Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 15

Morgunblaðið - 02.06.2017, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 2017 Tjaldstæði landsins eru óðum að taka við sér og segir Ólafur Örn Haralds- son, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum, að fyrstu tjaldgestirnir séu farnir að sjást og á von á auknum fjölda nú um hvítasunnuhelgina. Hann segir gesti þjóðgarðsins þó að langmestu leyti erlenda ferðamenn og hátíðisdagar skipti þá litlu máli. Hann vonast þó til að fleiri Íslendingar heimsæki garð- inn um helgina. Eflaust hyggja einhverjir á ferða- lög um hvítasunnuhelgina, sem oft hefur verið litið á sem fyrstu ferða- helgi ársins. Veður kann þó að hamla ferðalögum, en búist er við vætusöm- um dögum um allt land og hitastigi á bilinu 5-15 gráður. Helstu verslanir eru flestar lokaðar á hvítasunnudegi sjálfum, þar með talin Kringlan og Smáralind, Bónus og Krónan, að ógleymdu Costco. Sundlaugar borg- arinnar verða þó opnar. Mongólsk skinntjöld Í Traustholtshólma verður nýstár- leg útihátíð með áherslu á heilbrigt líferni. Traustholtshólmi er eyja í Þjórsá en þar hefur Hákon Hjördís- arson staðarhaldari komið fyrir óvenjulegri gistiaðstöðu fyrir ferða- menn, nefnilega mongólskum skinn- tjöldum. Hátíðin nefnist Yoga Island Retreat upp á ensku og er nokkurs konar jógahelgi þar sem fólki gefst kostur á að komast í samband við náttúruna, stunda jóga og borða holl- an mat. Sölvi Avó heilsukokkur hjá Gló sér um matseldina og á matseðl- inum eru meðal annars hráfæðigraut- ar og ferskur grillaður lax. Sölvi Tryggvason athafnamaður og Eva Dögg jógakennari eru einnig meðal skipuleggjenda hátíðarinnar. Hákon á von um 20 gestum á hátíðina. „Þetta verður bara lítið og persónulegt,“ segir hann en bætir við að ef vel tekst til verði þetta að árlegum viðburði. Fyrstu tjaldbúar á ferðinni  Mest erlendir ferðamenn  Vætusöm hvítasunnuhelgi Rúmlega helmingur Íslendinga er mjög ósammála þeim fullyrðing- um að sum trúarbrögð, sumir kynþættir eða menningarheimar séu æðri öðrum. Þetta kemur fram í alþjóðlegri Gallup-könnun á viðhorfi þjóða heimsins til þess hvort ein trúarbrögð, einn kyn- þáttur eða einn menningarheimur sé öðrum æðri eða ekki. Íslend- ingar eru í þriðja sæti þegar kem- ur að hlutfalli þeirra sem segjast mjög ósammála fullyrðingunum þremur, á eftir Svíþjóð og Frakk- landi. Könnunin náði til 66 þjóða og lítur meirihluti þeirra svo á að enginn kynþáttur, menningar- heimur eða trúarbrögð sé öðrum æðri. Í einhverjum löndum eru þó skiptar skoðanir um það og í tíu löndum er meirihluti á öndverðri skoðun. Kancho Stoychec, forseti Alþjóðlegu Gallupsamtakanna, leiðir líkur að því að tengsl séu á milli viðhorfa og þess hve mikill stöðugleiki einkenni þjóðirnar og hversu mikla ógn þær búi við. Þær þjóðir sem eru oftast mjög sammála fullyrðingunum sem spurt var um eru Bangladessar, Indverjar, Afganar, íbúar palest- ínskra svæða, Líbanar og Víet- namar. Meirihlutinn telur enga trú æðri annarri Sinfóníuhljómsveit Íslands og Skólahljómsveit Kópavogs, SK, halda sameiginlega tónleika í Kórnum í Kópavogi í dag, föstu- daginn 2. júní. Alls munu um 150 nemendur SK taka þátt, auk 60 hljóðfæraleikara SÍ. Nemendum og starfsfólki Vatnsendaskóla og Hörðuvallaskóla í Kópavogi, alls um 1.700 manns, verður boðið á tónleikana. Samstarf þessara tveggja hljómsveita, sem hefur staðið í allan vetur, hlaut í fyrradag Kóp- inn, viðurkenningu menntaráðs Kópavogs, fyrir framúrskarandi verkefni í skólastarfi. Skóla- hljómsveitin lék með SÍ á jóla- tónleikum hennar í Eldborgarsal Hörpu á aðventunni og nú á vor- dögum kom stjórnandi SÍ í heim- sókn á æfingar allra sveita SK. Tilgangurinn með verkefninu er tvíþættur. Annars vegar að kynna ungum hljóðfæraleikurum sinfóníuhljómsveit, hljóðfæraleik- ara hennar og starf og hins veg- ar að bjóða nemendum grunn- skólanna á sinfóníutónleika með þátttöku jafnaldra sinna. 9 til 19 ára snillingar spila með Sinfó í dag Útsýnispallur verður tekinn í notkun í dag við Brimketil á Reykjanesskaga. Brimketill er sérkennileg laug í sjávarborðinu vestast í Staðarbergi, milli Grindavíkur og Reykjanesvita. Brimketill og katlarnir í nágrenni hans urðu til vegna stöðugs núnings brims við hraunklettana, ytra álag hefur smátt og smátt mótað bolla og katla í basalthraunið, segir í fréttatilkynn- ingu. Vígsla pallsins er hluti af dagskrá Geopark-viku á Reykjanesi sem stendur til 3. júní. Útsýnispallur kominn við Brimketil STUTT  Sorpílát verða fjarlægð úr görðunum vegna undirmönnunar en ekki er mannskapur til að flokka rusl og ekki fjármagn til að farga því. Aðstandendur leiða eru beðnir að sjá um förgunina.  Umhirða í görðunum verður skert. Þar verður reynt að sinna lögbundinni þjónustu, þ.e. frágangi nýrra leiða, laga sigin leiði og slá gras á grafarsvæðum. Mikilvægt er að aðstandendur gangi þannig frá leiðum að auðvelt sé að slá í kringum þau.  Snyrtingu leiða verður ekki sinnt að öðru leyti en því sem snýr að afgreiðslu blómapantana. Þeir sem eiga ástvini sína í ofangreindum kirkjugörðum eru beðnir um að sýna starfsmönnum og ástandi garðanna skilning vegna þessara óhjákvæmilegu ráðstafana. Stjórn og forstjóri KGRP MIKILVÆGSKILABOÐTIL ÍBÚA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Á þjónustusvæði Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) eru sveitarfélögin Reykjavík, Kópavogur og Seltjarnarnesbær og þar búa 48% þjóðarinnar. Í umsjón KGRP eru Hólavallagarður, Fossvogskirkjugarður, Sólland, Viðeyjarkirkjugarður, Kópavogskirkjugarður og Gufuneskirkjugarður. Sumarstarfsfólki fækkað um helming Á undanförnum áratugum hafa vel á annað hundrað ungmenni hjálpað til við garðyrkjustörf yfir sumartímann og hefur grassláttur og umhirða gengið vel og íbúar verið sáttir. Vegna stórfelldrar rýrnunar á framlagi ríkisins til garðanna er nú óhjákvæmilegt að fækka sumarstarfsmönnum um helming og fresta endurnýjun véla og viðhaldi húsnæðis. Framlög rýrnað um 40% frá 2008 Undanfarin 8 ár hefur framlag ríkisins ekki hækkað í takt við stækkun garðanna. Frá árinu 2008 hefur framlagið raunar rýrnað um 40% ef miðað er við verðlagsþróun en kirkjugarðarnir og verkefni tengd þeim hafa jafnframt aukist verulega. KGRP hafa því verið reknir með tapi mörg síðustu ár. Stjórnvöldum landsins er fullkunnugt um þessa stöðu KGRP og margra annarra kirkjugarða á landinu en samt er ekki vilji til að auka fé til þessarar starfsemi. Viðbrögð dómsmálaráðuneytis benda enn sem komið er ekki til þess að gera megi ráð fyrir að framlagið verði leiðrétt. Afleiðingar skerts framlags Stykkishólmur – Nýr bátur bætt- ist í flota Hólmara í gærmorgun. Þá sigldi inn í höfnina Arnþór GK 20 sem Agustson ehf. hefur keypt frá Sandgerði. Báturinn er smíð- aður á Ísafirði 1998 og lengdur 3 árum síðar. Arnþór er um 100 bt og 22 m á lengd. Seljandi er Nes- fiskur ehf. í Garði. Bátnum er ætlað það verkefni að stunda skelveiðar sem nú fara fram í tilraunaskyni og svo drag- nótaveiðar annan tíma ársins. Veiðar hefjast í lok fiskveiðiárs, en fram að þeim tíma mun Skipa- vík hf. í Stykkishólmi taka bátinn í slipp og annast viðhald á hon- um. Skipstjóri á bátnum verður Sigurður Þórarinsson sem hefur verið skipstjóri á Gullhólma SH sem er í eigu sömu útgerðar. Nýr bátur til Stykkishólms Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Í Hólminum Sigurður Þórarinsson fer á skel og dragnót á nýja bátnum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.