Morgunblaðið - 02.06.2017, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Nýtt 20 herbergja hótel, Hótel Grím-
ur, verður brátt opnað í Grímsbæ í
Reykjavík. Hótelið er á annarri hæð
þessarar rótgrónu verslunarmið-
stöðvar við Bústaðaveg. Sigurður
Smári Gylfason er eigandi og fram-
kvæmdastjóri félagsins BUS hostel
sem rekur hótelið.
Hann segir nafn hótelsins dregið
af verslunarmiðstöðinni. „Sagan seg-
ir að Steingrímur Bjarnason fisksali,
sem byggði Grímsbæ, hafi nefnt
verslunarmiðstöðina í höfuðið á
bresku hafnarborginni Grimsby. Við
vildum frekar nefna hótelið eftir
Grímsbæ en nota ensk nöfn, á borð
við Lagoon, Lava eða Puffin. Hér er
Grímur rakari og þetta er Gríms-
bær. Hótel Grímur hljómar ágæt-
lega.“
Höfðað til hagsýnna ferðalanga
Sigurður segir framkvæmdir við
hótelið hafa hafist um áramótin.
Efsta hæðin var tekin í gegn. Ís-
lenskir aðalverktakar unnu verkið en
Reitir eiga húsnæðið. THG og aust-
urríska hönnunarhúsið GUSTAV
hönnuðu innréttingar og útlit.
„Þetta er þriggja stjörnu hótel.
Við erum ekki með veitingastað og
bjóðum ekki upp á kvöldverð. Verð á
gistingu er því lægra en á hefð-
bundum fjögurra stjörnu hótelum í
Reykjavík. Ætli maður sé ekki að
reyna að höfða til hins hagsýna
ferðamanns sem ferðast um á bíla-
leigubíl. Hér er gott framboð á bíla-
stæðum en líka strætóstöð í báðar
áttir. Við erum með góð fjölskyldu-
herbergi sem eru ekki í boði á öllum
hótelum,“ segir Sigurður Smári.
Njóta þjónustunnar í Grímsbæ
Hann segir gesti hótelsins jafn-
framt munu njóta þess að í Grímsbæ
sé veitingastaður, bakarí og 10/11-
verslun sem er opin allan sólarhing-
inn. Það henti vel á nóttunni.
Hann væntir góðrar eftirspurnar
eftir herbergjum í sumar og segir
öll herbergin 20 í sama flokki, nema
hvað fjölskylduherbergin séu
stærri. Þau eru með aukaherbergi.
„Við finnum að það er mikill
áhugi. Það er enn skortur á gisti-
rými í Reykjavík. Ef það tekst að
skapa gott andrúmsloft fyrir kúnn-
ann á fyrstu stigum rekstrarins
mun það birtast í umsögnum. Ef
þetta gengur vel höfum við engar
áhyggjur af sumrinu eða framtíð-
inni.“
Byrjaði með bílaleigu
Sigurður Smári hóf rekstur í
ferðaþjónustu árið 2009 þegar hann
stofnaði bílaleiguna SADcars.
„Við byrjuðum með notaða bíla.
Flotinn hefur síðan yngst og nú
bjóðum við nýja og nýlega bíla.
Fyrir fjórum árum opnaði ég svo
BUS hostel í Skógarhlíð 10, sem er
130 manna gististaður af sömu gerð
og KEX hostel og Hlemmur
Square. Hótel Grímur er rekið í
sama félagi og hótelið,“ segir Sig-
urður Smári.
Hann segir að í kjölfar styrkingar
krónunnar hafi farið að bera á nýj-
um hópum viðskiptavina á bílaleig-
unni og hostelinu í Skógarhlíð.
Ferðamenn séu greinilega að bregð-
ast við því að Ísland sé orðið mun
dýrara heim að sækja. Það muni
spyrjast út að kaupmáttur ferða-
manna sé að minnka og það aftur
hafa neikvæð áhrif til lengri tíma lit-
ið.
„Ef fram heldur sem horfir um
frekari styrkingu krónunnar og
skattahækkanir í ferðaþjónustu er
það auðvitað mikið áhyggjuefni. Nú
er talað um lægð sem er búin að vera
í ferðaþjónustu eftir páska. Það var
minni nýting á hótelunum í apríl og
maí en sömu mánuði í fyrra. Ég
heyri að það hafi verið allt að 40%
samdráttur í smásölu til ferðamanna
milli ára þessa tvo mánuði. Vonandi
er þetta smá dýfa og smá kæling
fyrir gott sumar.“
Erfiðari tíð framundan
Sigurður Smári segir að ef virðis-
aukaskattur á gistingu hækkar muni
hann þurfa að bregðast við 10-11%
kostnaðarauka. Svigrúmið fyrir því
sé lítið. Það sé meðal annars vegna
mikilla launahækkana sem séu
komnar fram úr aukinni verðmæta-
sköpun í ferðaþjónustu og raunar
þjóðfélaginu öllu.
Of miklar launahækkanir
„Laun hafa hækkað of mikið. Það
er á hreinu. Auðvitað höfum við not-
ið 20-30% vaxtar á ári í ferðaþjón-
ustu á síðustu árum og það hefur
skapað svigrúm til launahækkana.
Vegna gengisstyrkingar lítur dæmið
nú öðruvísi út. Þegar ég byrjaði til
dæmis með bílaleiguna fengum við
175 krónur fyrir hverja evru. Nú er
evran komin í 110 krónur. Samhliða
hefur verð í evrum lækkað vegna
mikillar og vaxandi samkeppni.
Rekstrarumhverfið hefur því breyst
mikið. Það eru klárlega erfiðari
tímar framundan og það þarf að
vanda sig,“ segir Sigurður Smári.
Nýtt borgarhótel í Grímsbæ
Félagið Bus hostel opnar 20 herbergja hótel á Bústaðavegi Eigandinn segir skort á gistirýmum
Höfðar til hagsýnna ferðamanna Vegna mikillar styrkingar krónu komi nýir hópar á hostelin
Nýtt Eitt hótelherbergjanna 20.Setustofa THG og hönnunarhúsið GUSTAV sáu um innréttingar. Koja Hluti af fjölskylduherbergi.
Við Bústaðaveg Hótel Grímur er á annarri hæð í verslunarmiðstöðinni.
Morgunblaðið/Hanna
Sigurður Smári Gylfason, eigandi
BUS hostel, segir það hafa gengið
vel að finna iðnaðarmenn til að
breyta húsnæðinu.
Hans hægri hönd verður Dagmar
Valsdóttir. Hún hóf nýverið störf
hjá fyrirtækinu og stýrir bæði
starfseminni á BUS hosteli í
Skógarhlíð og á Hótel Grími.
Sigurður Smári segir að hún sé
því í senn hostel- og hótelstjóri.
Dagmar starfaði áður hjá bíla-
leigunni Avis/Budget. Hún hefur
áður starfað á fjölmörgum hótelum
bæði hér innanlands og utan.
BUS hostel rúmar 130 gesti og á
Hótel Grími er rúm fyrir um 50
gesti ef fjölskylduherbergi eru full-
nýtt. Þessir gististaðir geta því tek-
ið á móti þúsundum gesta ár hvert.
Sigurður Smári segir hostelið og
hótelið njóta góðs af því að við þau
sé nóg af bílastæðum. Þá sé gott að-
gengi fyrir hópferðabíla.
Nýi hótelstjórinn mun
jafnframt stýra hosteli
Morgunblaðið/Hanna
Samstarfsmenn Dagmar Valsdóttir hótelstjóri og Sigurður Smári.
Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is
Bakteríuvörn
Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum.
Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri
bakteríu- og sveppavörn.
Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone.
Blettaþolið Sýruþolið
Högg- og
rispuþolið
Kvarts steinn
í eldhúsið
silestone.com