Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 11

Morgunblaðið - 02.06.2017, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 VIÐTAL Urður Egilsdóttir urdur@mbl.is Valgerður Á. Rúnarsdóttir hefur tekið við af Þórarni Tyrfingssyni sem forstjóri Sjúkrahússins Vogs. Hún er sérmenntuð á sviði lyf- lækninga og fíknilækninga og hefur starfað sem sérfræðilæknir og yf- irlæknir á Sjúkrahúsinu Vogi síð- astliðin 18 ár. „Ég hafði kynnst þessum starfs- vettvangi áður en ég fór utan í mitt sérnám og er þetta mikilvægt mál fyrir mig persónulega eins og fyrir marga Íslendinga,“ segir Valgerður þegar hún er spurð hvers vegna hún ákvað að hefja störf á Vogi. „Ég gæti ekki hugsað mér skemmtilegra starf“ segir Val- gerður og bætir við að starfið sé krefjandi en á sama tíma gríðarlega gefandi. „Það er margt hræðilega sorglegt í kringum þennan sjúkdóm, þetta er ungt fólk og margir eru mjög veik- ir,“ segir hún en mörg ótímabær dauðsföll fylgja áfengisvanda. „Það er til mikils að vinna að auka aðstoðina á þessu tímabili þeg- ar sjúkdómurinn herjar sem mest á ungt fólk þegar það byrjar í neyslu.“ Valgerður segir að það sem skipti mestu máli sé að það sé mikið og gott aðgengi að aðstoð og að ekki séu margir þröskuldar þegar menn leiti sér hjálpar. Hún telur það einnig gríðarlega mikilvægt að það sé hægt að sinna mörgum í einu og að hafa sérhæfða þjónustu. Skortir skilning stjórnmálamanna SÁÁ gerir samning við Sjúkra- tryggingar um þá heilbrigðisþjón- ustu sem veitt er á Vogi og að sögn Valgerðar hljóðar samningurinn upp á langtum lægri upphæð en sem nemur kostnaði við þá þjónustu sem Vogur veitir og því hafa SÁÁ greitt allt að 200 milljónir króna á hverju ári til þess að halda stofn- uninni gangandi. Að sögn Valgerðar er þetta allt of há upphæð, sem samtökin ráða illa við, en SÁÁ treystir á frjáls framlög. „Það eru allir sammála því að heilbrigðisyfirvöld eiga að greiða fyrir heilbrigðisþjónustu. Þessi heil- brigðisþjónusta sem Vogur er að veita, sjúkrahúsdvölin og meðferðir í kjölfarið, er eitthvað sem okkur finnst að stjórnvöld eigi að setja meira í,“ segir Valgerður, en stjórn- völd hafa skorið niður fjármuni til þessarar þjónustu talsvert eftir hrunið og ekki bætt upp eftir það. „Það má bæta þennan skilning stjórnmálamanna, ég skil ekkert í þeim að taka ekki þetta mál að sér og greiða meira af þeim kostnaði sem þjónustan ber með sér.“ Valgerður segir þó að starfsemi Vogs gangi vel enda sé mikil þörf á þessari þjónustu. „Nú tek ég við þessu góða búi sem Vogur er. Þessi starfsemi er uppfull af fólki sem er áhugasamt um þetta starf og þetta gengur vegna allra þessara starfs- manna sem eru í því. Ég tek glöð við, en það vantar þó fjármagn frá Sjúkratryggingum Íslands og samninga við þær. Ég er bjartsýn á framtíðina og hlakka til að takast á við þau verkefni sem eru hér.“ Tekur við á Vogi  Fjármunir ekki bættir upp eftir hrun  SÁÁ greiðir hátt í 200 milljónir króna á ári til þess að halda Vogi gangandi Morgunblaðið/Eggert Vogur Valgerður Á. Rúnarsdóttir, nýr forstjóri Vogs, segist vera bjartsýn á framtíð stofnunarinnar. Hún segir starfið krefjandi en á sama tíma gefandi. Atvinna Jakkafötin fyrir útskriftina fást hjá okkur Laugavegi 77 | 101 Reykjavík | Sími: 551 3033 Flottir í fötum B E C K U O M O Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Opið kl. 11-18 virka daga Með einföldum aðgerðum er hægt að breyta stærð og lögun sköfunnar • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • Vinnuvistvænt Skínandi hreinir gluggar Komið í verslun okkar eða fáið upplýsingar í síma 555 1515. Einnig mögulegt að fá ráðgjafa heim. Kr. 5.990 Str. s/m-l/xl Litir: hvítt og svart Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Þunnar peysur Sigurður Bogi Sævarsson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Tillögur Sigríðar Á. Andersen dóms- málaráðherra um skipan dómara í Landsrétt voru samþykktar á Alþingi í gær með 31 atkvæði gegn 22 atkvæð- um. 8 sátu hjá. Atkvæði voru greidd með nafnakalli. Tillaga minnihlutans um að vísa málinu aftur til ríkis- stjórnar var felld. Kynjajafnvægi jákvætt Tillögur ráðherra voru aðrar en dómnefndar um fjóra aðra en nefndin taldi hæfasta. Að reynsla af dómara- störfum hefði meira vægi voru helstu rök ráðherrans. Þeir fjórir sem dóm- nefnd lagði til en komust ekki á lista ráðherra voru Ástráður Haraldsson, Eiríkur Jónsson, Jóhannes Rúnar Jó- hannsson og Jón Höskuldsson. Á lista ráðherra voru hins vegar Arnfríður Einarsdóttir, Ásmundur Helgason, Jón Finnbjörnsson og Ragnheiður Bragadóttir. Málið var mjög umdeilt í afgreiðslu þingsins og við atkvæðagreiðslu sögðu þingmenn stjórnarandstöðunnar að meirihlutinn væri að færa svip kynja- jafnréttis á málið, þar sem á lista ráð- herrans væru 8 karlar og 7 konur, en 10 karlar og fimm konur á lista dóm- nefndar. Þarna kynni þó annar tilgang- ur að vera undirliggjandi. Þingmenn stjórnarflokkanna sögðu hins vegar að kynjajafnvægið væri jákvætt og dóm- arareynsla góð. Hiti var í umræðum um málið á þingi í gær. Með afgreiðslu á skipan dómara við Landsrétt lauk vorþingi og Alþingi er nú farið í sumarleyfi. Óvenjulegar aðstæður Alls urðu 34 frumvörp að lögum frá Alþingi í fyrradag og fyrrinótt. Þar má nefna lög um aukinn aðgang að fyrir- tækjaskrá, útfærsluatriði á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð, tekju- stofna sveitarfélaga, viðbótafjármögn- un Vaðlaheiðarganga, tekjustofna sveitarfélaga og veitingu ríkisborgara- réttar svo eitthvað sé nefnt. Í ávarpi við þingfrestun í gær sagði Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Al- þingis, að fjármálaáætlunin fyrir árin 2018-2022 hefði óumdeilt verið veiga- mesta mál vorþings. Áætlunin kalli á breytt vinnubrögð við fjárlagagerð sem þurfi að slípa betur til. Einsýnt sé nú að þingmenn þurfi að fá nauðsyn- lega aðstoð til að geta lagt sjálfstætt mat á ýmsa þætti áætlunarinnar. Til að svo megi verða þurfi Alþingi meira fé til starfsemi sinnar og breyta þurfi ýmsu í starfsháttum þess. Þingforseti vék í ávarpi sínu einnig að þeim óvenjulegu aðstæðum sem voru uppi síðastliðið haust þegar þing kom saman án þess að fyrir lægi meiri- hlutasamstarf og ný ríkisstjórn. Eigi að síður hefði þinginu tekist að vinna þverpólitískt að setningu fjárlaga árs- ins 2017. Geti allir verið stoltir af þeim vinnubrögðum sem þingið sýndi við þessar aðstæður, en aldrei hafi verið fleiri nýir fulltrúar á löggjafarsamkom- unni en á þeim þingvetri sem nú var að líða. Þingi lauk með Landsrétti  Umdeildar tillögur um skipan dómara samþykktar á Alþingi  34 frumvörp urðu að lögum á lokasprettinum  Fjármálaáætlun veigamesta málið á vorþinginu Morgunblaðið/Golli Alþingi Líflegar umræður. Unnur Brá Konráðsdóttir, Sigurður Ingi Jóhannsson og Benedikt Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.