okkar. Vegna hennar er ekki hægt að sjá hverjir komu helst til álita og hverjir ekki. Við kynnum verðlaunin sem sameiginleg verðlaun nefndarinnar allrar.“ Reiss-Andersen segist aðspurð hafa fundið fyrir utanaðkomandi þrýstingi við nefndarstörfin. „Ég hef fengið hin undarlegustu boð og tölvupósta. Maður þarf að gæta sín,“ segir hún og tekur fram að nefndar- menn megi ekki þiggja gjafir. „Á fyrsta fundi nefndarinnar [eftir að fresti til að skila inn tilnefningum lýkur] ræðum við almennt um hvaða átök eru í gangi og hvernig heims- málin horfa við okkur. Við erum síð- an ekki lengi að skera niður listann. Við greinum meginstrauma og fjöll- um um átök og beitum aðferðafræði útilokunar. Listinn styttist eftir því sem nær dregur lokum þessarar vinnu. Ákvörðunin er hins vegar ekki tekin fyrr en í blálokin. Heimurinn breytist enda á hverjum degi. Sá sem sýnist mjög sterkur kandídat í maí er ef til vill ekki svo sterkur kandítat í ágúst,“ segir Reiss-Andersen. Stjórnast ekki af tilfinningum Friðarverðlaunin hafa verið veitt einstaklingum og samtökum sem þykja hafa lagt þyngst lóð á vogar- skálar friðar árið fyrir valið. Til dæmis hefur Alþjóða Rauði krossinn hlotið verðlaunin oftar en einu sinni. Vegna þessa tímaramma hafa handhafar friðarverðlaunanna, eða málaflokkar sem þeir tengjast, oftar en ekki verið í kastljósi heimspress- unnar áður en þeir voru valdir. Má þar nefna að baráttukona og samtök sem beittu sér fyrir banni gegn notk- un jarðsprengna hlutu verðlaunin skömmu eftir að Díana prinsessa lést, en slíkt bann var prinsessunni baráttumál. Þá hlaut Al Gore verð- launin ári eftir að heimildarmynd hans, Óþægilegur sannleikur, var frumsýnd og haustið 2009 fékk Bar- ack Obama verðlaunin, tæpu ári eftir embættistökuna. Spurð hvort því geti ekki fylgt áhætta að fylgja tíðarandanum í stað þess að hafa meiri fjarlægð á menn og atburði segir Reiss-Andersen að samkvæmt skilyrðum í erfðaskrá Nóbels sé sá valinn sem mest hafi lagt af mörkum til friðar á árinu. Hún segir valið hverju sinni ekki stjórnast af tilfinningasemi og and- mælir því að dauði Díönu hafi haft áhrif á hverjir voru valdir 1997. Það sé raunar mælt fyrir um það í erfða- skrá Nóbels að horfa skuli til þeirra sem hafi stuðlað að fækkun vopna. Mandela var ekki orðinn forseti Þá segir hún að stundum sé bar- áttu verðlaunahafa ekki lokið. „Það er augljóst að þegar veita á verðlaunin fyrir liðið ár getur verið langur aðdragandi að því sem verð- launað er fyrir. Friðarnefndin hefur stundum veitt verðlaunin áður en hún veit útkomuna [í friðarferli]. Þá sem hvatningarverðlaun. Þá er tekin áhætta en það er útreiknuð áhætta. Nú hafa margir á orði að verðlaun- in til Nelson Mandela [1993] séu bestu verðlaunin frá upphafi. Hann hafði hins vegar ekki verið kjörinn forseti og umbreytingunni frá aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku var ólokið, þegar Mandela og de Klerk fengu verðlaunin,“ segir Reiss-Andersen og nefnir John Hume og David Trimble einnig sem dæmi. Þeir hafi fengið verðlaunin 1998 fyrir hlut sinn í að koma á friði á Norður-Írlandi, áður en því ferli var lokið. Friðarverðlaunin stuðli að friði  Formaður nefndarinnar sem veitir friðarverðlaun Nóbels segir hundruð tilnefninga berast árlega  Fylgt sé föstu verklagi til að velja verðlaunahafa hverju sinni  Með valinu geti verið tekin áhætta Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Lögfræðingur Berit Reiss-Andersen er formaður nefndarinnar sem veitir friðarverðlaun Nóbels. Reiss-Andersen segir „friðar- verðlaunin pólitísk í eðli sínu“. Þá ekki pólitísk í þeim skilningi að tengjast stjórnmálaöflum heldur að þau þjóni póli- tískum tilgangi. Hún segir nefnd- armenn ekki þurfa að komast að einróma nið- urstöðu. T.d. hafi nefndarmaður mótmælt því á sínum tíma þeg- ar Yesser Arafat fékk verðlaunin, ásamt fleirum, 1994. Undanfarin ár hafa tveir verð- launahafar verið sérstaklega um- deildir; Barack Obama, fv. Banda- ríkjaforseti (2009), og ESB (2012). „Ég var ekki í nefndinni þegar Obama fékk verðlaunin. Það sem fólk gleymir þegar Obama er ann- ars vegar er að eitt af hans fyrstu verkum var að gera umfangsmik- inn afvopnunarsamning við Rússa. Með því uppfyllti hann skilyrði verðlaunanna. Nefndin kom hins vegar með frekari rökstuðning, sem hefur líka valdið mér heila- brotum. Það var að Obama skyldi hafa innleitt nýja gerð af diplóm- asíu. Ef ég man rétt hafði Obama þá flutt ræðu við Háskólann í Kaíró þar sem hann rétti múslimum sáttarhönd [í kjölfar atburðanna] 11. september 2001. Ég þekki ekki hvort nefndarmenn höfðu þetta í huga. Ég tel að Obama hafi ekki fengið þá viðurkenningu sem hann verðskuldar fyrir þátt sinn í af- vopnunarmálum. Nýr forseti [Donald Trump] hefur gefið til kynna að hann íhugi að efla kjarn- orkuvarnir Bandaríkjanna.“ Reiss-Andersen segir aðspurð að nefndin kynni sér bakgrunn þeirra sem tilnefndir eru og njóti við það liðsinnis sérfræðinga. Þess má geta að Obama flutti ræðuna í júní 2009, eða nokkru fyrir valið. Verðlaunin pólitísk í eðli sínu TELUR FRAMLAG OBAMA VERA VANMETIÐ Barack Obama Bilun í rafbúnaði við heitan pott er talin orsök eldvoða í sumarhúsi í landi Dagverðarness í Skorradal í gærkvöldi. Eldurinn kom upp um kl. 19 og slökkvilið var mætt á vettvang hálftíma síðar. Það gat þó engu bjargað, en þó slökkt eld sem borist hafði í þurran skógargróður. Bú- staðurinn er gjörónýtur. Sumarbústaður ónýtur eftir eldsvoða Morgunblaðið/Pétur Davíðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.