Morgunblaðið - 02.06.2017, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.06.2017, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Nýtt 20 herbergja hótel, Hótel Grím- ur, verður brátt opnað í Grímsbæ í Reykjavík. Hótelið er á annarri hæð þessarar rótgrónu verslunarmið- stöðvar við Bústaðaveg. Sigurður Smári Gylfason er eigandi og fram- kvæmdastjóri félagsins BUS hostel sem rekur hótelið. Hann segir nafn hótelsins dregið af verslunarmiðstöðinni. „Sagan seg- ir að Steingrímur Bjarnason fisksali, sem byggði Grímsbæ, hafi nefnt verslunarmiðstöðina í höfuðið á bresku hafnarborginni Grimsby. Við vildum frekar nefna hótelið eftir Grímsbæ en nota ensk nöfn, á borð við Lagoon, Lava eða Puffin. Hér er Grímur rakari og þetta er Gríms- bær. Hótel Grímur hljómar ágæt- lega.“ Höfðað til hagsýnna ferðalanga Sigurður segir framkvæmdir við hótelið hafa hafist um áramótin. Efsta hæðin var tekin í gegn. Ís- lenskir aðalverktakar unnu verkið en Reitir eiga húsnæðið. THG og aust- urríska hönnunarhúsið GUSTAV hönnuðu innréttingar og útlit. „Þetta er þriggja stjörnu hótel. Við erum ekki með veitingastað og bjóðum ekki upp á kvöldverð. Verð á gistingu er því lægra en á hefð- bundum fjögurra stjörnu hótelum í Reykjavík. Ætli maður sé ekki að reyna að höfða til hins hagsýna ferðamanns sem ferðast um á bíla- leigubíl. Hér er gott framboð á bíla- stæðum en líka strætóstöð í báðar áttir. Við erum með góð fjölskyldu- herbergi sem eru ekki í boði á öllum hótelum,“ segir Sigurður Smári. Njóta þjónustunnar í Grímsbæ Hann segir gesti hótelsins jafn- framt munu njóta þess að í Grímsbæ sé veitingastaður, bakarí og 10/11- verslun sem er opin allan sólarhing- inn. Það henti vel á nóttunni. Hann væntir góðrar eftirspurnar eftir herbergjum í sumar og segir öll herbergin 20 í sama flokki, nema hvað fjölskylduherbergin séu stærri. Þau eru með aukaherbergi. „Við finnum að það er mikill áhugi. Það er enn skortur á gisti- rými í Reykjavík. Ef það tekst að skapa gott andrúmsloft fyrir kúnn- ann á fyrstu stigum rekstrarins mun það birtast í umsögnum. Ef þetta gengur vel höfum við engar áhyggjur af sumrinu eða framtíð- inni.“ Byrjaði með bílaleigu Sigurður Smári hóf rekstur í ferðaþjónustu árið 2009 þegar hann stofnaði bílaleiguna SADcars. „Við byrjuðum með notaða bíla. Flotinn hefur síðan yngst og nú bjóðum við nýja og nýlega bíla. Fyrir fjórum árum opnaði ég svo BUS hostel í Skógarhlíð 10, sem er 130 manna gististaður af sömu gerð og KEX hostel og Hlemmur Square. Hótel Grímur er rekið í sama félagi og hótelið,“ segir Sig- urður Smári. Hann segir að í kjölfar styrkingar krónunnar hafi farið að bera á nýj- um hópum viðskiptavina á bílaleig- unni og hostelinu í Skógarhlíð. Ferðamenn séu greinilega að bregð- ast við því að Ísland sé orðið mun dýrara heim að sækja. Það muni spyrjast út að kaupmáttur ferða- manna sé að minnka og það aftur hafa neikvæð áhrif til lengri tíma lit- ið. „Ef fram heldur sem horfir um frekari styrkingu krónunnar og skattahækkanir í ferðaþjónustu er það auðvitað mikið áhyggjuefni. Nú er talað um lægð sem er búin að vera í ferðaþjónustu eftir páska. Það var minni nýting á hótelunum í apríl og maí en sömu mánuði í fyrra. Ég heyri að það hafi verið allt að 40% samdráttur í smásölu til ferðamanna milli ára þessa tvo mánuði. Vonandi er þetta smá dýfa og smá kæling fyrir gott sumar.“ Erfiðari tíð framundan Sigurður Smári segir að ef virðis- aukaskattur á gistingu hækkar muni hann þurfa að bregðast við 10-11% kostnaðarauka. Svigrúmið fyrir því sé lítið. Það sé meðal annars vegna mikilla launahækkana sem séu komnar fram úr aukinni verðmæta- sköpun í ferðaþjónustu og raunar þjóðfélaginu öllu. Of miklar launahækkanir „Laun hafa hækkað of mikið. Það er á hreinu. Auðvitað höfum við not- ið 20-30% vaxtar á ári í ferðaþjón- ustu á síðustu árum og það hefur skapað svigrúm til launahækkana. Vegna gengisstyrkingar lítur dæmið nú öðruvísi út. Þegar ég byrjaði til dæmis með bílaleiguna fengum við 175 krónur fyrir hverja evru. Nú er evran komin í 110 krónur. Samhliða hefur verð í evrum lækkað vegna mikillar og vaxandi samkeppni. Rekstrarumhverfið hefur því breyst mikið. Það eru klárlega erfiðari tímar framundan og það þarf að vanda sig,“ segir Sigurður Smári. Nýtt borgarhótel í Grímsbæ  Félagið Bus hostel opnar 20 herbergja hótel á Bústaðavegi  Eigandinn segir skort á gistirýmum  Höfðar til hagsýnna ferðamanna  Vegna mikillar styrkingar krónu komi nýir hópar á hostelin Nýtt Eitt hótelherbergjanna 20.Setustofa THG og hönnunarhúsið GUSTAV sáu um innréttingar. Koja Hluti af fjölskylduherbergi. Við Bústaðaveg Hótel Grímur er á annarri hæð í verslunarmiðstöðinni. Morgunblaðið/Hanna Sigurður Smári Gylfason, eigandi BUS hostel, segir það hafa gengið vel að finna iðnaðarmenn til að breyta húsnæðinu. Hans hægri hönd verður Dagmar Valsdóttir. Hún hóf nýverið störf hjá fyrirtækinu og stýrir bæði starfseminni á BUS hosteli í Skógarhlíð og á Hótel Grími. Sigurður Smári segir að hún sé því í senn hostel- og hótelstjóri. Dagmar starfaði áður hjá bíla- leigunni Avis/Budget. Hún hefur áður starfað á fjölmörgum hótelum bæði hér innanlands og utan. BUS hostel rúmar 130 gesti og á Hótel Grími er rúm fyrir um 50 gesti ef fjölskylduherbergi eru full- nýtt. Þessir gististaðir geta því tek- ið á móti þúsundum gesta ár hvert. Sigurður Smári segir hostelið og hótelið njóta góðs af því að við þau sé nóg af bílastæðum. Þá sé gott að- gengi fyrir hópferðabíla. Nýi hótelstjórinn mun jafnframt stýra hosteli Morgunblaðið/Hanna Samstarfsmenn Dagmar Valsdóttir hótelstjóri og Sigurður Smári. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.