Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Gunnar Rögnvaldsson viðrarog rökstyður óvenjuleg sjón-
armið varðandi meintan vanda
NATO:
Ein leiðin til aðstyrkja NATO
væri sú að Þýska-
land myndi fara úr
varnarbandalag-
inu. Þýskaland hef-
ur ávallt litið svo á
að varnabandalag-
ið þurfi ekki á sér
að halda, því það
neitar ávallt að taka þátt í öllu
sem bandamenn þess lenda í og
álíta að þurfi að glíma við. Það
tekur að vísu stundum papp-
írslegan 83-fyrirvara þátt, en svo
ekki meir. Landið er með sér-
skoðun á öllu sem viðkemur
NATO. Best færi því á að það
segði sig úr NATO.
Þannig gæti Þýskaland lagtbandalaginu til vígvöll sem
að mati þess sjálfs er bandalag-
inu sæmandi. Bandalagið hefur
eðli sínu samkvæmt engu hlut-
verki að gegna innan varnar-
svæðis þess. Og flestir hljóta að
skilja það. Öll viðfangsefni
bandalagsins eru utan þess. Og
þannig á það að vera. Það á að
verjast þeim hættum sem steðja
að varnasvæði þess.
Það er ekki hægt að setjabandalagið inn vegna sífellt
ömurlegri þróunar árása á al-
menna borgara innan varnasvæð-
is NATO. Og Þýskaland neitar að
taka þátt í og fjármagna alla
getu bandalagsins utan varnar-
svæðisins, sem myndi ráða nið-
urlögum vandamálanna sem svo
verða innan þess.
Með því að Þýskaland segðisig úr NATO þá væri loks-
ins hægt að beita bandalaginu á
stærsta vandamálið sem Evrópa
glímir við: sjálft Þýskaland.“
Gunnar
Rögnvaldsson.
Sanngjörn tillaga?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.6., kl. 18.00
Reykjavík 13 rigning
Akureyri 8 alskýjað
Nuuk 3 heiðskírt
Þórshöfn 10 þoka
Ósló 16 heiðskírt
Kaupmannahöfn 17 heiðskírt
Stokkhólmur 12 skúrir
Helsinki 7 skúrir
Lúxemborg 26 heiðskírt
Brussel 25 heiðskírt
Dublin 13 rigning
Glasgow 15 rigning
London 22 heiðskírt
París 25 heiðskírt
Amsterdam 21 heiðskírt
Hamborg 19 heiðskírt
Berlín 21 heiðskírt
Vín 25 heiðskírt
Moskva 12 skúrir
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 30 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 26 heiðskírt
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 16 léttskýjað
New York 22 léttskýjað
Chicago 21 heiðskírt
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:19 23:34
ÍSAFJÖRÐUR 2:35 24:28
SIGLUFJÖRÐUR 2:15 24:13
DJÚPIVOGUR 2:38 23:13
Félag atvinnu-
rekenda hefur
fengið staðfest
hjá umhverfis- og
auðlindaráðu-
neytinu að ný
reglugerð um ein-
nota drykkjar-
vöruumbúðir
muni ekki taka
gildi í dag, 1. júní,
eins og áformað
var, heldur muni gildistakan frestast
til 1. september. Þá verði fallið frá
þeirri kröfu sem gerð var í reglu-
gerðinni að strikamerki á drykkjar-
vöruumbúðum skyldi eingöngu vera
lóðrétt, en ekki lárétt.
Ólafur Stephensen, framkvæmda-
stjóri Félags atvinnurekenda, segir
það fagnaðarefni að tekist hafi að
sannfæra umhverfisráðherra um að
hverfa frá kröfunni um lóðrétt
strikamerki. Í bréfi sem ráðuneytinu
var sent 31. mars var rökstutt að lík-
lega yrði afleiðingin hækkun verðs
til neytenda. Erlend samtök áfengis-
framleiðenda, á borð við Spirits
Europe og Scottish Whisky Associ-
ation, höfðu einnig mótmælt regl-
unum við íslensk stjórnvöld.
Strika-
merki í
allar áttir
Fallið frá kröfu um
lóðrétt strikamerki
Strikamerki Mega
vera lóð- og lárétt.
Umræða hefur skapast á netinu um
skordýr sem hafa ratað hingað til
lands með matvörum úr Costco.
Dæmi eru um maríubjöllur sem
leynast í salati og dauður geitungur
fannst í hindberjaöskju. Erling
Ólafsson, skordýrafræðingur hjá
Náttúrufræðistofnun Íslands, hefur
engar sérstakar áhyggjur af skor-
dýrum frá Costco.
„Það þýðir ekkert að lifa svoleið-
is lífi,“ segir Erling. Hann segir
svona uppákomur óhjákvæmilegar
í matvælabransanum en hefur ekki
orðið var við að meira sé um
óæskileg skordýr hjá Costco en
gengur og gerist almennt.
Árlega leitar fjöldi fólks til Er-
lings með skordýr sem verða á
vegi þess. Sumir koma með pöddur
á skrifstofu hans en aðrir láta sím-
tal eða tölvupóst duga. Í fyrra af-
greiddi Erling 1.055 slík mál en
enn sem komið er hefur enginn
leitað til hans með pöddu úr
Costco.
Aðspurður segist Erling eiga von
á að skordýrategundum hér á landi
muni fjölga á næstu árum samfara
hlýnandi loftslagi og auknum inn-
flutningi. Hann segist þó hafa litlar
áhyggjur af innflutningi á græn-
meti og ávöxtum en þeim mun
meiri af gróðurvörum sem fluttar
eru inn frá nágrannalöndum okkar.
agunnar@mbl.is
Ástæðulaust að óttast Costco-pöddur
Búist er við því að skordýrategundum hérlendis muni fjölga á næstu árum
Vespa Skordýrin leynast víða.
Bankastræti 12, 101 Reykjavík, sími 551 4007, www.skartgripirogur.is
Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-18 og sunnudaga kl. 11-17
Gott úrval - gott verð
Skiptu um ól
Skiptu um lit
Skiptu um útlitVerð 27.900