Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Okkur finnst margt merki-legt við þessa mögnuðujurt sem njólinn er ogákváðum að gefa honum
svolítið undir fótinn,“ segir Bjarki
Þór Sólmundsson, kokkur og
myndlistarmaður, sem ætlar nú í
fimmta sinn að fagna njólanum
með fardagahátíð þar sem matur
og myndlist spila saman.
„Þetta er flökkuhátíð og núna
verðum við með hana í Bragganum
í Birtingaholti í Hrunamanna-
hreppi. En allt á þetta upphaf sitt í
því að fyrir nokkrum árum var mér
boðið að sjá um matinn í nem-
endaferð hjá Listaháskólanum, en
á þeim tíma vorum við félagarnir
ég og Viktor Pétur Hannesson báð-
ir við nám í skólanum. Við tókum
þetta saman að okkur og fengum
þá hugmynd að gera myndlistar-
viðburð tengdan matargerðinni.
Við fengum hugmyndina eftir að
hafa heyrt fólk hringja inn í út-
varpsþátt og tjá sig um rjúpna-
veiði. Kona ein sagði að þessir villi-
menn ættu strax að hætta að veiða
rjúpur. Þegar þáttagerðarmaður-
inn spurði hvort fólk þyrfti ekki að
borða, þá svaraði hún að villimenn-
irnir ættu að ná sér í mat í frysti-
kistuna eins og við hin,“ segir
Bjarki og hlær, en í framhaldi af
þessu fóru þeir félagar að velta
fyrir sér hvernig fólk hugsar um og
horfir á mat.
Éttu það sem úti frýs
„Úr varð okkar fyrsta matar-
verkefni í þessari nemendaferð, við
gerðum rétt úr lambahjörtum þar
sem við vorum með hjartsláttinn
hamrandi undir matarborðinu. Við
settum þetta seinna upp sem
myndbandsverk á myndlistarsýn-
ingu síðar.“
Bjarki segir njólann vera eitt
af þeim mörgu góðgrösum sem þau
hjá Góðgresi vinna með í sínum
listrænu matarverkefnum.
„Njólinn hefur fengið slæma
útreið í gegnum tíðina, hann hefur
verið hataður. Okkur finnst áhuga-
vert hvernig talað er um mat í ís-
lenkri tungu. Njólinn hefur fengið
á sig óorð sem illgresi, þessi eðal-
jurt sem hann er og stútfull af holl-
ustu hefur verið kölluð helvítis
njóli. Þegar fólk segir að einhver
sé bölvaður njóli, þá er það í niðr-
andi merkingu. Við veltum líka fyr-
ir okkur orðtiltækinu Éttu það sem
úti frýs, og að lepja dauðann úr
skel, en skeljar geyma margar
gómsætan mat og það sem vex úti
er flest herramannsmatur. En
þetta er sem betur fer mikið að
breytast til batnaðar, en það þótti
skömm að nýta margt af því sem
náttúran gaf okkur. Okkur hjá
Góðgresi langaði að leggja okkar af
mörkum við að breyta þessu til
betri vegar, líka af því njólinn er
svo auðfenginn, hann vex allt í
kringum okkur. Margar af þeim
jurtum sem fólk er alltaf að reyna
að losa sig við eru frábærar jurtir
til matargerðar, auk þess sem þær
eru fallegar. Þetta á ekki bara við
um njólann, líka fífla, arfa, kerfil
og fleiri plöntur. Við hjá Góðgresi
búum til fíflavín og notum fífla í
salöt og þeir eru æðislegir steiktir
á pönnu.“
Búbót gegn skyrbjúg
Ástæðan fyrir því að Bjarki
velur fardaga til að fagna njólanum
með matar- og myndlistarhátíð er
að áður fyrr var njólinn kallaður
fardagakál.
„Fardagakálið var flutt inn til
Að kenna njóla við
illsku er öfugmæli
Illgresi er ekki til, fullyrðir Bjarki Þór kokkur, en hann kallar þær jurtir góðgresi
sem við kennum við illsku. Hann mun m.a. bjóða upp á njólasúpu á morgun á
Fögnuði á fardögum, hátíð sem er óður til fardagakálsins, betur þekkt sem njóli.
Hátíð Njóli hangir á snúru á einni af matarhátíðum Bjarka og Viktors.
Nóg að gera Bjarki leyfir fólki að smakka á hinum ýmsu afurðum njólans.
Leiksýningin Naktir í náttúrunni í
uppsetningu Leikfélags Hveragerðis
verður á fjölum Þjóðleikhússins
fimmtudaginn 15. júní kl. 19.30.
Þjóðleikhúsið valdi sýninguna sem
athyglisverðustu áhugaleiksýningu
ársins, en alls sóttu ellefu leikfélög
um að koma til greina við valið.
Umsögn dómnefndar, sem skipuð
var fjórum leikurum úr leikhópi
Þjóðleikhússins ásamt þjóðleikhús-
stjóra, er á þessa leið:
„Naktir í náttúrunni í uppsetn-
ingu Leikfélags Hveragerðis er leik-
gerð leikstjórans, Jóns Gunnars
Þórðarsonar, sem byggð er á The
Full Monty, verki um atvinnulausa
menn sem taka sig saman og fara
að æfa strippdans til að hafa í sig
og á. Þessi leið, að vinna með þekkt
verk og aðlaga það leikhópnum og
aðstæðum í heimabyggð, heppnast
hér ákaflega vel og sýningin öðlast
aukinn áhrifamátt við það að at-
vinnumissir persónanna er settur í
kunnuglegt samhengi. Verkið krefst
ákveðinnar djörfungar af leik-
hópnum, og hópurinn leggur sig all-
an fram í metnaðarfullri, kraftmikilli
og skemmtilegri sýningu.“
Leikhópurinn er að vonum himin-
lifandi með umsögnina. „Okkur leik-
urunum sem og Leikfélagi Hvera-
gerðis er mikill sómi sýndur.
Viðurkenningin er án efa hápunktur
margra okkar á listaferlinum og að
sama skapi mikill heiður fyrir bæjar-
félagið okkar, sem hefur stutt okkur
ötullega gegnum árin. Leiklistin hef-
ur blómstrað hér í 70 ár, enda
Hveragerði löngum verið mikill
menningar- og blómabær. Það má
segja að með þessu séum við
fulltrúar allra áhugaleikfélaga
landsins sem vinna afskaplega
gróskumikið starf um allt land,
launalaust,“ segir Hjörtur Bene-
diktsson, formaður Leikfélags
Hveragerðis. „Hún er okkar ánægjan
og fullnægjan að gleðja bæði okkur
og áhorfendur, og það heldur þessu
skapandi og gefandi starfi gang-
andi,“ bætir hann við.
Athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins til höfuðborgar
Berrassaðir Leikurunum finnst ekkert tiltökumál að striplast í sýningunni.
Naktir í náttúrunni á fjalir
Þjóðleikhússins nú í júní
Miðasala er hafin á tix.is og hjá
Þjóðleikhúsinu.
Strangur Hjörtur í hlutverki sínu.
Þessi litla stúlkan hljóp spennt fyrir framan búrið þar sem hinn átta ára fíll,
sem ber nafnið Saen Dao, kafaði galvaskur í dýragarði í Bangkok í Taílandi á
dögunum. Atriðið undir yfirborði vatnsins var hluti af sýningu sem fram fór í
Khao Kheow-dýragarðinum sem margir heimsækja með börnum sínum.
Margt skemmtilegt um að vera í dýragörðum heimsins
AFP
Börnin dást að fimum fíl í vatni